Vetrarakstur á mótorhjóli er ekkert grín og aðstæður á Íslandi
mjög krefjandi enda veðurfarið breytilegt og vindurinn sterkur.

Efaust hafa vegfarendur rekið upp stór augu ef þeir sáu til mótorhjólakappanna Alessandros Broglia og Alessandros Mollos á spani um þjóðvegi landsins í erfiðri vetrarfærð. Félagarnir heimsóttu Ísland í febrúar á vígalegum Multistrada-mótorhjólum frá Ducati og stóð til að fara hringveginn. Broglia segir að einstaklega slæm veðurskilyrði hafi gert það að verkum að ekki tókst að ljúka hringferðinni en engu að síður hafðist það að aka um Suðurland og SV-hornið. Með í för var ljósmyndarinn Davide De Martis og á hann heiðurinn af myndunum hér til hliðar, og af forsíðumynd blaðsins. Ferðalagið til Íslands má rekja til þess að um hávetur fyrir um það bil hálfum áratug tók Broglia sig til og ók Ducatimótorhjóli sömu gerðar alla leið að nyrsta punkti Evrópu, Nordkapp í Noregi. Í fyrra endurtók hann leikinn og fór á mótorjóli upp að norðurheimskautsbaugnum í Svíþjóð. Lifir Broglia og hrærist í ítalska bíla- og mótorhjólaiðnaðinum og starfar m.a. við að skipuleggja upplifunarferðir fyrir Lamborghini. Báðir fást félagarnir einnig við kennslu hjá ökuskóla Ducati.

Undirlagið síbreytilegt

Segir Broglia að þó að landslagið á Íslandi sé engu líkt þá hafi aðstæður fyrir vetrarakstur á mótorhjóli verið mun verri en í Noregi og Svíþjóð: „Hitastigið nyrst í Noregi var nokkuð stöðugt í kringum -20°C eða þar um bil og þess vegna var ísinn og hálkan nokkurn veginn alls staðar eins. Á Íslandi var lofthitinn hærri og gat verið mjög breytilegur; var kannski sex gráðu frost á einum stað en nálægt frostmarki annars staðar, sem þýddi að snjórinn var stundum hálfbráðnaður og ísinn á vegum ekki alls staðar eins, og mjög lítið grip á köflum.“ Þá var vindstyrkurinn mun meiri á Íslandi og voru félagarnir svo óheppnir að mikið fárviðri gekk yfir Ísland í tvígang meðan á dvöl þeirra stóð. „Við komumst austur að Höfn í Hornafirði en þurftum þá frá að hverfa og ókum aftur til Reykjavíkur. Þar notuðum við tækifærið til að skoða suðvesturhluta landsins og áðum m.a. í tvo daga í Grindavík þegar enn einn stormurinn gekk yfir. Var veðrið ekki líkt neinu sem við höfum áður upplifað og húsið lék á reiðiskjálfi,“ segir Broglia og bætir við að vitaskuld sé ekki nokkur leið að ferðast á mótorhjóli þegar vindhraðinn nær öðrum eins hæðum.

Var bara kalt þegar þeir stoppuðu

Ekki þurfti að eiga sérstaklega við mótorhjólin til að ráða við snjóaksturinn. Broglia segir margt líkt með því að aka í snjó og í sandi og að Multistrada-hjólin bjóði upp á að stilla spyrnukraftinn í samræmi við aðstæður. Þá má einnig virkja sérstakan enduro-akstursham sem m.a. aftengir ABSbúnaðinn á afturdekkinu sem getur gefið ökumanni betri stjórn á tækinu á mjög lausu undirlagi. Það eina sem þurfti að breyta voru dekkin, og urðu negld Pirelli-dekk fyrir valinu. „Við klæddumst hlífðarfatnaði úr Antarctica-línunni hjá Dainese en hún er hönnuð fyrir  mótorhjólaakstur í köldum veðrum og reyndist okkur mjög vel. Varð okkur ekki kalt á leiðinni en hins vegar fundum við fyrir kuldanum þegar við stoppuðum – kannski vegna þess að þá hvarf adrenalínið úr blóðrásinni.“
Broglia segir ferðina hafa verið mjög skemmtilega og náttúrufegurðin geri Ísland að mjög áhugaverðum stað fyrir mótorhjólafólk. Hann ræður fólki hins vegar frá því að halda út á vegina í snjó og hálku: „Svona akstur er ekki nema á færi fagmanna og algjört lágmark að vera með mikla reynslu af enduro-hjólum áður en reynt er að aka í snjó.“

Ásgeir Ingvarsson
Morgunblaðið 4.mars 2022

 

ÞESS má geta að Tíuvefurinn var búinn að birta grein um þetta 2024
https://tia.is/island-a-motorhjoli-ad-vetrarlagi/