DC Black Widow
Hannað með töffaraútlitið í huga en er um leið sportlegt í akstri
Á síðustu árum hafa mótorhjól, sem í daglegu tali hérlendts kallast hippar, orðið sívinsælli. Nýjasta hjólið í þessum flokki frá Honda er VT 750 DC Black Widow, eða Svarta Ekkjan. Honda hóf hönnun þessa hjóls fyrir tveimur árum og var markmiðið að búa til hjól sem hefði ekki bara útlit heldur einnig snerpu og aksturseiginleika. Það átti að vera í millistærð meö ekta „Hot Rod“ útlit og lágan prófíl. Við hönnun mótorhjóla er maðurinn alltaf hluti af útliti þess og var tekið sérstakt tillit til þess og búið til nokkurs konar „Bad Boy“ útlit.
Fegurðin öll hægra megin
Svarta ekkjan er fallegt hjól, hvar sem á það er litið. Mest af fegurðinni er þó hægra megin á hjólinu í amerískum stíl en þar eru krómuð púströrin og lofthreinsarinn. Bensíntankurinn er lengri og flatari en áður og rúmar aöeins 13,4 lítra sem er frekar lítið þegar ferðast þarflengri vegalengdir. Hraðamælinum er komið fyrir ofan á tankinum í krómramma og setur hann mikinn svip á hjólið. Stýrið er frekar beint og með „Pullback“ lagi svo að hendur ökumanns eru beinar fram í akstri. Það gefur góða tilfinningu fyrir stýrinu en þreytir ökumann eftir akstur í langan tíma, helst í öxlum. Stýrið er svokallað „Drag-style“ og er þar átt við kvartmíluútlit en ekki útlit er tengist vinsælum hæfileikasamkeppnum. Það er 70 mm framar en á VT 750 C2 hjólinu og eykur enn meir á töffaraútlitið á hjólinu. Sætið er nokkuð þægilegt fyrir ökumann og gefur góðan stuðning aftur þannig að
maður rennur ekkert í því. Líklega myndi þó farþeginn kvarta yfir sínu sæti sem litlu og þunnu. Hjólið hefur allt svokallað „Low Rider“ útlit. Þetta sést best þegar sætishæðin er skoðuð. í samanburði við VT 750 C2 er sætishæðin 25 mm minni á Svörtu ekkjunni og fótpinnar hvorki meira né minna en 800 mm framar. Þetta gefur þá tilfinningu að maður sitji í hjólinu frekar en á því.
Keðjudrif, kostur og galli
Vélin í hjólinu er orðin þaulreynd í Shadow-hjólunum. Hún er slaglöng, sem þýðir meira tog á lágsnúningi, og er með þrjá ventla og tvö kerti á strokk. Á bensíngjöfinni er sérstakur nemi sem skynjar stöðu handfangsins og tryggir það sneggri viðbragö gjafarinnar. Kveikjan er rafeindasýrð og viðhaldsfrí. Þótt púströrin séu tvö, eitt á hvem strokk, eru þau tengd saman með röri til að báðir strokkar fái jafna mótstöðu. Einnig er nýtt lofthreinsikerfi í hjólinu sem skýtur hreinu lofti inn í útblástursportin en það tryggir betri brennslu og minnkar mengun enda stenst hjólið núverandi mengunarlöggjöf. Vélin svarar best á milli hægagangs og 3000 snúninga og því betra að skipta snemma. Á hásnúning er hún ekki eins frískleg en er þó mjúk og laus við titring sem er kostur á langkeyrslunni. Það sem gerir þetta hjól nokkuð sérstakt er keðjudrifið en það sést ekki oft í hjólum af þessari gerð. Hér er það kostur að því leyti að viðbragðið verður sneggra og reisir ekki hjólið að aftan eins og á hjólum með drifskafti. Taka skal þó fram að keðjur þurfa meira viðhald heldur en
drifskaft eða reimbúnaður.
Titringur talinn kostur
Vélarfestingar í grind eru allar fyrir neðan þyngdarmiðju hjólsins en það er gert til þess að ökumaður finni titringinn betur, sérstaklega neðarlega á snúningsviðinu í upptakinu. Þetta er dálítið áhugavert þar sem að
í flestum hjólum er reynt að losna við þennan þátt. Hér hefur það þótt kostur þar sem að ökumaður fær betri tilfinningu fyrir snúningshraða hjólsins en enginn snúningshraðamælir er í því. Halli stýristúpunnar er allnokkur eða 34“ og gefur það hjólinu ekta „Chopper“ útlit. 19 tommu framdekkið reisir það líka að framan og ólíkt mörgum öðrum hjólum i sama flokki er stýrið mjög létt í og „dettur“ ekki inn í beygjumar.
Afturgaffall er úr prófíl-jámi styrkleikans vegna og afturfjöðrun með 80 mm hreyfigetu. Hún virkar aðeins of stíf fyrir einn mann, jafnvel í mýkstu stiÚingu, en gefur sportlegt viðbragð. Bremsurnar eru ágætar, sérstaklega að framan þar sem er tæplega 296 mm diskur með tveggja stimpla dælu. Að aftan er tromla eins og oft áður og því betra að venja sig við frambremsuna í þessu hjóli. Ökumönnum hjóla af þessari gerð hættir nefnilega oft til að venja sig á afturbremsuna.
Mlkið magn aukahluta
Honda hefur passað sig á að geta boðið upp á nokkuð magn aukahluta í þetta hjól. Hægt er að fá vatnskassahlíf í sama lit og hjólið. Einnig er hægt að fá krómað sætisbak fyrir farþega og krómaða töskugrind fyrir leðurtöskur. Hægt er að fá eins manns sæti á það og einnig stílfærða vindhlíf utan um framljósið, skyggni á ljósið, hærri stýrisfestingar, leðurrönd á bensíntank, leðurverkfæratösku á framgaffal, upphituð handfóng og
fleira dót. Verðið á hjólinu er í hærri kantinum en þó réttu megin við milljónina.
-Njáll G Dv. Maí 2001
- Fótpinnar eru hafðir framarlega sem hefur þann kost að hægt er að leggja meira á hjólið.
- Afturteygt stýrið setur bæöi skemmtilegan svip á hjólið og gefur ökumanni góöa tilfinningu fyrir akstrinum.
- Bremsurnar að framan eru nokkuð öflugar þrátt fyrir aðeins einn disk.
- Hjólið er með keðjudrifi sem er ekki eins viðhaldsfrítt og drifskarft eða reimdrif.
Kostir: Þœgileg óseta, létt stýri
Gallar: Ekki farþegavœnt,
lítlll bensíntankur












