Tómas Ingi Jónsson er einn af þessum Íslendingum sem fer reglulega í hjólatúra í Evrópu.  En hann er einn af þeim sem eiga mótorhjól í Evrópu í geymslu hjá vinum sem gerir það einmitt svo auðvelt að hoppa bara upp í flugvél og bruna út í buskann á hjólinu.      Það að fara með hjólið með ferjunni til Danmerkur kostar nefnilega allt að viku fram og til baka í skipinu og ferðalaginu innanlands. 

20.sept 2026

Þá er komið að fyrstu ferðaskýrslu.

Byrjaði á föstudaginn að láta skoða hjólið, hér hafa viðurkennd verkstæði þau réttindi. Eins lét ég setja ný dekk undir, svokölluð 20/80 dekk, þá er mynstrið þannig að hægt er að keyra á möl án þess að skrippla í allar áttir. Auka ljós og CarPlay skjár þar að auki. Gaman að því að á fimmtudagskvöldið borðaði ég á japönskum stað og að kveðjugjöf fékk ég gjöf með einhverskonar málshætti sem sagði að “soon you are going to make remarkable journeys “. Laugar og sunnudagur voru svokallaðir ferju dagar, ég var að koma mér á svæðið sem ég ætla að ferðast um. Náði að keyra tvö fjallaskörð sem ég var með á óskalista, San Bernardino sem var mjög skemmtilegt gamall vegur sem hlykkjast um landslagið, nefndur eftir ítölskum presti frá 15 öld. Hitt skarðið heitir Simplon og er allt öðruvísi. Mikil umferð og svakaleg umferðarmannvirki. Bæði þjóna þó sama hlutverki að tengja saman dali norðan og sunnan Alpana. Gisti svo í Crans Montana sem er skíðabær í Röhnardalnum. Er búinn að gista þar á sama hótelinu 6 sinnum fyrst 2012. (HM unglinga skíðum) nú brá hins vegar svo við að svaf illa og dreymdi illa m.a. atburði sem urðu í þarnæsta húsi síðustu áramót og tugir ungmenna létust. Það var átakanlegt að keyra framhjá barnum. Þar hafði ég drukkið bjór með vinum. (Þó ekki á neðri hæðinni) Dagurinn í dag átti að vera stuttur, það fór fyrir hornið þegar ég ákvað á leiðinni til Charmonix að skreppa upp að vatni, eða uppistöðulóni eins og svo mörg fjallavötnin hér eru í raun. Lac d’Emosson liggur í tæpum 2000 metrum og þar var ansi magnað útsýni yfir á Mont Blanc og fjöllin austur af því. Eyddi löngum tíma þar og hélt svo hraðbrautina til Grenoble en þar suðuraf er svæðið sem ég ætla að skoða .Vercor.

 


24.sept


Miðvikudagurinn byrjaði á ferjuleið.
  Þurfti að koma mér frá Verdon að næsta áfangastað. Military roads. Til að komast að fyrsta legg þurfti ég að keyra ansi leiðinlega hraðbrautarkeyrslu, keyrði m. á. A8 sem liggur meðfram Miðjarðarhafinu fram hjá ekki ómerkilegri stöðum eins og Monaco og Nice og lét eins og þeir væru ekki til. Búinn að skoða þá. Takmarkið var að komast á fjallveg sem kallast Alta via del sale. Gömul salt leið þar sem salt frá Miðjarðarhafinu var flutt inn í land. Leiðarinnar er fyrst getið árið 1209 þannig að hún er rúmlega 800 ára. seinna varð þetta mikilvæg leið herja við varnir og árásir alveg að seinni heimsstyrjöld. Það var magnað að þegar ég keyrði upp Tendedalinn sem liggur frá Monaco upp í fjöllin þà var maður ekki kominn nema nokkra tugi kílómetra þegar allt breyttist. Eins og að koma langt aftur í tímann yfirgefin þorp og hús í niðurníðslu. Þegar ég kom upp að byrjun leiðarinnar var komin þoka. Ég var pínu spældur að sjá ekki hernaðarmannvirkin en á móti fékk ég að sjá margt annað sem býr í þokunni. Gekk vel þó yfirborðið bæri sumsstaðar krefjandi. Merkilegasti kafli leiðarinnar er beygjan Tonante della boaria stórkostlegt mannvirki. . 40 km leið í það heila til Monesi, Gisti á Ítalíu í litlum bæ sem heitir Cesana Torinese. Hélt svo á fimmtudeginum til norðurs, áfangastaður var annar military road. Strada dell Assietta. Til að komast þangað þurfti ég að keyra inn á Pó sléttuna sem er eitt frjósamasta ræktunnarsvæði heims.

Vegurinn liggur allur yfir 2000 metrum og hæst ì 2574 m. Hann er um 40 km langur ekki krefjandi en malarvegur. Frægasti atburður tengdur svæðinu var battle of Assietta bardagi sem háður var 19 júlí 1747. Í Austurríska stríðinu. Þar börðust 7-15.000 austurrískir og ítalskir hermenn frá Sardiníu við 25-40000 franska hermenn og höfðu sigur.
Enn er haldið upp á atburðinn ár hvert. Eins mátti sjá að sagan er ekki öll gömul þvi minnismerki um tvo unga menn 19 og 20 ára sem létust í WW2 mátti sjá á leiðinni. Gisti svo í smábæ nálægt Sestriere á Ítalíu.

frh. 
Það var ekki gott í gærkvöldi þegar ég ætlaði að skrifa uppfærslu á síðuna þá steinsofandi ég með símann í andlitinu. Fór frá Grenoble á mánudaginn án þess að nokkur bæði að heilsa frú Vigdísi.

Vercor þjóðgarðurinn er suðvestur af borginni, hann hefur verið kallaður limestone/kalk virkið. Þar eru ótrúlega fallegar jarðmyndanir, fjöll, gil og hellar. Og svo það sem ég ætlaði mér að skoða. Balcony roads sem eru vegir sem eru meitlaðir í bergið. Combi Laval. Gorges du nan ofl. Það er eiginlega ekki hægt að lýsa þessu. Merki inn á myndirnar heitin. Svo kom að gistingu, þá eins og vanalega var ég svolítið seinn og þurfti að fara aðeins út í sveit á hálfgert vegahótel. Þar tók vertinn à móti mér, en þegar ég bað hann um bjór þá tók franska regluverkið við. Það var ekki hægt nema ég væri matargestur. Ekkert mál ég panta mat enda sársvangur. Nei sko, þú þarft að panta fyrirfram. Þannig að ég yfirgaf hálffullan matsalinn og keyrði fimm kílómetra í næsta bæ og pantaði úr matarvagni pizzu og núllara. Reglugerðaverkið var ekki eins stíft þegar ég borgaði gistinguna. Krotað í stílabók og þurfti ekki einu sinni að gefa upp nafn.

Þriðjudagurinn breyttist aðeins því ég uppgötvaði að fjallaleið sem ég ætlaði að fara á fimmtudag var lokuð nema reiðhjólum þann daginn. Ekki ætlaði ég stíga hjólið svo ég ákvað að spíta aðeins í og taka hana á miðvikudeginum.
Ferðalagið suður á bóginn gekk hægar en ég ætlaði. Ég þarf stundum að skoða allt of mikið.
Eitt var þó skemmtilegast, ég keyrði upp að pínulitlum bæ og hitti þar einn gamlan á fjórhjólinu sínu. Hann hafði búið þarna alla sína tíð. Hann gat bablað aðeins á ensku og notaði svo hendurnar til að klára það sem hann var að segja. Vissi af Íslandi, kuldanum og eldgosum.

Mount Ventoux er fjall 1909 m hátt sem gnæfir yfir Provence héraðinu eins og eyja úr hafi. Þar er magnað útsýni til allra átta. Fjallið er ein frægasta dagleið í Tour de France. Sennilega er það ástæða fyrir miklum fjölda reiðhjólafólks á tippnum. Hélt svo í næturstað við Lac de Sainte croix sem er fallegt vatn þar sem áin Verdon kemur fram í hrikalegum gljúfrum. Skoðaði það í fyrra. Langur dagur á hnakknum tæpir tíu tímar, aumur.



27 sept

Sunnudagurinn var hálfgerður hvíldardagur, ekki til að undirbúa sig undir ný verkefni heldur pústa eftir átök síðustu daga.
Ætlaði að renna upp í skarð sem heitir Colle del Nivolet og er fram og til baka ferð, vinsælt útivistarsvæði sem byggist eins og svo oft samhliða virkjanaframkvæmdum. Fór yfir tvö lítil skemmtileg skörð austan í fjallgarðinum. Þá datt ég inn í svaka partý.
Scorpion tuning club var með Bíladaga. Þar voru bílar og græju/hávaða keppni. Þeir voru ekki með Beltec frá Stebba Hall í Hljómver. Svo var líka svakalega gaman að fylgjast með Vespu og smáhjólakeppni þar sem menn voru búnir að eiga þokkalega við græjurnar.
 
Fór svo upp að Lagio Magiorre þar sem ég hitti Steina Tótu sem er með base þar núna og hjólar út frá henni. Hann hjólaði áleiðis með mér en ég gisti við Lake Como. Í gær fór ég svo “heim” til Feldkirch þar sem ég geymi hjólið.
 
Síðasta fjallaskarðið var Splugen 2217 m, þar er m.a. sagt að séu vatnaskil Rhine sem rennur til norðurs til Swiss og Pó sem rennur til suðurs til Ítalíu.
Ég fór í þessa ferð með nokkur markmið, keyra “Balcony roads” í Frakklandi og svo þessa fjóra frægu “Military roads” í Frakklandi og Ítalíu.
 
Búinn að undirbúa mig í ca 2 ár. Ég átti ekki von á að ég næði þessu öllu en veðrið lék við mig glampandi sól alla daga(nema þokan niður við Miðjarðarhafið í hálfan dag) ekkert kom uppá sem breytti áætlun. Ég er því alsæll en þreyttur,hef líka ákveðið að mótorhjólaferðir framtíðarinnar verði hefðbundnar. Vona að fólk hafi haft gaman að fylgjast með. Góðar stundir.                    



Fleiri myndir frá ferðum Tomma eru á facebooksíðu hans.