Vorleg þessi myndbönd héðan úr skurðinum fagra!    Snjór niður í mið fjöll og jafnvel neðar svo líklega er þetta tekið snemma vors.

Okkur var bent á fleiri video frá árdögum mótorhjóla!     Nei kannski ekki, en miðað við gæðin á VHS myndböndunum  þá gæti það verið 🙂

Þessi video koma frá Hólmari Kr Þórhallsyni og voru tekin fyrir c.a 35 árum eða svo. 


Frábærar heimildir fyrir okkur dellukallana /kellingarnar.   Og góð skemmtun að sjá þessa gömlu hauga 🙂 , gera skemmtilega hluti!  Þarna má sjá td. RX Kawa,  Virago að ég held eða Mögnur,   og auðvitað 1100 Súkku ásamt fleiri gæðingum.