24.ágúst 2025
Jæja, þá fer þetta að bresta á. Það er reyndar alveg stórfurðulegt uppátæki hjá sjötíu og eins árs gömlum karlpung að taka upp á því að fara í a.m.k. mánaðar ökutúr niður Evrópu á mótorhjóli með eiginkonuna aftaná, hafandi aldrei gert neitt slíku líkt um ævina. Ekki einu sinni nálægt því.
En sumar hugmyndir verður maður bara að framkvæma hvað sem tautar og raular og farartækið er svo sem ekki af verri endanum, Honda Goldwing, sjálft „Aftursætið“ í öllu sínu veldi. (Þeir skilja þetta sem hafa heyrt söguna af því hvernig kaupin á þessu hjóli komu til) 😁 Planið er einfalt, það er ekkert plan utan þess að búið er að bóka vikudvöl á strandhóteli á Spánarströnd, restinni ræður eins konar hlutkesti eða skapið hverju sinni. Fyrsti hluti þessa ferðalags var í morgun er farið var með „Aftursætið“ niður í Samskip þar sem það fer um borð í skip og leggur af stað til Rotterdam á miðvikudag. Við fljúgum svo til Amsterdam 2.sept. og leggjum í hann frá Rotterdam þann þriðja og sprautum niður Evrópu. Gervigreindin verður óspart notuð til upplýsinga um áhugaverða staði á þeirri leið sem ákveðin verður hverju sinni og ábyggilega af nógu að taka. Ég ætla í þessari ferð að hafa orð, sem Kristján „Hringfari“ lét falla í einhverjum af hinum ágætu ferðaþáttum sínum að leiðarljósi. „Aldrei að hætta að þora.“
3.Sept 2026
Flugum í gær til Amsterdam og tókum bíl yfir á hótelið okkar í Rotterdam.
Fórum svo um morguninn að sækja hjólið, glaðlegur afgreiðslumaðurinn tjáði okkur að þeir hefðu verið fjórir að taka hjólið úr körfunni enda talaði hann um „biiiiig bike“ og hafði greinilega gaman af öllu saman.
Ekki laust við að smá fiðringur gerði vart við sig í maganum þegar lagt var af stað enda kominn vel út fyrir þægindarammann en það fór svo sem úr manni hrollurinn fljótlega. Smá sýnishorn af rigningu í byrjun en ekkert sem náði að bleyta í manni og þægilegur hiti í kringum tuttugu gráðurnar.
Fyrsti áfangastaður var Tilburg en það er LOUIS verslun, sannkölluð dótabúð mótorhjólamannsins. Staldrað við þar og keyptur regngalli á Sólveigu og eitthvað fleira dót. Úrvalið maður,, úrvalið þarna getur valdið manni alvarlegum valkvíða svo að á endanum var ráðlegt að koma sér þaðan út og halda áfram ef veskið átti ekki að verða fyrir alvarlegum áföllum.

LOUIS verslun
Tókum stefnuna á Normandý og vissum ekki alveg hvort við ætluðum að gista á leiðinni eða hvað. Eftir klukkutíma keyrslu á hraðbrautum ákváðum við að fá okkur kaffi og tanka. Settumst yfir málið og sáum að best væri að keyra þetta í einum rykk og eiga tvö daga niður í Normandý.
Leituðum að hóteli nálægt Normandý og fundum eitt skítódýrt og alveg þokkalegt sem var um átta km.frá ströndinni. Bókunum tvær nætur þar, að því loknu bað ég um trakk þangað til að sjá vegalengd og tíma. Og það svo sem passaði að hótelið væri um átta kílómetra frá ströndinn, það var bara öfugu megin við kanalinn, sem sagt, Í FOKKING BRETLANDI maður. Krappen, shitten, farten,,,,,,, jæja, svo sem eitthvað sem hægt er að hlæja að.
Bókuðum annað sem var örugglega Frakklandsmegin, lítið sætt hótel, svona eiginlega hálfgerður Harry Potter stíll á því, skammt frá smábæ sem heitir Honfleur. Algjört gamalmennahótel sem hæfir kannski aldrinum á manni en síður en svo andanum. Allt lokar klukkan átta, veitingastaðurinn, barinn og sundlaugin. Minnti mig á heimavistarskóla, allt á að vera komið í ró klukkan átta, rekið af mikilli maddömu sem samkvæmt hefðinni í Frakklandi talar ekki stakt orð í ensku. En engu að síður góður gististaður í yndislegu umhverfi.
Þannig að dagurinn endaði í einhverjum 700 kílómetrum, mest á hraðbrautum en líka í gegnum sveitahéruð þar sem ekki var óalgengt að Jón bóndi á traktornum sínum héldi umferðinni í gíslingu á 30 kílómetra hraða þar sem ómögulegt var að komast framúr.
Nokkuð er um vegtolla hér, fengum svoleiðis þrisvar á leiðinni. Þegar við vorum að borga í fyrsta skiptið neitaði andskotans greiðsluvélin að taka við miðanum, sama hvern fjandann ég gerði. Flutningabílstjóri sem kom fyrir aftan mig var ekki par ánægður með þennan seinagang og innan skamms fékk flautan vænan skammt af rafmagni svo söng í öllu.
En fjandans greiðsluvélinni var alveg sama, hún sat við sinn keip og vildi ekkert gera fyrir mig. Ég var um það bil að fá nóg af þessum flautukór og ætlaði að fara að fara af hjólinu og lesa honum pistilinn,,,, á íslensku,,,,, þegar hann bakkaði og fann sé annan ramp til að fara í gegnum. Á endanum hringdi ég á hjálp og ákaflega þjónustulundaður maður talaði við mig í gegnum vélina og samkvæmt hefðinni, talaði hann ekki orð í ensku, (var ég búin að segja þetta áður) virtist geta endurstillt apparatið þannig að matseðill maskínunnar var uppfærðar og hún loksins át miðann.
Annars gekk allt bara vel, smá svona „hvar í andskotanum er næsta bensínstöð“ moment þegar orðið var ansi lítið eftir á tanknum en það slapp til. Læt þetta nægja að sinni.
4.sept
Eftir hamaganginn í gær var tekinn rólegur dagur á þetta í dag.
Morgunverður á hótelinu, sem, samkvæmt venjunni um að allt loki klukkan átta, opnar klukkan átta. Rólegir í tíðinni Frakkarnir á þessu hóteli. Tókum því reyndar líka rólega, hjóluðum niður í miðbæ Honfleur um hálfellefu leytið og lögðum hjólinu á bílastæði. Og það var svo sem upplit á fólki í kringum okkur þegar við byrjuðum að klæða okkur úr skónum og „biker buxunum“ á miðju bílastæðinu. Veit ekki við hverju fólk bjóst en það getur svo sem verið allt frá engum væntingum upp í að gamlir bækerar sem láta sér fátt fyrir brjósti brenna hafi fengið skyndilega löngun til kynlífs þarna á miðju bílaplaninu.
Einhverjir urðu allavega fyrir vonbrigðum þegar í ljós komu stuttbuxur innan undir bæker buxunum og fólk beindi augunum í aðra átt í snarhasti.
Eftir þessa uppákomu röltum við um gamla hafnarsvæðið, gamlar yndislegar og skakkar byggingar og sagan allstaðar. Algjör túristabær, „lundabúðir“ og veitingastaðir allt um kring en hef samt varla komið á meira sjarmerandi stað og algjörlega þess virði að eyða deginum hér.Reyndar voru svona áttatíu og fimm prósent af fólkinu þarna algjör lampatæki og gráar biðukollur. En það svo sem breytti engu um upplifunina. (Er maður svo sem ekki kominn hálfa leið þangað sjálfur?) En eitt vakti þó athygli mína, það sást varla nokkur sál á ellinöðru öfugt við Spán þar sem túristar, talsvert yngri, en holdafarslega ver á vegi staddir rúlla um á ellinöðrum svo vart verður þverfótað fyrir þeim. Tvö lönd, tveir heimar býst ég við.
Annars er þessi bær, Honfleur nokkuð merkilegur og sögulegur staður. Hér var barist í seinni heimstyrjöldinni og minnismerki eitt sáum við með nöfnum manna sem höfðu fallið á sjó í báðum heimstyrjöldum. En sagan hér nær aftur í aldir, allt til rúmlega ársins eitt þúsund. Og þetta hérað er frægt fyrir Calvados snafsinn sem margir kannski kannast við. Svo því sé til haga haldið þá drekkur hinn sænski rannsóknarlögreglumaður, Beck, alltaf Calvados. Frægir listamenn eins og Claude Monet hafa komið frá þessu héraði. Bærinn kom vel við sögu í hundrað ára stríðinu og átök hafa verið hér í gegnum aldirnar og mikið af viðskiptum hafa farið hér um.
-
-
Brúin yfir Signu
-
-
Brúin yfir Signu
-
-
Skútuhöfnin í Honfleur
En svo sem nóg um það. Keyrðum niður að Signu og tókum mynd af þessu mikla mannvirki, brúnni yfir Signu sem við keyrðum yfir í gær. Sjá má samlíkingu við brúna yfir Ölfusá sem er í smíðum. Hin brúarmyndin er tekin með mesta aðdrætti sem síminn bauð upp á, yfir hana fórum við líka í gær og er nokkur upplifun að keyra yfir þessar tvær brýr. Komum okkur svo upp á hótel seinnipartinn í þetta rólega gamalmennaumhverfi og bara tjilluðum. Sem þýðir á mannamáli, lögðum okkur. Eins og gamalt fólk gerir. Birgðum okkur upp af kvöldmat áður en við héldum á hótelið, alls ekki viss um að við fáum að panta mat eftir klukkan hálf átta þar sem veitingastaðurinn lokar átta. Hugsa fram í tímann krakkar, hugsa fram í tímann. Eftir smá lúr var svo tekinn klukkutíma göngutúr upp í hæðirnar hér fyrir ofan hótelið, að mestu skóglendi og eitthvað af gömlum yfirgefnum bændabýlum. Fundum allavega þennan ullarfénað, ekki ósvipaðan þeim sem er hér á heimaslóðum. Þessi greifingjaræfill lá svo steindauður í vegakantinum. Ekkert að sjá á honum og sennilega bara dáið úr elli. Flugurnar byrjaðar að vinna sitt verk, já, lífið hefur sinn gang. Rakst svo á þennan félaga með alpahúfuna, sennilega gamall félagi úr andspyrnuhreyfingunni. Á morgun verður svo stefnan tekin á Normandy beach, skoða stríðsátakasvæði og annað markvert. Ætlum að bóka hótel þar, vonandi tekst okkur að bóka réttu megin við kanalinn. Nóg í dag.
5.sept
„Hoppa kátur út um dyrnar, við blasir heimurinn“. Svolítill þannig fílingur þegar við, árrisul að venju sáum í hvað stefndi með veðrið í dag. Sól og þægilegur tuttugu stiga hiti, algjört snilldar keyrsluveður.
Reyndar ekki stefnt í langferð þennan daginn. Eftir góðan morgunverð var lagt snemma af stað og fyrsta stopp á bensínstöð til að tanka. Eitthvað var bensíndælunni uppsigað við kortið mitt, spýtti því út og skrifaði pena kvittun upp á núll krónu viðskipti þrátt fyrir innstimplun á pin númeri og öllu ritúali fylgt. Prófaði aðra dælu, sami skítur. Prófaði þriðju dæluna og ekkert breyttist. Endaði með að fara inn á stöðina þar sem afgreiðslustúlkan reddaði málinu fyrir mig og ég fékk mitt bensín. Og greiddi með kortinu inni hjá henni merkilegt nokk. Hoppað á hjólið og haldið af stað.
-
-
Hluti af landgönguveg þar sem ekið var eftir svona brautum með öll hergögn í land.
-
-
-
Þetta eru ótrúlega vel gerð listaverk. Allt soðið saman úr skífum og galvaniserað.
Ókum niður til Normandy beach eftir skemmtilegum sveitavegum, mikið um hæðir og beygjur og gaman að aka þetta. Jón bóndi á traktornum lét sig svo sem ekki vanta frekar en fyrri daginn og náði að halda umferðinni í gíslingu stuttan kafla en allavega vorum við komin á hótelið okkar um hálf tólf. Vissi að það var ekki tékkað inn fyrr en klukkan fjögur en ákvað að fara inn og athuga hvort við værum ekki örugglega með bókun á þetta hótel. Fyrsti maður sem ég mætti þarna inni var kunnuglegur, Skúlíus Fúlason í einhverju þjónslíki ooog samkvæmt hefðinni,,,,,,,já,,,,, hef sagt það áður. En sem betur fer kom aðvífandi maðurinn í lobbíinu og hann hlýtur að vera afkomandi einhverra þeirra Breta sem voru þarna forðum því maðurinn talaði lýtalausa ensku. Og jú jú, við vorum á réttu hóteli. Og hann átti tilbúið herbergi handa okkur þannig að við gátum tékkað inn strax. Hótelið heitir „Hotel de Normandie“ og það er svolítið eins og tíminn hafi staðið í stað hérna síðan í seinna stríði. Finnst sem allnokkuð af innviðum hafi lítið verið breytt. Gamlar hurðir, gömul húsgögn og gömul teppi á gólfum. En hvað með það, ef maður borgar tíuþúsundkall fyrir nóttina,,,, með morgunmat,,,,, þá er okkur sama. Allt hreint og í góðu lagi, fínasta risherbergi.
Deginum svo eytt í af ganga um og skoða gamlar stríðsminjar í góðu sólarveðri en atburðirnir sem hér gerðust stríðsárunum hafa skilið eftir sig merkilega hluti svo sem leifarnar af flotbryggjunum sem bandamenn byggðu. Þeir vissu að þeir hefðu engan aðgang að neinum höfnum til að koma búnaði sínum á land, það höfðu þeir skoðað og komist að því að hafnirnar voru það vel varðar að ekki var mögulegt að komast í gegnum þær. Það var því einhver sem sagði sem svo að „ef við höfum ekki hafnir verðum við bara að koma með þær“. Þeir byggðu því hafnir í Englandi og drógu þær yfir og verkfræðin í þessu er alveg stórkostleg og merkilegt að þetta hafi verið framkvæmanlegt. Það verður að segjast eins og er að þessi staður hafði áhrif á mig þegar ég leit yfir ströndina og hugsaði til þessara atburða, allra þeirra ungu manna sem enduðu líf sitt þarna á ströndinni, skotnir í tætlur af vélbyssum Þjóðverja. Sagan geymir þetta allt. En á morgun verður stefnan tekin niður á Spán, ökum þetta á fjórum dögum, rúmlega þrjúhundruð kílómetra áfangar. Gott í dag.
6.sept
Dagurinn byrjaði snemma að venju, hjólið gert klárt og svo morgunmatur.
Purrað af stað rétt um hálf níu og stefnan tekin á Omaha beach. Dvöldum þar við í þessu yndislega veðri, tók nokkrar myndir og gengum um ströndina. Sandurinn á þessari strönd er svo fíngerður að sennilega væri hægt að nota hann í stundaglös. Það er sunnudagur og kyrrð yfir öllu í Frankaríki. Það virðist sem þeir haldi hvíldardaginn mjög heilagan hér. Verslanir og þjónustufyrirtæki harðlokuð, fólk á annaðhvort að liggja á bæn eða eyða tímanum með fjölskyldunni. Eftir góða kyrrðarstund á ströndinni var haldið af stað og stefnan tekin á smábæ í miðju Frankaríki sem heitir Loudun. Hæfilegt að aka þangað sem einn áfanga í leið okkar að Llorre de mar ströndinn a Spáni. Eftir nokkurn akstur var blaðran farin að segja til sín, það sem fer inn að ofan verður víst að fara út að neðan. Stoppuðum á reststoppi þarna við hraðbrautina. Fórum á salernið,,,,,, eða ekki,,,,,, á flestum hurðunum var miði sem á stóð „Hors service“,,,!!!!???? Hvur andskotinn, er þetta eitthvert hestaklósett? Kíkti inn, já svei mér, þetta gat alveg verið hestaklósett maður. Ég var allavega ekki að fara á þessa dollu. Fletti síðan upp orðinu „hors“ og kom í ljós að það þýðir „út“ þannig að dollan var „out of service“. En ekki séns að ég ætli að skíta í þetta gat, þó að það væri í þjónustu. Lét bara nægja í þetta skiptið að láta leka úŕ slöngubútnum. Í pissuskálina það er að segja. Kaffikrókur var þó opinn þarna í öðrum kofa þannig að stoppið gaf þó allavega góðan kaffisopa.
Borgin LeMans lá í leið okkar og þegar þangað kom var ekki annað hægt en að skoða bílasafnið þar. Og þvílíkar gersemar maður sem þarna eru innandyra, því verður varla með orðum lýst.

Saga LeMans kappakstursins skráð í myndum og munum en þarna eru líka nokkur mótorhjól og rallybílar. Eftir þessa upplifun gekk maður út með stjörnur í augunum. Það var orðið heitt úti, hitinn kominn í 27 gráður og við fundum okkur lítinn útiveitingastað og borðuðum áður en lagt var í síðasta áfanga dagsins.
Gullvængur var orðinn þyrstur og þurfti bensín en þar var ekki hægt um vik. Fann stöð í námunda við okkur en þar var bara dísill. Fórum á aðra stöð, tómir tankar. Bara dísil. Mér fór ekki að verða um sel. Talaði við mann sem var að tanka dísil þarna á stöðinni og hann benti mér á Carrefor verslun þarna nærri og að þar væri dæla. Við þangað og viti menn, dælan átti í engum ágreiningi við kortið mitt, bensín á tönkunum og Gullvængurinn var troðfylltur af bensíni.

Haldið svo af stað í átt að endastöð dagsins, hafði pantað gistingu á því er virtist vera hótel, allavega var þvi þannig lýst á Booking. Áttum í smá erfiðleikum með að finna þetta því heimilisfangið endaði í einhverju sem líktist engu hóteli sem ég hef séð. Heimilisfangið passaði reynar við gamlan bóndabæ að þvi er virtist og loksins, eftir ráp upp og niður sveitaveginn fundum við staðinn en það var bara vegna þess að kallinn (vertinn) heyrði í okkur fyrir utan. Það rættist ágætlega úr þessu, kallinn ágætur og gistingin líka, lítil íbúð í gömlu gripahúsi sem hefur verið breytt í gististað.
Her verður sofið vel í nótt. Svo verður gaman að sjá hvernig morgunverð kallinn reiðir fram í fyrramálið, það á örugglega eftir að fara í sögubækurnar. Love this place.
7.sept
Það var sofið vel þessa nótt í þessu gamla gripahúsi. Vöknuðum eftir góðan svefn um hálf átta, sólin að rísa, blankalogn og smá morgunkul í loftinu ef kul skildi kalla miðað við Ísland.
Settumst fljótlega út framan við dvalarstaðinn okkar í morgunkyrðinni og nutum okkar meðan dagurinn bankaði á dyrnar. Innan skamms tíma birtist vertinn okkar og bauð okkur til morgunverðar sem var borinn fram í borðstofu þessara yndislegu hjóna sem reka þessa gistingu. Allt þetta franska á borðum, kaffi, krósant, valkvíðafjöldi af sultum, baguette og nýkreistur appelsínusafi. Ég fór að dást að húsinu og þessu gamla fallega viðarverki sem þarna var og sagði honum að ég hefði starfað sem húsasmiður megnið af lífinu. Hann var ekki alveg að skilja enda nokkrir tungumálaerfiðleikar okkar í milli svo ég greip til google translate og skrifaði að ég væri trésmiður og findist mikið koma til hússins. Hann las, skildi, horfði svo á mig í smástund og sagði! „Ohhh,,,, (og andlitið lýstist upp) ,,,I knew you was Jesus Christ. Glottið sem fylgdi var kímið. Jesús var víst lika trésmiður. Hvað getur maður sagt? Þetta er í fyrsta skiptið sem mér hefur verið líkt við þann ágæta mann en hef þó verið nokkrum sinnum spurður að því hvort ég væri nokkuð Robert Plant.
Að loknum morgunverði pökkuðum við saman og kvöddum þessi eðalhjón með virktun og vertinn fékk að taka nokkrar myndir af okkur við brottför. Lagt í hann en af reynslu okkar af því að aka sveitavegi gegnum smábæi í frankaríki þá tókum við ákvörðum um að aka A10 hraðbrautina niður til Bordaux sem var næsti áfangastaður okkar. Við höfum á leiðinni ekið í gegnum ófáa smábæi og þar er nákvæmlega ekki jackshit að sjá eða gerast. Hending ef maður sér mannveru á ferð og bæirnir álíka spennandi og að horfa á gráa málningu þorna á gulum vegg. Vorum komin til Bordaux um hálf tvö og tékkuðum inn á hótel. Sturta og út að labba í góða veðrinu. Löbbuðum yfir brúna yfir fljótið Garonne sem er mikið fljót sem rennur í gegnum borgina. Og sennilega er það svo að þegar alfaðirinn skapaði heiminn þá tók hann allt lífið sem átti að vera í smábæjunum og setti það niður í Bordaux. Mikið af fallegum miðaldabyggingum allstaðar. Hér er líf á hverju strái, barinir opnir fram á götu og mikið af fólki allstaðar, alkóhóldrekkarar, matétarar, hjólarar, skokkarar, bóklesarar og fólk liggjandi á teppum í grasinu, bara að hafa það gott í góða veðrinu. Enda fór hitinn í 32 gráður í dag og gott að vera hættur að hjóla snemma. Heimsóttum kirkju eina mikla, tókum hús á bar eða þremur og fengum okkur búrger. Ég allavega, Sólveig er meira kúltíveruð í mataræðinu. Tókum heillangan göngutúr meðfram fljótinu mynduðum mikið eins og góðum túristum sæmir. Þessi heimsókn til Bordaux sannfærði mann um að þetta er borg sem svo sannarlega er vert að koma til og dvelja í nokkra daga. Á morgun verður svo næsti áfangi tekinn til borgarinnar Toulouse. Sjáum hvernig það gengur.
8.sept
Við höfum leitast við að gista á ódýrum gistingum og það er alltaf svolítil eftirvænting í því hverju maður lendir á. Gistum í gær á hóteli í Bordaux sem heitir IBIS budget. IBIS „ekki budget“ er neðar í götunni og er klassa hærra og verðið að sjálfsögðu líka. En Budget hótelið er svolítið skondið enda ódýrt.
Sturtan og klósettið eru svona skápar eins og maður getur búist við í húsbíl, búið til úr trefjaplasti. Þetta herbergi var víst fyrir þrjá og það liggur koja þvert yfir höfðum þeirra sem sofa í tvöfalda rúminu. Svo sem ágætt ef hjón verða saupsátt, annað getur þá sofið ofan við hitt. Það getur svo verið efni í ágætis framhaldsrifrildi hvort á að sofa á hvorum staðnum. En allt hreint og ágætis rúm og allt það sem skiptir máli gott. Morgunmaturinn,,,,,, ætli orðfæri þjóðþekkts leikhúsgagnrýnanda nái ekki best yfir hann,,,,, „mér fannst þetta nú ansi klént“,,,, en maður fékk þó allavega í sig og kaffið var ágætt sem skiptir kaffihólista eins og mig talsverðu máli. Niðurstaða: Næsti bær við farfuglaheimili. Og myndirnar tala sínu máli. Hjólið pakkað og af stað. Tekinn A62 hraðbrautin til Toulouse sem var áfangi dagsins. Eitt bensín og kaffistopp. Við höfum lært eftir að við komum hingað niðureftir að best er að leggja snemma af stað og hjóla áður en hitinn stígur upp fyrir eitthvað sem erfitt er að hjóla í. Þegar mótorhjólaklæðnaður er annars vegar fer að verða ansi heitt þegar hitinn stígur nálægt þrjátíu gráðum og yfir. Lendandi í Toulouis um hálf eitt var hitinn kominn í þrjátíu gráður og við lögðum hjólinu í bilahúsi og löbbuðum sveitt á hótelið. Í raun var ekki hægt að tékka inn fyrr en klukkan þrjú en þessi elskulega kona í móttökunni leyfði okkur að fara inn í óþrifið herbergið til að skipta yfir í léttari klæði og geymdi svo farangurinn okkar þangað til við komum klukkan þrjú til að tékka inn. Við löbbuðum mikið í dag, mannlífið hér í borginni er eftirtektarvert, haugur af veitingastöðum og börum, mikil útivist og fólkið afslappað. Það sem vekur athygli er umferðin hér í hjarta borgarinnar, öllum kemur saman, akandi, hjólandi, mótorhjólandi, gangandi, allir gera sér færi um að láta umferðina ganga og taka tillit til hvers annars. Og það kemur alltaf upp i huga mér þegar ég skoða arkitektateikningar af nýjum hverfum á Íslandi hversu allt er teiknað í samræmi við þessa útópíu sem mannlífið hérna er. Arkitektum á Íslandi virðist fyrirmunað að skilja að veðurfar er forsenda fyrir því að mannlífið geti verið á þeim nótum sem þeir teikna og viðgengst hér suðurfrá. Að teikna mannlíf og byggingar í samræmi við það sem gerist og gengur hér í suður Evrópu upp á íslenskt gráma veðurfar getur aldrei gengið upp. Mannlífið hérna er á þeim nótum að Austurvöllur á sínum um besta degi getur aldrei komist í hálfkvisti við raunveruleikann hérna niðurfrá. Því miður. Og þeim mun fyrr sem menn skilja þennan veruleika þeim mun betra. Og ég hef oft hugsað til þess þegar ég hef verið hérna niðri í Evrópu og gengið um borgirnar og skoðað allar þessar stórkostlegu byggingar með öllum því skrauti og flúri sem á þeim eru (sjá myndirnar) og voru byggðar á meðan við mörlandar tuggðum skósóla og bjuggum í moldarkofum, hvers vegna í fjandanum var þetta svona??? Hvað var það sem hélt aftur af okkur? Þvílíkt og annað eins. Og svo, þegar peningar loksins komu inn í landið í seinna stríðinu og hlutirnir fóru á skrið tókum við þróum sem hafði átt sér stað í Evrópu á áttahundruð árum á áttatíu árum og fórum jafnvel fram úr Evrópu á nokkrum sviðum. Fjandinn hafi það, það er ekki skrýtið að við séum kolrugluð þjóð, við höfum í raun þróast hraðar en okkur er hollt. En nú er ég kominn langt úr fyrir efnið. Eftir góða göngu um miðborgina, skoðandi allt þetta sem ofar er lýst settumst við niður á góðum veitingastað og splæstum í rauðvín og nautasteik og tókum okkur góðan tíma í það. Fengum eitthvað það besta rauðvín sem við höfum smakkað, veitingastaðaverðið á flöskunni var 20 evrur, (2.890,- krónur) Þori ekki að hugsa til þess hvað þessi flaska hefði kostað í Ríkinu, hvað þá á veitingastaðaverði í Rvík. en það hefði varla verið undir fimmtán þúsund kallinum. Röltum svo heim á hótel með viðkomu á írskum pöbb, (elska írska pöbba) þar sem var tekinn einn G&T svona í lokin. Og hér sit ég nú uppi í rúmi á hótelherberginu okkar og skrifa pistil dagsins á símann. Lífið er gott börnin mín,,, (allavega eins og er) Morgundagurinn kemur og maður veit aldrei hverju hann hendir í andlitið á manni þannig að við skulum reyna að njóta hvers dags til hins ýtrasta og reyna að vera góð við samferðafólk okkar. Áfanginn á morgun er Llorett de mar ströndin á Spáni og þar komum við til með að dvelja í eina viku. Svo heldur hið óplanaða ferðalag áfram eftir það og enginn veit hvert það leiðir okkur, það kemur til með að fara eftir duttlungum hverrar stundar. Nóg að sinni.
9.sept
Hótelið sem við gistum á í Toulouse í gær heitir Victor Hugo hotel. Svona dæmigert „low budget“ hótel eins og við höfum verið að gista á og haft gaman af. Hótel með ansi stórt nafn en það fylgjast kannski ekki alveg að hljóð og mynd ef taka skal nafn hótelsins annars vegar og myndugleik þess hins vegar.
Á einhverjum tíma við uppsetningu þess hefur „budgetið“ verið búið, nú eða þá alveg við það að klárast og þá hafa menn farið að spá í hvar best væri að spara. Og þeir hafa nú aldeilis fundið stóran kostnaðarlið,,,,, „hey,, strákar,, sleppum því að setja klósettrúlluhaldara og handklæðasnaga í baðherbergin,,,, já þarna hefur sennilega komið sparnaðurinn sem til þurfti svo hótelið kæmist í rekstur. Því ekkert slíkt fyrirfinnst á staðnum. Blessuð klósettrúllan verður að gera sér það að góðu að húka uppi á klósettkassanum og handklæðin hafa engan íverustað eftir að þau hafa verið notuð. Og eitthvað segir mér að ef að brunavarnarreglugerðin í Frankaríki er eitthvað í takt við þá íslensku, þá hafi nú blessaður úttektarmaðurinn fengið vel borgað undir borðið og haft efni á að fara á eftirlaun eftir þessa úttekt. Venjulega eru svokallaðar B30 eða jafnvel B60 brunavarnahurðir skylda í hótelherbergjum en þessar vindlakassahurðir þarna uppfylla þær kröfur enganveginn, þröskuldalausar og góð rifa undir hurðinni svo reykurinn skili sér nú örugglega inn í herbergið í tilfelli bruna. Og upp á gamla mátann er ekki rafræn læsing heldur er gamli lykillinn látinn duga,,, snúa tvisvar, tvílæsa. Og lykilinn skal skilja eftir í móttökunni í hvert sinn er þú ferð út. Dýrt að smíða lykla ef þeir týnast. Útihurðin lokuð og læst og hringja bjöllu ef þú vilt inn aftur. „Sigh“ Bank bank,,,, „who’s there“? „Það er ég, nútíminn“ „Get lost, you’re not velcome,,,!!!. Og svo var það þetta með hótelparking. Þegar ég bókaði þetta hótel var það sett fram með „hotelparking“. Spurði þessa elskulegu konu í móttökunni um það þegar við komum. Jú jú, fyrir framan hótelið við götuna voru nokkur „moto“ stæði, hmmmmm,,, hotelparking my ass. Ég hefði ekki einu sinni skilið reiðhjólið mitt eftir þarna yfir nóttina hvað þá annað. Enda lögðum við í bílastæðahús skammt frá. Og morgunverðurinn maður, það var ein kómedían. Einn ríkismatseðill maður. Við hvert sæti hafði verið komið fyrir körfu sem í var ca.fimmtán sentimetra bútur af bagúette, eitt krósant og einn skammtur af hunangi, sultu og nutella. Ein svampkaka í plasti toppaði skammtinn. Ómælt kaffi þó, jógúrt í kæli, ávaxtasafi af óljósum uppruna og kornflex. Thats it. Ostar og álegg er eitthvað sem þeir hafa ekki fattað ennþá. Eeeen nóg um þetta hótel. Sváfum ágætlega en höfðum ákveðið að aka snemma af stað.
Hoppaði út klukkan hálf sjö til að ná í hjólið í bílahúsið. Grenjandi rigning. Nú jæja, það kom að því eftir veðurblíðuna sem við höfum verið í. Lagði hjólinu í „hotelparkingið“ og við hesthúsuðum ofangreindan morgunmat. Og þessi dagur átti eftir að taka á. Þó við legðum snemma af stað tók það okkur sennilega þrjú korter að komast út úr miðbænum vegna gatnaviðgerða og það tók svolítið á að vera með þetta 550 kílóa æki í höndunum í þessum hægagangi. Stytt hafði upp en göturnar voru samt rennblautar og manni gat alveg skrikað fótur í öllum þeim stoppum sem þurfti að taka í þessari þungu umferð. En loks komumst við á A61 hraðbrautina. Fljótlega fór veðrið að versna og ég sá þrumur í fjarska. Rúlluðum inn á bensínstöð og gölluðum okkur upp. Af stað aftur og lentum í svakalegum vindi, og tók hressilega í hjólið, ég er ekki óvanur því en Sólveig mín var nokkuð skelkuð í þessum látum.
Tókum aðra bensínstöðvarpásu en veðrið var ekkert að ganga niður þannig að við létum slag standa og héldum áfram. En fljótlega fékk ég að heyra í GPS inu að árekstur væri framundan og tók nú við umferðarteppa dauðans, klukkutími af sniglaakstri. Nokkur hjól „lane splittuðu“ fram úr okkur og komust ágætlega áfram en ég er ekki að treysta mér í slíkt á þessu þunga og breiða æki svo ég fylgdi bara umferðarteppunni. Þetta var orðin hálfgerð martröð þegar við loks komumst út úr þessu. En á hótelið okkar komumst við loks um þrjú leytið. Til að toppa þetta allt saman þá er hér á ströndinni svona dæmigert íslenskt haustveður, rigning, rok og eiginlega bara skítakuldi. Upp á íslensku,,,,!!Skítaveður.
Og maður bara situr uppi á hótelherberginu með bjórglas og skrifar pistil dagsins. En í lokin, talandi um að peningarnir dugi betur hérna niðurfrá. Fórum í Mercadona áðan og keyptum þvottaefni, hálfa melónu, þrjár samlokur, tvo pakka af plasthnífapörum og tvær rauðvínsflöskur. Borgaði fyrir þetta heilar 2.830,- íslenskar verðbólgukrónur. Og af þessum innkaupum er eina mynd dagsins. Í lokin, veit ekki hversu mikið verður skrifað næstu vikuna þar sem við verðum tjóðruð við þetta hótel þann tíma. Læt samt í mér heyra ef eitthvað markvert gerist. Yfir og út.
10.sept
Eftir erfiðan dag og íslenskt haustveður í gær kom sólin upp í morgun og stefndi í góðan og heitan Spánardag og varð sú raunin á. Fyrsti viðkomustaður okkar hjóna eftir að hafa dröslað okkur á lappir er alltaf morgunverðarborðið.
Það er alltaf eitthvað sérstakt við það að borða morgunverð á hóteli. Það er svona reglan að þegar maður kemur að nýju hótelmorgunverðarborði, þá kikkar valkvíðinn inn. Og ekki nóg með það, þú þarft að byrja á því að lesa salinn og átta þig á hvar allir hlutir eru. Kaffið, (mikilvægast) beikonið eggin og baunirnar, áleggið, brauðið, brauðristin, (eða ristavélin eins og sumir kjósa að kalla það ágæta apparat) djúsinn o.s.frv. Eftir að kortið hefur verið teiknað upp og hnitin skráð eru þér allir vegir færir í að skapa þér góðan og um fram allt mikinn morgunverð því yfirleitt er maður að stíla upp á að þurfa ekki að borða fyrr en seinnipartinn. Eftir að hafa farið í gegnum prósessinn í morgun og teiknað kort og skráð inn hnit kom í ljós ákveðin óregla og ekki fannst mér allt sem skildi í þessum efnum. Fann beikonið en hvar voru baunirnar og skrömbluðu eggin? Hmmm, hnitin sögði mér að baunirnar væru á ská hinum megin við borðið en ekki við hliðina á beikoninu. Ekki alveg upp á það besta en hvar voru svo eggin? Fór í gegnum skráninguna og komst að því að það voru einfaldlega engin skrömbluð egg. Bara einhver haugur í einhverri körfu, harðsoðin með skurn og öllu. Ekki gott. Vonsvikinn labbaði ég að borðinu og tók til við að borða beikon og baunir, án eggja. Ekki þurftu bragðlaukarnir langan tíma til að komast að þvi að þarna var ekki á ferð beikon heldur einhverskonar skinka eða hvað þetta nú var og alls ekkert að ríma við mína bragðlauka. En alinn upp við að klára matinn minn lét ég mig hafa það að klára af disknum. Note to self: Ekki beikon á morgun. Eða út vikuna „for that matter“. „Ég sá ekkert jógúrt“ heyrði ég Sólveigu mína segja. „Nú, það var skrýtið, ég skal gá hvort ég sé það í næstu ferð“, sagði ég og tók til við að finna brauð og álegg. Hvernig var nú með kornflex og annað morgunkorn? Jú, það var á enda borðsins ásamt mjólkinni og fleiru. Og viti menn, þarna var jógurtið líka. Í stórri skál, grafið ofan í einhvern kjallara í borðinu þarna á endanum. Sennilega var ekki ætlast til að maður fyndi það. Hef ekki skoðað markaðsverð á jógurt hér um slóðir en finnst margt benda til þess að það sé í hæstum hæðum um þessar mundir. En engu að síður og þrátt fyrir byrjunarörðuleika á morgunverðarborðinu gekk þetta nú allt saman upp á endanum og út í daginn fór maður vel mettur.
Það var fyrsta verk dagsins eftir morgunmat að finna „laundromat“ því að eftir vikuferð á hjólinu var það litla sem tekið hafði verið með af nærum, sokkum og bolum orðið nokkuð súrt. Sólveig mín þurfti líka að finna sér ný lesgleraugu eftir smá óhapp með hin snemma morguns. Þetta var svo sem fljótt leist af hendi með aðstoð google maps, allt má finna þar og láta leiðbeina sér á áfangastað. Eftir það var farið á ströndina, mín lá í sólbaði í sandinum meðan ég tók mér göngu í flæðarmálinu. Settist á klett og horfði á hafið og naut öldunnar og gjálfrinu í hafinu. Það er frekar grófur sandur á þessari strönd og gott að labba í honum og láta hann hreinsa fæturna meðan aldan kemur alltaf aftur og aftur og skolar. Yndislega náttúrulegur fótaþvottur. Pantaði samloku með skinku og osti á matsölustað á ströndinni upp úr hádegi, bjóst við svona dæmigerðu samlokubrauði upp á íslenska stærð en þegar til kom var stærðin á þessu meira í líkingu við lotfthreinsara í Toyotu og það varð á endanum samvinnuverkefni okkar hjóna að geta klárað þetta dæmi.
Eftir þennan ofvaxna óskapnað var ekki annað í stöðunni en að reyna að ganga þetta að einhverjuleiti af sér. Tekin hvíld á hótelinu eftir það og svo klukkutíma hjólatúr um nálægar strendur. Klukkan fimm var svo G&T tími á barnum og svo enn lagt af stað labbandi upp í Merkan dóna (Mercadona), (hef gaman af svona afbökunum) til að kaupa eitthvað létt í kvöldmatinn. Talandi um afbakanir, hér í árdaga sólarlandaferða gistu íslendingar oft á hóteli einu sem stóð til boða og hét „La Loganera“. Íslensku gárungarnir voru fljótir að finna út úr því að þetta hlyti að þýða „lokaðu hleranum“ og gekk hótelið jafnan undir því nafni. Enn var svo tekinn göngutúr um bæinn að afloknu kvöldsnarli. En nú er dagur að kvöldi kominn og tími til að klára þessi skrif.
17.sept
„On the road again“. Þessi vika hérna á Hótel Haromar niðri í Calella hefur liðið svona hægt og rólega. Margar litlar og fallegar strendur i skjóli kletta hér sem gaman er að heimsækja.
Hef áður minnst á ordrur yfirvaldsins um að ég eigi ekki að gera neitt. Og hvurn fjandann á maður svo sem að gera hérna niðurfrá annað en að liggja í leti. Enginn bílskúr að brasa í eða lóð og hús sem þarfnast umhirðu. Þannig að lítið hefur svo sem verið aðhafst en þó hefur skrefamælirinn á úrinu mínu verið að sýna tíu til fimmtánþúsund skref svona gegnumsneitt alla vikuna því yfirvaldið fer hamförum í að drífa mig ut að labba daglega. Já, hún er góð í því hún Sólveig mín í að fá mig til að gera ekki neitt. Ég hef síðan haldið geðheilsunni með því að fara út að hjóla í klukkutíma einn og hálfan daglega til að fá minn skammt af mótorhjóli og rokkmúsik á meðan mín flatmagar á ströndinni eða sundlaugabakkanum. Er þó ekki alveg saklaus af því að hafa tekið þátt í þeim athöfnum. Við höfum verslað nokkuð við Mercadona verslun eina sem hér er með drykki og matvörur og þar sem verslunarrýmið er á annarri hæð er göngufæriband á milli hæða. Þessi fyrirbæri mætti alveg nefna „kraftaverkabrautir“ því það er svo merkilegt að allir sem koma að svona braut missa samstundis mátt í fótunum og standa sem stjarfir og geta ekki með nokkru móti hreyft fótleggina. En þegar upp er komið og bandið endar gerist kraftaverkið, mátturinn skilar sér í fæturna og fólk getur aftur gengið, rétt eins og kraftaverkamaðurinn sjálfur standi við endann á bandinu og blessi fætur fólks. Aldrei getað hent reiður á þessu máli því einhvernveginn erum við Sólveig mín algjörlega undanþegin þessum annmarka. En eins og í upphafi sagði, „on the road again“. Lögðum af stað snemma og tókum stefnuna á borgina Montpelier í Frankaríki. Vorum búin að panta hótel í gær og gátum tékkað inn um eittleytið. Það tók vel í á leiðinni, mikið rok sem kom stundum á báðar hliðar og henti manni til og frá. Mikil trukkaumferð á þessari leið en einnig mikið af bækerum á ferðinni, meira en ég hef séð áður á ferð okkar. Borgin kom skemmtilega á óvart, mikið mannlíf, gamlar fallegar byggingar enda upphaf borgarinnar aftur í áttunda hundraðinu. Háskólaborg með sennilega elsta háskóla í evrópu. Skemmtilegur arkitektúr á mörgum nýbyggingum hér í bland við gömlu fallegu byggingarnar. Og „trammarnir“ hér í borg skemmtilega skreyttir margir hverjir. Tókum svo daginn í að rölta um og skoða og bara vera til.

Þegar matarþörf gerði vart við sig fundum við ítalskan „street food“ stað. Vildum fá borð fyrir tvo en þessi elskulegu eyrnablautu ungmenni þarna á staðnum vildu ekki vísa til borðs og enn síður taka pöntun heldur vísuðu okkur á maskínu eina með snertiskjá. Þar skildi pantað. Tók nu við æsilegur tölvuleikur þar sem pikkað var á hitt og þetta og jafnan þurfti að byrja upp á nýtt þar sem franska er ekki mín sterka hlið. Eftir drykklanga stund og með aðstoð elskulegs drengs tókst þetta að lokum og pöntun upp á laxasamloku og laxapasta var staðfest. Samlokan kom fljótlega og þetta var sko engin Sómasamloka. Stór og mikil og þykkari en lofthreinsari í Harley Davidsson. Endaði með að geta ekki torgað þessum ofvaxna ítala. Á endanum var svo rölt niður á hótel enda komin rigning. Á morgun verður svo stefnan tekin á þjóðgarð einn hér ofar í Frankaríki.

Það er eitt sem ég hef rekið mig á hér í Frankaríki og það er að stundum virðist vera erfitt um vik með að verða sér úti um bensín. Hef oftar en einu sinni komið að dælum þar sem tankarnir hafa verið tómir og ekkert bensín til. Og það gerðist einmitt í morgun þegar við ætluðum að tanka. Fyrsta bensinstöð var bensínlaus. Eða þannig. Náðum að fylla á næstu. Vegna þessa er ég eiginlega farin að tanka á hverri bensínstöð sem ég kemst í tæri við þó að ekki vanti mikið upp á, bara svona til að vera öruggur. En í morgun var haldið upp á þjóðgarðasvæði sem heitir „Parc naturel régional des Grands Causses“ og er um fjörutíu mínútna akstur frá Montpellier hvar við gistum síðustu nótt. Þetta er fallegt svæði og hefur að geyma ýmislegt áhugavert. Ætluðum að skoða lítið gamalt þorp í morgun og ég stimplaði leiðina inn í GPSið og hélt af stað. Vegurinn var ágætur til að byrja með en svo fór að kárna gamanið því ekki var nóg með að við lentum í kröppum U beygjum heldur var líka sandur og lausamöl á því sem eftir var af malbikinu og ég lentur í aðstæðum sem mig langaði ekki að vera í á þessu æki. Ákvað að snúa við og það hafðist við illan leik að komast út úr þessu og til baka. Með sjálfstraustið aðeins klórað eftir þessa uppákomu var ákveðið að stefna á lítinn ferðamannabæ sem heitir Pézenas og var í hálftíma fjarlægð. Þessi bær er með alveg einstaklega fallegt „old town“ og röltum við þar um og skoðuðum. Mikið af litlum handverksbúðum með allskonar glingur a boðstólnum og þarna inni er líka gamli þorpsbrunnurinn þar sem fólk hefur náð sér í vatn forðum. Eyddum góðum tíma þarna og á kaffihúsi ásamt því að sitja í fallegum almenningsgarði og fylgjast með lífinu en vorum svo búin að bóka lítið hótel fyrir nóttina í jaðri ofangreinds þjóðgarðs. Lítið hótel rekið af einstaklega góðum og hjálpsömum eldri hjónum. Þarna tóku heimilishænurnar á móti okkur og allt friðsælt og gott í grónu umhverfi. Þetta umhverfi heillaði okkur svo mikið að ég bókaði aðra nótt þarna og ætlum við að eyða deginum á morgun í að aka um nærumhverfið og skoða okkur um. Enginn veit svo hvert stefnir eftir það enda ferð án fyrirheits.
18.sept
Það er eitt sem ég hef rekið mig á hér í Frankaríki og það er að stundum virðist vera erfitt um vik með að verða sér úti um bensín.
Hef oftar en einu sinni komið að dælum þar sem tankarnir hafa verið tómir og ekkert bensín til. Og það gerðist einmitt í morgun þegar við ætluðum að tanka. Fyrsta bensinstöð var bensínlaus. Eða þannig. Náðum að fylla á næstu. Vegna þessa er ég eiginlega farin að tanka á hverri bensínstöð sem ég kemst í tæri við þó að ekki vanti mikið upp á, bara svona til að vera öruggur. En í morgun var haldið upp á þjóðgarðasvæði sem heitir „Parc naturel régional des Grands Causses“ og er um fjörutíu mínútna akstur frá Montpellier hvar við gistum síðustu nótt. Þetta er fallegt svæði og hefur að geyma ýmislegt áhugavert. Ætluðum að skoða lítið gamalt þorp í morgun og ég stimplaði leiðina inn í GPSið og hélt af stað. Vegurinn var ágætur til að byrja með en svo fór að kárna gamanið því ekki var nóg með að við lentum í kröppum U beygjum heldur var líka sandur og lausamöl á því sem eftir var af malbikinu og ég lentur í aðstæðum sem mig langaði ekki að vera í á þessu æki. Ákvað að snúa við og það hafðist við illan leik að komast út úr þessu og til baka. Með sjálfstraustið aðeins klórað eftir þessa uppákomu var ákveðið að stefna á lítinn ferðamannabæ sem heitir Pézenas og var í hálftíma fjarlægð. Þessi bær er með alveg einstaklega fallegt „old town“ og röltum við þar um og skoðuðum. Mikið af litlum handverksbúðum með allskonar glingur a boðstólnum og þarna inni er líka gamli þorpsbrunnurinn þar sem fólk hefur náð sér í vatn forðum. Eyddum góðum tíma þarna og á kaffihúsi ásamt því að sitja í fallegum almenningsgarði og fylgjast með lífinu en vorum svo búin að bóka lítið hótel fyrir nóttina í jaðri ofangreinds þjóðgarðs. Lítið hótel rekið af einstaklega góðum og hjálpsömum eldri hjónum. Þarna tóku heimilishænurnar á móti okkur og allt friðsælt og gott í grónu umhverfi. Þetta umhverfi heillaði okkur svo mikið að ég bókaði aðra nótt þarna og ætlum við að eyða deginum á morgun í að aka um nærumhverfið og skoða okkur um. Enginn veit svo hvert stefnir eftir það enda ferð án fyrirheits.
19.sept
Letin réði ríkjum í dag. Dröttuðumst þó á fætur fyrir átta vegna þess að við höfðum sagt gestgjafanum okkar að þá vildum við fá morgunmat. Þegar maður gistir í svona persónulegri gistingu hér í Frankaríki ber gestgjafinn morgunmatinn fram á þeim tíma sem ákveðinn er kvöldið áður. Og við höfum orðið þess áskynja að á svona stöðum er þetta ekki þessi hefðbundni evrópski hótelmorgunverður heldur svona meira upp á franska mátann eins og hef lýst í annarri færslu.
Fyrir vikið verður hann svona meira eins og gestgjafanum finnst hann eiga að vera sem er allt í lagi. En ostar og álegg líða svolitið fyrir þetta þó að brauð og krosant vanti ekki. Að ég tali nú ekki um valkvíðafjöldann af sultum og marmelaði. En þetta er það sem maður gengur að í svona gistingu og það er bara gaman að upplifa eitthvað sem er aðeins út fyrir rammann. Lífið væri leiðinlegt ef það væri alltaf eins frá degi til dags. Svona eins og gerðist í þeirri ágætu mynd, „Ground hog day“. En eftir morgunsnæðing og gott samtal við belgískt par sem dvelur hér einnig var stefnan um að skríða í fletið aftur fokin út í veður og vind og við drifum okkur út í morgungöngu hér í góða veðrinu, smá morgunkul er þó að byrja að gera vart við sig hér, haustið nálgast greinilega þó ekki sé það komið jafnlangt og heimafyrir. Fimmtíu mínútna ganga kom blóðinu af stað og það er yndislegt að ganga hér í þessu skógarumhverfi. Dagsplanið í dag var svo sem ekki merkilegt, skoða eina brú og láta gott heita. Þessi brú á svo sem ekkert skylt við íslenskar einbreiðar brýr. Með sínar fjórar akreinar er brúargólfið í 270 metra hæð þar sem hæst er, lengd upp 2.460 metra, hæsti punktur frá jörðu 343 metrar, breiddin er 32,05 metrar, lengstu brúargólfin eru 342 metrar milli stöpla, tók þrjú ár í framkvæmd og var opnuð 16.desember árið 2004. Hönnunin gerir ráð fyrir 120 árum í endingu. Já, hún er stórkostlegt mannvirki „Viaduc“ brúin hæsta brú í heimi fram á síðari hluta ársins 2025 en ég hef ekki flett því upp hver tók við titlinum. Og það má eflaust segja að það sé nógu erfitt að byggja svona ferlíki í beinni línu en þegar þú ekur yfir hana uppgötvar þú að hún er byggð bogadregin. Þvílík verkfræði maður minn. Við annan enda brúarinnar er svo upplýsingamiðstöð og kaffihús þar sem öll verkfræðin í brúnni er sýnd og myndskeið frá byggingunni birtast á mörgum skjáum. Góðum tíma var eytt þarna og hefði að skaðlausu getað orðið meiri. En eftir góðan kaffisopa var ekið til baka á hótelið og tekið síðdegisletikast. Ekki var langt liðið á letikastið er við hjónin fórum að verða þess áskynja að algjörlega óumbeðnar og þess þó heldur óvelkomnar franskar herdeildir höfðu ráðist á okkur, sennilega með byssustingjum og tók kláði að gera vart við sig á nokkrum stöðum. Og eins og þeir vita sem fyrir slíkum árásum hafa orðið þá er það versta sem þú gerir að byrja að klóra sér. Ástandið bara versnaði þannig að tekið var til við að spyrja Google gamla um apótek í nærsveitum. Fljótur var hann að koma með svarið og var burrað af stað á afturdekkinu (á Goldwing????? Yeahhh,,,right,,,) í átt að apótekinu og verslað anti-kláða einhver fjandinn og ofnæmistöflur til að slá á einkennin. Og fyrst við vorum komin í þéttbýlið var ekki úr vegi að fá sér að borða. En heldur snemmt þó því eldhúsin á veitingastöðum hér í Frankaríki opna að öllu jöfnu ekki fyrr en sjö á kvöldin. Tókum því labbitúr um bæinn, duttum niður á einhverja hverfishátíð með söng og spili og krakkaormarnir dunduðu sér með allskonar fortíðarleikföng, svona eitthvað sem maður lék sér með sjálfur sem krakki. Fundum svo kirkju eina (hvað annað) sem, eins og myndirnar bera með sér var orðin nokkuð lúin. Og þó að ég sé hvorki guðrækinn né kirkjunnar maður hef ég samt alltaf jafngaman að því að skoða þessar stórkostlegu gömlu byggingar út frá byggingarfræðilegu sjónarmiði og dást að handverki forfeðranna og gera mér í hugarlund hvernig verklagið var á þeim tíma sem þetta var byggt. En síga fer á daginn og þessum skrifum að ljúka. Erum ekki alveg búin að ákveða hvert við stefnum næst en ramminn svona aðeins að mótast utan um það hvaða leið við förum upp Evrópu. Nóg að sinni.
21 sept.
Þegar við fórum frá hótelinu okkar í þjóðgarðinum eftir að hafa kvatt vertinn og blessaðar hænurnar vorum við búin að móta okkur gróflegt ferðaplan fyrir næstu daga.
Byrjuðum daginn á að keyra til borgarinnar Avignion og vorum komin þar um hádegi. Eyddum deginum þar í að skoða borgina í dásamlegu veðri, gera vel við okkur í mat og skoða mannlífið og allar þessar mögnuðu byggingar svo sem páfahöllina og fleira. Planið var svo að aka Rínardalinn í átt að Þýskalandi og Benelux. En plön falla svo sem aðrir hlutir. Ég var farinn að verða var við að gangurinn í hjólinu var eitthvað að breytast og komið hik í inngjöf. Og þegar ég ræsti hjólið og við lögðum af stað að morgni dags eftir dvölina í Avignion var augljóst að ég ætti við bensínstífluvandamál að etja. Illkeyranlegt á lágsnúningi og svaraði illa inngjöf sem er ekki gott í beygjum á 550 kílóa æki. Getur auðveldlega sett þig á hliðina. Það var því tekinn krísufundur á bensínstöð og þar sem ég hafði hvorki aðstöðu eða verkfæri sem til þarf að fara í málið var niðurstaðan að koma hjólinu til Rotterdam og stytta ferðina. Ekki þótti okkur fýsilegt að finna verkstæði sem gæti tekið þetta að sér því þetta er dálítið sérhæft verkefni og biðtími, tungumálavandræði og væntanlegur viðgerðarkostnaður setti líka strik í reikninginn. Hjólið er að virka vel á hraðbrautarkeyrslu þegar mótorinn er á snúningi en á lágsnúningi byrja vandræðin. Ákváðum því að koma okkur til borgarinnar Dijon og áttum hér góðan dag. Restin af leiðinni til Rotterdam verður tekin í tveimur áföngum og lendum við þar ef allt gengur upp 22.sept. og ætlum þá að eyða nokkrum dögum í Amsterdam. Þannig að „þannig fór um sjóferð þá“. Þetta er búið að vera mikið og skemmtilegt ferðalag og mikill lærdómur af því dreginn en stundum þarf maður bara að láta gott heita og sætta sig við að allt gengur ekki alltaf upp. Við erum hvergi hætt. Vona svo að lokum að einhverjir hafi haft gaman af þessum skrifum mínum.
27 sept.

Logi hitti Rokkdrotninguna á vaxmyndasafninu í Amsterdam
Ég satt að segja hélt að ég væri hættur að skrifa pistla um þessa evrópuferð okkar en get ekki látið hjá líða að skrifa einn pistilnn enn eftir þessa dvöl okkar hér í Amsterdam.
Eins og áður hefur komið fram þurftum við illu heilli að stytta ferðina en þessir dagar hér í borginni hafa verið dagar yndis og ánægju og margt höfum við skoðað og upplifað. Ég hef einatt minnst á byggingar borganna sem við höfum heimsótt enda finnst mér einstaklega gaman að skoða byggingar og fallegan arkitektúr og stíl þeirra. Að ganga um Amsterdam er alveg einstök upplifun. Á göngu hér um borgina kemur upp í hugann stef úr gömlu lagi, „við röltum inn í rammskakkt Hafnarhús, og raulum fyrir munni skakkablús“. Ég, sem smiður megnið af ævinni hef á tilfinningunni að hér hafi í gegnum aldirnar aðeins verið seld hallamál með föstum dropa því hér eru að sönnu skakkar byggingar sem halla orðið vel fram á við margar hverjar þannig að eitthvað eru undirstöðurnar farnar að gefa sig. Margar af þessu byggingum standa á timbursúlum sem reknar voru allt að fimmtán metra ofan í jörðina en dugar greinilega ekki til í þessum sendna og gljúpa jarðvegi sem hér hefur verið byggt á um aldir. En allt stendur þetta uppi ennþá. Og að ganga meðfram sikjunum getur reynt á jafnvægið því ójafnari gangstéttir held ég að ekki sé að finna annarsstaðar á jarðarkringlunni. Þú ert alltaf að „stíga ölduna“ og riðar lítið eitt til hliðanna eins og þú hafir sökkt nokkrum köldum fyrir göngutúrinn. En samt blásaklaus af því. Svona yfirleitt allavega. Róandi er að sitja á útiveitingaplássi við síkin með kaffi eða kaldan og sjá síkjabátana líða hjá á rólegri siglingu, allt gengur rólega fyrir sig. Umferðin hér gengur áreynslulaust fyrir sig og flýtur áfram sem litir lækir sem sameinast í stærri elfu og skiljast síðan aftur í aðra litla læki sem streyma hingað og þangað. Akandi, hjólandi, gangandi, sporvagnar og strætisvagnar, allt er þetta í sátt og samlyndi meira en ég hef séð annarsstaðar í borgum. Enda íbúar borgarinnar slakir með eindæmum svo sem ráða má af því að einatt gengur maður inn í þef af skrýtnu reykelsi sem ilmar helst eins og brennt jólagreni. Annar eins fjöldi reiðhjóla er vandfundinn og litlir rafmagnsbílar sem líta helst úr eins og ferðaklósett eru gjaldgengir á hjólabrauturnum þar sem pedalatraðkarar stíga farskjóta sína af miklum móð. Og sem gangandi vegfarandi frá langtíburtistan er eins gott að líta vel í kringum sig og gæta sín að standa ekki á hjólabrautinni þegar beðið er eftir græna kallinum sé ætlunin að fara yfir gangbraut því ef þú gerir það þá færðu í besta falli yfir þig heila fjallræðu af hollenskum fúkyrðaflaum en í versta falli ertu einfaldlega keyrður niður. Og þetta er allt liður í því að umferðin gangi vel fyrir sig því allir þurfa að vinna saman og vita hverjar reglurnar eru og fara eftir þeim. En sem einstaklingur frá Íslandi sem vanur er þeirri umferðaróreglu sem þar ríkir kann þetta allt saman að koma spánskt fyrir sjónir og kann að taka smá tíma að venjast.
Ég fæ aldrei nóg af því að sitja á útisvæði veitingahúsanna og stúdera fólkið sem gengur hjá og ekki síður þá sem sitja með manni á næstu borðum. Er við sátum á einum slíkum stað fór ég að veita athygli ungu pari í tilhugalífinu á næsta borði. Þar voru í gangi fjörug samskipti en nokkuð einhliða því talandahliðin virtist að stærstum hluta koma frá stúlkunni á meðan eyrun á drengnum voru í yfirvinnu. Og þegar drengurinn gat skotið setningum að og stúlkan þurfti að hlusta gaut hún augun í allar áttir og athyglin virtist meira á umhverfinu en því sem drengurinn hafði að segja. Ég er alls ekki viss um að úr þessu verði varanlegt samband. Nema að þessum ágæta unga manni hafi verið gefinn ofurskammtur af þolinmæði í vöggugjöf og sá eiginleiki að getað skrúfað fyrir eyrun þegar þörf krefur.

Hér í Amsterdam er vaxmyndasafn madame Taussoe. Við lítum við þar einn daginn og hittum fyrir fræga einstaklinga svo sem Leonardo D’caprio, Freddie Mercury og Tinu Turnar svo að einhverjir séu nefndir. Gaman að hitta þetta fólk í raunstærð þó eingöngu se um vaxmyndir að ræða. En ótrúlega raunverulegar þó. En við tökum einnig túr í dýflissu þar sem farið var í myrka kjallara og við vorum dregin fyrir rannsóknarréttinn og sáum krufið lík af afbrotamanni þar sem kryfjandinn hafði viljað skoðað heila og innyfli slíks afbrotamanns í þeim tilgangi að athuga hvort munur væri á þeim og venjulegs borgara. Leikarar léku hlutverk þarna af innlifun og hólf úr hólfi fórum við og upplifðum hinar dökku miðaldir þegar rannsóknarrétturinn píndi fólk til játningar með öllum þeim tækjum og tólum sem til þurfti til að fá játningu upp úr saklausum borgurum sem ákærðir voru um galdra, guðleysi og annað það sem kirkjan og rannsóknarréttturinn kaus að saka þá um. Þar sem við hjónin erum orðin nokkuð við aldur og erfitt er kannski að hræða okkur með allskonar bellibrögðum í hálfrökkri og myrkri var gaman að fylgjast með skólahóp ungmenna sem var með okkur í þessu holli og skræktu og veinuðu við hverja brellu sem leikararnir léku af list sinni. Skemmtileg upplifun.
Við höfum, að sjálfsögðu þurft að fæða okkur á dvöl okkar hér og því farið á allnokkra veitingastaði hér í borg. Fórum eitt kvöld á „argentískt“ steikhús, virðist vera fjölskyldurekið. Pantaði rif og Sólveig pantaði steik sem er svo sem ekki í frásögur færandi en á neðra palli veitingahússins var mikill glaumur og gleði, hlátrasköll glumdu við og greinilegt að þar var glaðvær hópur á ferð. Þetta var ekkert að trufla okkur, það er bara gaman að fólk geti átt góða stund saman. Fyrir nokkrum árum vorum við einmitt hér í Amsterdam með hópi fólks, nánar tiltekið félögum í „Félagi Íslenskra parketmanna“ og áttum góða stund á veitingastað einum og þar var sko mikið skríkt og hlegið hástöfum yfir góðum mat og drykk. Þjónarnir voru himinlifandi með gestina og hversu mikið þeir átu og drukku og skemmtu sér og tóku jafnvel þátt í gleðinni. Er sami hópur var staddur á RUB23 á Akureyri fyrir nokkrum árum var sama gleði og glaumur í gangi enda þessi hópur einstaklega glaðvær og skemmtilegur en þá brá svo við að þjónarnir komu til okkar og gáfu okkur tvo kosti, að taka gleðina niður um nokkur þrep eða yfirgefa staðinn að öðrum kosti. Ég hef stundum hugsað til þessara atvika og hversu ólíkt var tekið á málum í þessum tilvikum. Mögulega ræður veðurfar þessara tveggja landa einhverju þar um, á Íslandi er þessi eilífðar drungi yfir öllu á meðan veðurfarið í Amsterdam er öllu betra og þú getur setið úti megnið af árinu og notið útiverunnar án þess að vera vafinn inn í þrjú lög af Álafossteppum utan um kuldagallann og samt verið skjálfandi í myrkrinu sem umlykur þig frá október til apríl. Held allavega að staða okkar norðarlega á hnettinum hafi verulega mikið að segja um hugarfarið. Annars er vert að minnast á einn veitingastað hér sem allir sem koma til Amsterdam ættu að heimsækja.
https://www.castellamsterdam.nl
Hér eru bestu svínarif sem þú færð. Og reyndar besta af öllum fjandans steikum og meðlæti. Og starfsfólkið á þessum stað fær ellefu í einkunn af tíu mögulegum. Annars verður að segja að allir sem við höfum haft samskipti við hér í borginni eru með eindæmum ljúft og hjálpleg fólk. Og ekkert mál að bjarga sér á enskunni hér því flestir ef ekki allir sem ég hef átt samskipti við hér tala ensku. Ólíkt nágrönnum sínum í Frakklandi.
Þegar upp er gert er Amsterdam einstaklega ljúft og skemmtileg borg sem algjörlega vert er að eyða nokkrum dögum í að skoða. Að rölta meðfram síkjunum, taka bátsferð, sitja á útiveitingahúsum og skoða hin fjölbreyttu söfn sem hér eru í boði er einstaklega róandi og gefur ferðamanni frá Íslandi mikið í sálina. Á morgun höldum við hjónin heim til landsins kalda í norðri og yljum okkur við þessa ferð okkar sem hefur verið einstaklega vel heppnuð utan þess að stytta þurfti hana vegna bilunar í farskjótanum en „shit happens“,,,, það er ennþá dagur á morgun. Og næsta ferð í hausnum.
Logi Már Einarsson
Logi tók ógrynni af myndum á ferðalaginu sínu sem hægt er að nálgast á heimasíðu hans á Facebook Smellið hér.