Það var sannarlega góður sumardagurinn fyrsti hjá okkur mótorhjólafólki.

Flottur túr í dag fullt af hjólurum frá Akureyri , Tröllaskaganum og Sauðaárkróki og einnig úr Borginni.  Safnast var saman í Varmahlíð á sumardaginn fyrsta kl 13 en þar blessaði séra Karl Matthiasson bæði mótorhjólafólk og mótorhjólin fyrir sumarið!

Fín mæting, sennilega eitthvað um 60 hjól.

Eftir samkomuna dreifðust hjólarar um allt ,  sumir fóru á Sauðárkrók í veitingar, aðrir fóru inn á Bakkflöt þar sem boðið var úpp á pönsur og bakkelsi.  Sumir fóru alla leið til Melgerðiðsmela í Eyjafirði til að finna alvöru kaffihlaðborð.

Frábær hjóldagur og kærar þakki Smaladrengir fyrir undirbúninginn í Skagafirði.