Jæja þá eru hjónin lögð af stað í mótorhjólaferð og mér reiknast til að þetta sé sjöunda ferðin síðan við keyptum hjólið 2019!
Dagbókarfærslur. Hólmars Erlu Svansonar og Eyrúnar Svövu Ingvarsdóttur.
16sept 2026
Eyrún.
Jæja þá eru hjónin lögð af stað í mótorhjólaferð og mér reiknast til að þetta sé 7.unda ferðin síðan við keyptum
hjólið 2019 Við erum svo heppin að vinir okkar í München, Michel og Regina, geyma hjólið fyrir okkur, án þeirra væri þetta flóknara. Að þessu sinni fór Hólmar á undan mér og ætlaði aðeins að ditta að hjólinu en sendi mér kvöldið áður en ég kom „hjólið er bilað!“ Nú jæja, plan B, ég sagði, leigjum okkur bíl, sem við gerðum, blæjubíl til þess að fá smá meiri mótorhjóla fíling, en ég segi sem betur fer varð það bara í einn dag, því hjólið komst í lag
Vitiði, að vera á hjólinu er bara allt önnur upplifun; frelsið, nálægðin við náttúruna og þurfa bara að taka eftir, hugleiða og njóta, þvílík forréttindi
Hjóluðum fyrsta daginn frá München til Passau, falleg borg þar sem 3 ár koma saman, Dóná, Inn, Ilz svo við skelltum okkur í smá siglingu. Svo var haldið í gegnum Austurríki til Tékklands þar sem fyrsti áningarstaður var Cesky Krumlov, vá ekkert smá falleg lítil borg, mælum með
Áfram var haldið og erum við núna í Jihlava í rólegheitum í áttina að Búdapest næstu daga. Hólmar velur „avoid highways“ en „curvy sveitavegi,“ svo við tökum öllu rólega að ósk barnanna okkar
Líkt og áður, vorum við bara búin að panta fyrstu nóttina, Hólmar gerir akstursplanið og við pöntum gistingu frá degi til dags. Hitastigið er fullkomið til að hjóla, 20-26 gráður
Lífið er ljúft![]()
Hólmar.
20 sept
Eyrún
Sjötti dagurinn í gær á mótorhjólinu og erum við komin í fallegu Búdapest þar sem við verðum í fríi frá hjólinu í 2 daga. Allt hefur gengið vel, búin að hjóla um 1000 km og Hólmar minn sérdeilis ánægður með „flöguna“ sem hann setti í djásnið og er alsæll með bætinguna
.
Við hjóluðum frá Check Kumlov til Jihlava þar sem við gistum á svo fallegum Airbnb gististað og áfram til Milolov, allt í Tékklandi. Þar færðum við okkur yfir til Slóvakíu, þar sem mér fannst nú frekar tilbreytingarlaust að hjóla, allt flatt og miklir akrar.
Svo eins og hendi væri veifað breyttist landslagið, við Ungverjaland, fjöll og gróður og stoppuðum við í afar fallegum bæ sem heitir Visegrád.
Nýjar upplifanir á hverjum degi og þessi ferðamáti gefur okkur tækifæri til að skoða staði sem ég veit að við myndum ekki heimsækja á bíl ![]()
Veðrið leikur við okkur og ekki yfir neinu að kvarta
22 sept
Eyrún
Já Búdapest er alveg dásamlega falleg borg og við nutum þess að skoða okkur um í sól og blíðu
.
Á sunnudaginn voru gengin rúmlega 30.000 skref með dansuppbót í lok kvöldsins en þið ykkar sem þekkið mig vel, vitið að ég verð fljót að stökkva á vagninn þegar Hólmar er búinn að finna dansstað![]()
– ég svo heppin að hann nennir að dansa við mig ennþá
.
Frá Búdapest var hjólað til Balatan vatnsins og til Héviz, norðvestur af Búdapest og erum við núna komin í lítinn bæ, Köszeg, við landamæri Ungverjalands og Austurríkis.
Búin að hjóla um 1600 km. og allt gengið að óskum, vart dropi úr lofti
24sept
Eyrún
Nú fer að síga á seinni hluta mótorhjólaferðarinnar
en við erum við búin að hjóla um 2000 km. og allt gengið vel, þakklát fyrir verndina og góða veðrið
Erum komin í austurísku alpana með tilheyrandi schnitzel og radler
Hjólaleiðin í dag var gífurlega falleg, fjöll, beygjur og skógar
Ökumaðurinn er snillingur og farþeginn er pollrólegur. Nægur tími gefst til að íhuga, fá nýjar hugmyndir og huga að framtíðinni. Ég hef talað upphátt inn í hjálminum, grátið smá, sem er hreinsun, og líka hlegið og enginn skiptir sér af
28.sept
Hólmar
Það hefur þróast mikið frá því að ég fór mína fyrstu ferð á eigin vegum til Evrópu 2017. Þá var byrjað með stórt kort og blýant… Eitt hefur þó staðist tímans tönn. Ég nota alltaf Scenic motorcycle navigation appið. Þar er hægt að flytja inn og út úr því á netinu, setja upp leiðir, miðla þeim og tracka alla leiðina. Með þessu móti get ég fundið hverja einustu eknu leið mína frá 2017, á hvaða hraða ég var, hvar og í hvaða hæð. Stundum kemur upp hvort við höfum hjólað í gegnum ákveðinn bæ í Ölpunum áður og þá er auðvelt að fletta því upp.
29.sept
Hólmar
29. Sept
Eyrún
Það telst auðvitað töluverð athyglissýki að setja inn margar myndir og statusa af ferðalagi hjóna um Evrópu😉. En ég veit að margir vina okkar hafa áhuga, líklega af því að ferðamátinn er óvanalegur, 60 ára gömul hjón á mótorhjóli, en örugglega líka áhugi á áhugaverðum stöðum sem gæti verið gaman að heimsækja🤔. Hinir skrolla niður🤪.
Frá síðasta status, hjóluðum við til Graz Austurríki þar sem við gistum í 2 nætur, skoðuðum þessa fallegu borg og keyrðum svo til Mariazell, fallegur lítill bær þar sem við lentum á „balli“ með lúðrasveit bæjarins😁 Dóluðum okkur í áttina að München í gegnum kalk-alpanna og Salzburg, alveg ótrúlega fallegt. Hjóluðum alls um 2750 km. í gegnum Þýskaland, Austurríki, Tékkland, Slóvakíu og Ungverjaland. Skemmtilegustu mótorhjóladagarnir voru tvímælalaust Austurríki og Alparnir en allt fallegt, hreint og þrifalegt alls staðar.
Eflaust velta einhverjir fyrir sér hvað svona gistingar kosta í 2 vikur🤔 ekki að við þurfum að réttlæta það neitt, en við erum að borga frá 65 evrum per nótt en meðaltali um 90-100 evrur, oft með morgunmat. Við erum ekki að ferðast á „high season“ og alltaf „last minute“ þar sem við pöntum yfirleitt bara fyrir næsta dag. Þar sem við sáum fram á að vera í burtu allan september meira og minna þá ákváðum við að bjóða upp á Stekkjarhvamm, sumarbústaðinn okkar, á Airbnb. Það hefur fengið rífandi viðtökur og þær nætur sem við höfum leigt þar eru meira virði en allt það sem við greiddum í gistingar á leiðinni okkar! Þetta er bara „WIN-WIN-WIN“ eins og Trump sagði 😁.
En nú er hjólið okkar komið í góða geymslu hjá vinum okkar og heimferð á morgun. Fyrst og fremst er ég einstaklega þakklát Hólmari mínum fyrir frábæra skipulagningu og öryggan akstur og sjálfri mér fyrir að hafa hugrekki til að ferðast með þessum hætti🏍️ Takk öll sem fylgdust með okkur og senduð okkur hvatningu og hrós🥰.












