Eins og allir vita þá eru Bíladagar, aðal hátíð bílaáhugafólks og mótorhjólafólks á norðurlandi
framundan. Eins og venjulega er von á fjölda gesta til bæjarins.
Eins og flestir vita þá á Tían 20 ára afmæli í ár og tökum við virkan þátt með Mótorhjólasafninu í þessu verkefni.
Fjöldi félagsmanna okkar taka einnig þátt í viðburðum Bílaklúbbsins upp á þeirra svæði.

Helstu dagsetningar Tíunnar.
17. júní býður Tían í Vöfflukaffi í tilefni afmælisins. Við verðum með kaffið við bílasýninguna í Boganum. Ræðst eftir veðri hvar nákvæmlega.
18. júní, Fimmtudagsfjör, Mótorhjólarúntur, Hittumst kl. 17.30 við Mótorhjólasafnið. Lagt í hann kl. 18.00.
Hvert farið verður ræðst eftir veðri og vindum.
19. Júní, föstudagskvjöld kl. 20.00 verður Bjórkvöld á efri hæðinni á safninu og öllum boðið að rölta um safnið.
20. júní, laugardagur kl. 14.00. Tökum þátt í Start up deginum með Mótorhjólasafni Íslands við sjálft safnið þar sem við tökum á móti gestum, bjóðum til sölu pylsur og drykk til styrktar safninu, fylgjumst með þegar gömlu hjólunum er startað, hittum alla hina og höfum gaman saman.
Við verðum einnig með Swap meet , líkt og í fyrra. Þar geta gestir selt, keypt eða skipt á öllu sem tengist mótorhjólum. Hvort sem um er að ræða varahluti, aukahluti, fatnað, hjálma, verkfæri eða annað mótorhjólatengt dót, þá er það velkomið á markaðinn .
Þeir sem vilja fá borð eru beðnir um að skrá sig með því að senda tölvupóst á info@tian.is og óska eftir borði.
Hvetjum sem flesta til að taka þátt.
Það er bannað að haga sér eins og fávitar en gætum við ekki látið eins og hálfvitar?
Hlökkum til að taka á móti ykkur.
Anna Guðný formaður Tíunnar.








