Landsmót bifhjólafólks fór fram á Blönduósi dagana 2.–5. júlí og þótti takast einstaklega vel. Mótorhjólaáhugafólk víðs vegar að af landinu kom saman til að njóta samveru, fjölbreyttrar dagskrár, tónlistar ,matarveislu og hinna sívinsælu landsmótsleikja. Þrátt fyrir að undirbúningur hefði einkennst af óvissu vegna rafmagnsmála á glænýju tjaldstæði fram á síðustu stundu tókst að leysa öll mál og varð helgin eftirminnileg fyrir þátttakendur.
Skipuleggjendur mótsins, Ásta og Diddi , segja stuðning Húnabyggðar hafa skipt sköpum við undirbúning og framkvæmd mótsins. Sveitarfélagið hafi staðið þétt við bakið á þeim frá upphafi til enda og átt stóran þátt í að gera mótið að veruleika. Þá fengu Hótel Blönduós og Inga Ómarsdóttir sérstakar þakkir fyrir einstakt samstarf og fyrir að bregðast við öllum þeim verkefnum sem upp komu.
- leitað í heysátunni
Fjöldi sjálfboðaliða lagði hönd á plóg og var framlag þeirra ómetanlegt.
Tían Bifhjólaklúbbur Norðuramts bauð meðal annars upp á rómaða kjötsúpu sem var mjög vel heppnuð og bragðgóð, Tían sá einnig um að ferja allan búnað fyrir leiki á mótinu og var mikill styrkur fyrir mótið.
Leikjanefndin, skipuð Jokku, Jónu Guðnýju, Frey, Dísu, Sigríði Dagnýju, Hrafnhildi Steindórsdóttur og Margréti, sá um að skipuleggja og stjórna leikjum helgarinnar. Víðir Már Hermannsson átti einnig stóran þátt í undirbúningnum með hönnun viðburðaplakata og landsmótsmerkis og stuðningi við skipuleggjendur í aðdraganda mótsins. Björgunarsveitin Blanda sá um öryggisgæslu á meðan Bjarki á Breiðavaði lagði til heysátuna sem notuð var í einni vinsælustu keppnisgrein mótsins.
Dagskráin var fjölbreytt og tónlistin skipaði stóran sess í mótinu. Á fimmtudagskvöldi lék hljómsveitin
Hlekkir, skipuð félögunum Steina Tótu ,Eyþóri Östeby og Axel Cortes, og setti tóninn fyrir helgina.
Á föstudagskvöldi steig hljómsveitin Sporlaust frá Hvammstanga á svið og hélt uppi fjörinu með kraftmikilli dagskrá. Og stóðu sig frábærlega með þéttu og góðu programmi.
Á lokakvöldi mótsins komu síðan hljómsveitin BP og þegiðu Ingibjörg sem er að mestu skipuð meðlimum Sniglabandsins fram og sáu um glæsilega lokaskemmtun sem fyllti dansgólfið fram yfir miðnætti en eftir það sá (Dj.) Andrea Jónsdóttir rokk-amma Íslands sjálf um að halda upp ruddalegu stuði langt fram á nóttina.
- Samkoma hjólafólks
- Kjötsúpan var afar góð í ár
- Landsmótspotturinn (Tían)
- Glimmer og gleði
- alvöru útilega.
- Eins og að hittast á Ættarmóti.
- Keppni í Tunnudrætti
- Hjólað var á Samgöngusafnið í Stóragerði í Skagafirði
- leitað í heysátunni
- Menn búnir að gera sig fína
- BP og Þegiðu Ingibjörg
Logi Már Einarsson frumflutti nýtt landsmótslag sem hann samdi á Landmótinu. Lagið fékk mjög góðar viðtökur.
Tengill Lag og texti Logi Már Einarsson
Leikjakeppni landsmótsins vakti að vanda mikla athygli og var þátttaka með besta móti. Elsta keppnisgreinin, Snigl, hefur verið haldin á hverju ári. Þar aka keppendur mótorhjóli eins hægt og mögulegt er eftir 16m. langri og 1m.breiðri braut án þess að setja niður fót eða fara út af braut. Keppt er í útsláttarkeppni og í ár stóð hinn „eilífðarunglingurinn“ Steini Tótu (Mosó )uppi sem sigurvegari eftir úrslitaviðureign við Óla Prik (RVK) og tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitilinn í Snigli.
Í Tunnudrætti, þar sem hálfri gráslepputunnu með farþega er dregin á eftir mótorhjóli yfir grasvöll, sigruðu feðginin Ástmar og Freyja frá Sauðárkróki með glæsibrag.
Jón Gústi frá Borgarnesi sigraði í Klósettsetufrísbíi,
Team Honda vann Reipitog tegunda,
Adda og Jói Rækja frá Akureyri báru sigur úr býtum í Heysátu,
Addi frá Sauðárkróki sigraði í Haus á staur,
Addi og Óli Prik unnu Froskalappahjólböruhlaupið og
Bjarni og Ísak stóðu uppi sem sigurvegarar í Sminkkeppninni.
Raftar sigruðu búningakeppnina. (Voru Hillbillys mjög flottir)
Að sögn Ástu og Didda einkenndist helgin af gleði, samheldni og góðum félagsskap. Þau telja jafnframt að nú sé rétti tíminn til að horfa til framtíðar og ræða hvernig megi efla Landsmót bifhjólafólks enn frekar. Að þeirra mati gæti fastur samastaður, til dæmis í Húnabyggð, skapað betri forsendur fyrir uppbyggingu mótsins. Með föstum samastað yrði auðveldara að gera langtímaáætlanir, byggja upp markað með mótorhjólatengdum vörum, fá stærri tónlistaratriði, fjölga dagskrárliðum og bjóða erlendum mótorhjólaklúbbum til þátttöku.
„Þetta er landsmótið okkar og við þurfum að fara að hugsa um það sem slíkt,“ segja þau og hvetja bifhjólasamfélagið til opinnar umræðu um framtíð mótsins og hvernig megi byggja það upp sem stærri og öflugri viðburð á komandi árum.
Landsmótið á Blönduósi sýndi enn á ný þann sterka félagsanda sem einkennir íslenskt bifhjólafólk. Þrátt fyrir áskoranir í aðdragandanum ríkti ánægja meðal þeirra rúmlega 200 þátttakenda sem kvöddu Blönduós með góðar minningar, nýtt landsmótslag í farteskinu og mikla tilhlökkun fyrir næsta Landsmóti bifhjólafólks.
Fullt myndasafn á facebooksíðu landsmóts


























