Gunnlaugur Sigurðsson er Dalvíkingur sem býr erlendis en hér á árum áður var hann sjómaður á Dalvík og er mikill mótorhjólamaður.      Gulli hefur átt mörg mótorhjól en núverandi hjól hans er af gerðinn Bigdog Bulldog en það eru sérsmíðuð mótorhjól svokölluð Custom hjól með stórum V motor.  Þegar hann flutti úr landi þá ákvað hann að setja hjólið á Mótorhjólasafnið á Akureyriog er það búið að vera þar gestum til ánægju í mörg ár.

En 2026 er árið sem Gulli ákvað að sækja hjólið sitt.   Og auðvitað var hjólið bara sett í gang.  Dyttað að svona helstu atriðum fyrir langferð. og brunað af stað heim til Portugals.     




Ferðasaga Gulla

Dalvík til Vendas Novas var 3326.5 km. Veðrið var þokkalegt frá Dalvík til Seyðisfjarðar, svo var farið með Norrönu til Danmerkur sú vegalengd mælist ekki með.

Þegar ég kom til Danmerkur þá reyndi á lagfæringar sem ég gerði við rafkerfið í hjólinu, það gerði nánast skýfall og allt blotnaði í gegn svo að síminn gafst upp innan klæða. Ég hafði fyrir nokkrum árum endurbyggt rafkerfið og vatnsvarið það. Eldri Big Dog mótorhjól eru þekkt fyrir dyntótt rafkerfi sem að auki þoldi illa raka, en eftir þessa eldskírn „Nóa flóð“ þá stóðst hjólið vatnsbaðið 100%.

Í Danmörku gisti ég hjá gömlum vin og skipsfélaga, þaðan fór ég til Kassel í mið Þýskalandi og fékk gistingu hjá vinum okkar Önnu.

Þaðan fór ég til Belgíu í gegnum Holland og fékk þar gistingu hjá frænku minni og hennar fjölskyldu. Eftir það notaði ég Booking appið og fann auðveldlega ódýra og góða gistingu og var hjólið í bílakjallara eða vöktuðu stæði hótela.

Í Frakklandi pantaði ég mér púða fyrir sætið enda sætið á hjólinu alls ekki hannað fyrir langkeyrslu, púðinn breytti öllu.

Portugal

Síðasta gistingin í Frakklandi var spes, þetta var gistiheimili rekið af „hippa“ sem var í fullu flæði með lífinu. Ég svaf í herbergi með kojum sem var allt í lagi, svona eins og á sjónum. Einn gesturinn bar af, hann var ástralskur brimbretta gaur sem var búinn að vera þarna í einhverja mánuði og búinn að tínast í 80‘s þroska sem var sennilega afleiðingar langvarandi ferðalags með reyk guðanna.

Á Spáni var síðasti gististaðurinn og mætti Anna Málfríður þar óvænt á mótorhjóli og hjóluðum við saman til Vendas Novas þar sem Askur og Mía biðu okkar og urðu fagnaðarlætin mikil eins og hundar einir kunna.