– segir Óskar Þór Kristinsson, mótorhjólasafnari og hátekjusjómaður á Arnari frá Skagaströnd
Óskar Þór Kristinsson vill komast út á sjó hið fyrsta. Hann hefur sína skoðun á yfirstandandi verkfalli sjómanna og liggur ekkert á henni. „Ég skal segja þér bara eins og er að hátekjumenn eins og við, sjómenn á frystitogurum, eigum ekki að fá að fara í verkfall. Það er min skoöun,“ sagði Óskar í samtali við DV. Margir landsmenn eiga sér áhugamál af ýmsum toga. Sumir safna pennum, eldspýtnastokkum, frímerkjum og öllu sem nöfnum tjáir að nefna. En það eru ekki margir sem safna hjólum og hvað þá mótorhjólum, glæsilegum og kraftmiklum. Það er nóg að gera hjá honum Óskari Þór Kristinssyni, Skagstrendingnum og sjómanninum á metaflaskipinu og frystitogaranum Arnari HU 1 frá Skagaströnd í sjómannaverkfallinu, hann sinnir sínum áhugamálum.
- Suzuki DR 350 mótorhjólið.
- Harley Davidson-mótorhjólið hans Óskars hefur unnið til margra viðurkenninga.
- Óskar Þór Kristinsson við eðalvagninn sinn, Ford Thunderbird 1966.
- Triumph-hjólið getur náð 175 km hraða.
Verkfall sjómanna er búið að standa í rúman mánuð og Óskar Þór hefur ekki setið auðum höndum. Þar sem sumarið er á næsta leiti er nauðsynlegt að pússa enn betur öll hjólin sex sem hann á og hafa þau tilbúin. Þá er gaman að setjast á vélfákinn og gefa í og þeysa eftir malbikinu eða keyra á „léttingsferð“, eins og Óskar segir og hlær. Til að forvitnast um þetta áhugamál Óskars var slegið á þráðinn til kappans þar sem hann var í makindum í sumarbústaðnum sínum í Vaðlaheiðinni, beint á móti Akureyri. Bústaðurinn heitir reyndar því dulúðuga nafni Svörtuloft en ósagt skal látið hvort hann sækir það nafn yst út á Snæfellsnes en Óskar var um tima á sjó í Ólafsvík.
Sex glæsileg mótorhjól
Óskar, sem verið hefur sjómaður allan sinn aldur, var fyrst spurður hvenær hann hefði tima fyrir þetta skemmtilega áhugamál sitt og hvenær áhuginn vaknaði. „Ég hafði alltaf gaman af mótorhjólum sem strákur og svo kom þetta bara eitt af öðru. Þegar ég var búinn að kaupa eitt þá langaði mig i annað þannig að alls eru þau orðin sex hjólin sem ég á núna. Á Arnari er ég í fríi annan hvern túr og stundum oftar og þá nota ég hjólin þegar ég hef tíma,“
segir Óskar. Hjólin sem Óskar á eru hvert öðru glæsilegra. Það hjól sem hann heldur mest upp á er af gerðinni Harley Davidson, árgerð 1989, og notar hann það aðallega á sumrin þegar veður eru góð. Hann keypti það nýtt og var viðskiptamaður númer þrjú hjá umboðinu sem flutti það inn. Þá á hann Triumph frá árinu 1967, 1981 módel af Kawazaki, Yamaha 4ZFR1, Suzuki DR 350 og Honda CB 450 frá 1966.
Harleyinn er uppáhaldið
Það er ekki nóg með að Óskar eigi öll þessi hjól heldur á hann einstakan bíl, af gerðinni Ford Thunderbird, árgerð 1966. Að sögn Óskars er hann aliur rafdrifinn og óbreyttur síðan hann kom frá verksmiðjunni, fyrir utan það að hann var sprautaður fyrir stuttu. Óskar flutti bilinn inn sjálfur frá Kaliforníu árið 1996 og notar hann aðeins á sumrin. „Ég er mikið í sambandi við fólk sem hefur þetta áhugamál og ég les mikið um þetta efni í blöðum og tímaritum,“ segir Óskar.
„Harleyinn er uppáhaldshjólið mitt,“ segir hann þegar hann fer að lýsa hjólunum sínum. „Maður greiðir talsvert meira fyrir það hjól en önnur en það er alveg grand að sitja svona hjól.“ Þegar undirritaður hitti Óskar eitt sinn síðasta sumar á Akureyri var hann að koma úr „skreppitúr“ frá Skagaströnd. Hann var þá á Yamahahjólinu sinu sem hann segist nota mest af þeim öllum. Hann sýndi mér þá Harley Davidson-hjólið og það er alveg stórkostlegt að sjá. Það er hlaðið aukahlutum sem hann hefur keypt á það og það hlýtur að vera algjört „möst“ að sitja á því í leðurgalla, stígvélum og öUum græjum og eiga veginn fram undan.
Kannski er þetta bilun
Óskar er með lögheimili á Skagaströnd en þar búa foreldrar hans. Hann er einnig með búsetu á Akureyri. Óskar segir að margir hafi áhuga á að skoða hjólin hans. Auk þess er fólk sem óskar eftir að fá Harleyinn til sýningar þegar eitthvað stendur til og hann hefur gaman af því að sýna hjólin ef það gleður einhvern. „Margir spyrja mig hvort þetta sé ekki hálfgerð bilun að vera í svona sporti. Þetta er að sjálfsögðu dýrt en ég læt mig hafa það og kannski er það
bilun,“ segir Óskar og brosir. „Ég er ekkert hættur að kaupa mótorhjól og geri það ef mér líst vel á það sem ég sé. Núna er ég til dæmis með hugann við hjól af gerðinni Indian en það er farið að framleiða þau aftur,“ segir þessi bráðhressi sjómaður og mótorhjólakappi frá Skagaströnd.-
-PSJ
DV – 2001












