Enn eitt metið slegið. Michael Dunlop ( Ducati) kom sá og sigraði í Supersport flokknum á Mön í dag.
Supersport er svokallaði litli flokkurinn á Mön en þar keppa 600cc 4 cyl hjól 3 cyl 700cc hjól og 800cc V2 hjól.
Flestir reiknuðu reyndar með að það yrði erfitt að sigra Michael Dunlop á Ducati hjólinu. og það sýndi sig Dean Harrison CBR 600 var talinn líklegastur til að eiga smá séns í hann en hann leiddi keppnina bara í smá tíma í byrjun keppninnar en þegar leið á þá seig Michael framúr og eftir 3 hringja keppni sigraði hann með 25 sekundna betri tíma.








