1 maí keyrslan fór fram með glæsibrag í fallegu – en köldu – veðri. Um 750 hjól mættu á svæðið og stemmingin var ólýsanleg. Hávaðinn, fólkið, samheldnin… þetta gaf manni gæsahúð. Öll þessi fallegu hjól – einfaldlega geggjað!
Við viljum koma á framfæri sérstökum þökkum til allra þeirra sem komu að skipulagningu og framkvæmd dagsins. Sérstakar þakkir fá Lögreglan, Reykjavíkurborg, Vegagerðin, Faxaflóahafnir, umferðastjórnunarteymið, Víkingar, B.A.C.A, 2 Guys, vöffluvagninn, Hollvinir og stjórn Snigla. Einnig þökkum við öllum þeim sem lögðu hönd á plóg – ykkar framlag skipti sköpum og gerði þennan viðburð að því sem hann varð.
Myndir frá Ómari Geirs og Önnu Guðný
Dagurinn fór einstaklega vel fram.
Við þökkum öllum sem mættu og tóku þátt. Þið gerðuð daginn ógleymanlegan, allir voru til fyrirmyndar og sýnduð að ekkert, ekki einu sinni lágt hitastig, getur stoppað svona kraft og gleði. Það er einmitt ykkar þátttaka sem gerir dag eins og þennan svona stóran og flottan.
Takk fyrir okkur – sjáumst næst!
Af heimasíðu Sniglana www.sniglar.is















