Þær ánægjulegu fréttir voru að berast af landsmótssíðunni á facebook að Landsmót Bifhjólafólks verður haldið að þessu sinni á Blönduósi.

 Landsmótshaldarar lofa auðvitað góðu veðri rafmagni og gistingu. (líklega þó í takmörkuðu upplagi).  Tjaldstæði , leikjum ,tónlist og skemmtun , Landsmótssúpu sem Tían Bifhjólaklúbbur hefur tekið að sér að sjá um og er þetta ekki það sem gott landsmót þarf að prýða.

Landsmót hafa verið haldin samfleytt í 40 ár þ.e. síðan 1987. Fyrstu 20 árin sáu Bifhjólasamtök Lýðveldisins Sniglar alfarið um að halda Landsmót, en síðust tuttugu mót hafa verið haldin af bæði einstaklingum og klúbbum síðan,  og hefur það gefið góða raun.

Tían Bifhjólaklúbbur verður með marga fulltrúa frá sér á þessu móti , og líklega verður mætingin með afbrigðum góð þar sem stutt er fyrir okkur að fara.

Okkur hlakkar allavega svakalega til og löngu búin að taka þessa helgi frá í sumarfrí.
Miðar fara í forsölu fljótlega.  Fylgist með á Facebooksíðu Landsmóts

Tilkynnt verður seinna hvaða hljómsveitir munu stíga á stokk.   En það þykir nokkuð líklegt að band sem tengist Sniglum verði ofalega á blaði þó ekkert sé ritað í stein.