Árleg hópkeyrsla mótorhjólafólks í minningu Heiðars Þórarins Jóhannssonar verður sunnudaginn 17. maí nk.
Heiðar lést af slysförum árið 2006 og í mörg ár hafa félagar í Tíunni, bifhjólaklúbbi Norðuramts, farið slíkan minningarakstur.
Klúbburinn Tían var stofnaður árið sem Heiðar lést í minningu hans, og nafnið er þannig til komið að Heiddi var Snigill númer #10 í Bifhjólasamtökum lýðveldisins, Sniglunum.
Hittumst í Kirkjugarði Akureyrar við leiðið hans Heidda kl. 13.00 .
Lagt af stað í keyrsluna kl. 13.30 tekinn hringur um bæinn og endum við Mótorhjólasafni Íslands þar sem Tían býður upp á léttar veitingar.
ATH ALLIR UNNENDUR MÓTORHJÓLA VELKOMNIR









