Ómar Spókaði sig á safninu

Hjólið henna Siggu Ben

Það má með sanni segja að veðrið hafi leikið við okkur Norðanlands undanfarna daga. Að vísu var frost á malbiki lengi vel á kvöldin en í dag fór hitinn í 11-12°C og það var eins og við mannin mælt hjólin voru mætt á göturnar á Akureyri 

Ómar Geirsson kom frá Sigló og fékk sér kaffi á safninu. Valur og Friðrik viðruðu sig í blíðunni og tóku Eyjafjarðarhringinn ásamt meiri rúntum.

Víða sást til mótorhjóla í dag en einnig í gær. Sigga Ben sást td. á ferðinni á Goldwing þríhjólinu í gær.

Sem sagt fult af vorboðum á ferðinni í lok febrúar.     Er á meðan er  🙂