Já Klúbburinn sá um að gera súpu fyrir Landsmótsgesti og bætti um betur og bauð öllum í Húnabyggð í súpu einnig.

Súpan var mjög góð og heppnaðist helgin með afbrigðum vel á Landsmóti Bifhjólafólks



4. júlí  af vefnum Húnahornið.

Bifhjólafólk býður upp á kjötsúpu
Landsmót bifhjólafólks er nú í fullum gangi á Blönduósi og gengur allt ljómandi vel. Í dag ætla Bifhjólaklúbburinn Tían og Landsmót bifhjólafólks að bjóða íbúum Húnabyggðar í kjötsúpu. Með því vill bifhjólafólkið sýna þakklæti sitt fyrir frábærar móttökur og hlýjar viðtökur sem það hefur fengið í Húnabyggð. Súpan verður í boði á malarplaninu við Krúttið (Koppagötu). Svo skemmtilega vill til að í dag fyrir 38 árum síðan hlaut Blönduós bæjarréttindi og breyttist þá úr hreppi í bæ. Íbúar eru hvattir til að mæta í súpuna og eiga notalega stund sama.