Fyrsti hluti.


Jæja, þá var komið að því: Að fara á mótorhjólinu um Evrópu í hálfan annan mánuð, en ferðin út með Norrænu, frá Seyðisfirði til Hirtshals á Jótlandi, hafði verið pöntuð í svartasta skammdeginu rétt upp úr áramótum.

Lagt var af stað austur miðvikudaginn 17. júní, í prýðis veðri og léttskýjuðu, en það átti eftir að breytast í rok, regn og skítakulda. Ísland kvaddi með stæl síðasta spölinn að ferjunni með tveggja gráðu hita… eða kulda eftir því hvernig maður horfir á það.

Samkvæmt ferðaáætluninni átti að byrja á því að aka frá Danmörku suður til Þýskalands og eltast þar við menningarlega staði, sem alla tíð höfðu beðið heimsóknar. Jóhannes, vinur (og Skagavinur), ætlaði svo að koma til München í lok mánaðarins. Þaðan var stefnan að hjóla saman í tæpa viku um fjallaskörð Alpafjallanna og leita þess á milli uppi óuppgötvuð kaffihús.

Að ferðalagi okkar félaganna loknu var meiningin að hjóla gegnum Tékkland og Sudetersfjöllin í Slóvakíu. Þaðan myndi leiðin liggja upp Pólland og síðan til Litháens Lettlands og Eistlands, vinaþjóða Jón Baldvins Hannibaldssonar, í von um að verða ekki fyrir rússnesk-úkraínskum drónum. Svo yrði siglt til Finnlands til þess að heimsækja Síbelíus, Alvar Aalto og Nókía. Þá tæki við sænska Eystrasaltseyjan Gotland (ef ferjupláss fengist) og ferðalag niður með austurströnd Svíþjóðar.

Ferðin myndi svo enda á heimsóknum til skyldmenna og vinafólks í Danmörku, áður en lagt yrði í hann heim aftu

Ferðbúinn heima á hlaðinu á Býlu

r með Norrænu 28. júli. Áfangastaðir og stopp voru óljós, sem og kílómetrafjöldinn. Svo átti bara eftir að koma í ljós hvernig þessi áætlun kæmi til með að standast.

 

Danmörk

Eftir komuna til Hirthals laugardaginn 20. júní var stefnan sett á smábæinn Engesvang. Erindið var að heimsækja þar danska vinkonu, Sofie, sem fyrir all mörgum árum var afleysingakennari í dönsku við FVA. Valin var nokkuð tímafrek leið til þess að skoða vestasta hluta Limafjarðarins. Daginn eftir lá leiðin til sonarsins, sem býr í bænum Skibby á Norður-Sjálandi, og þar var leikið við barnabörnin. Stutt þaðan frá býr frændi, sem einnig náðist að heimsækja.

 

Þýskaland og Alparnir

Styttan Boy (1774-1776) í Lübeck. Ljósmyndir: Flemming Madsen

Á upphafsdegi sjálfs Evrópuferðalagsins, lá leiðin suður Sjáland í ferjuna til Þýskalands með stoppi hjá vini frá námsárunum. Áfangastaðurinn að kvöldi var Lübeck, sem er ekki langt frá uppeldisslóðunum á Suður-Jótlandi. Eins og oft vill verða, þá var Lübeck í þá daga ekki í nógu mikilli fjarlægð að heiman til þess að ástæða væri til að þvælast þangað með rútu, nema á Santana tónleika. Nú lá hins vegar fyrir að þetta væri falleg, gömul Hansaborg og að þaðan kæmi að sjálfsögu Lübecker marcipanið. Eftir morgunmat í Lübeck var rölt nokkur hundruð metra yfir að gamla bænum, sem grunnur var lagður að á 13. – 14. öld. Áður en komið var í gömlu Lübeck lá leiðin yfir Puppenbrükke (Brú búðanna). Þar blasir við stytta af dreng sem snýr berum afturendanum að vegfarendum.

 

Að athuguðu máli kom í ljós að styttan (Boy, 1774-1746) er eftir listamanninn Dietrich Jürgen og á hann meðvitað að hafa látið sparlega klædda styttuna snúa bakhlutanum í átt að Danaveldi. Danir höfðu á sínum tíma ekki verið sérstaklega velkomnir hér en Lübecbúar sigruðu þá við Bornhöved í Holtsetalandi árið 1227. (Um þá sögu var aldrei fjallað í mínum sögutímum). Eftir sigurinn á Dönum var grunnurinn að velgengni Hansabæjarins lagður.

Gamli bærinn stendur á eyju og hana skilur að síki. Hinum megin síkisins stendur „Holstentor“ borgarhliðið, byggt ca. árið 1470. Þetta er ótrúlegt mannvirki sem óvinum reyndist ómögulegt að komast í gegnum. Þeir gátu líka átt von á að fá sjóðandi heitt vatn eða innihald kamartunnu í hausinn ef þeir kæmu of nálægt. Holstentor-hliðið er hluti af varnarvirki gamla bæjarins þar sem menn höfðu byggt afar þétt, svo pláss væri fyrir alla íbúana.

Íbúar Lübeck efnuðust mikið næstu árhundruðin og hin ýmsu stöðutákn risu upp á tveggja ferkílómetra flatarmáli eyjunnar. Má þar nefna ráðhúsið (sem er á mynjaskrá UNESCO) og a.m.k. fimm risastórar kirkjur auk þess sem kaupmenn reistu sér lúxusbyggingar. Frægust þeirra er líklega Buddenbrookhaus, sem var um tíma í eigu fjölskyldu nóbelsskáldsins Thomas Mann. Húsið er sögusvið einnar af þekktustu bókum hans, Búddenbrooks; hnignunarsaga kaupmannsættar, sem ratað hefur bæði á hvíta tjaldið og sjónvarpsskjáinn.

Í Lübeck bjó og starfaði nóbelsverðlaunahafinn Günther Grass, sem þekktastur er fyrir skáldsöguna Blikktrommuna. Hér er einnig að finna minningarsafn um fyrrum kanslara Þýskalands og friðarverðlaunahafa Nóbels, Willy Brandt, en hann fæddist hér í borg. 

Það hlýtur að þykja markvert að þrír nóbelsverðlaunahafar skuli tengjast Lübeck og vera til marks um menningar- og samfélagslegt mikilvægi borgarinnar.

 

Lübeckbúar komu víða við sem sæfarendur og verslunarmenn og voru þeir að sækja í íslenska skreið í samkeppni við Breta og Spánverja.

Blikktromman, mynd tekin af listaverkinu í Günther-Grass-Haus í Lübeck

Hansakaupmenn byggðu sér upp aðstöðu í Hafnarfirði og hafa líklega komið með salt til landsins og siglt til baka til Evrópu með skreið, sem þaðan var seld áfram. Þeir voru reknir af landi brott, þegar Danakonungur stofnaði einokunarverslun á Íslandi árið 1607.

Það var nóg af myndefni í Lübeck fyrir áhugasaman ferðalang; í kirkjum, söfnum og krúttlegum litlum götum. Hér hefur þess verið gætt að ekki risu upp ferköntuð, álklædd háhýsi og tekist hefur að blanda saman gamla tímanum með þröngum göngugötum og nútímalegri borg. Hér er að finna alþjóðlegar verslunarkeðjur, kebab veitingahús, MacDonalds og svo mætti lengi telja, án þess að eyðileggja heildarmyndina.

Styttan á Puppenbrúnni kom ekki í veg fyrir að undirritaður færi yfir síkið. Þá leitaði á hugann, hvort Dönum hefði verið sýndur afturendinn vegna sigursins við Bornehöved eða kannski vegna þess að þeir ráku Hansakaupmenn frá Hafnarfirði.

Eftir tvo daga í Lübeck var stefnan sett á Hartzen en þangað eru 350 km og meirihluti leiðarinnar var farinn á hraðbraut í 34° hita. Síðasti spölurinn lá um skemmtilega snúna fjallvegi en á þeirri leið virtist því miður skömmu áður hafa orðið slæmt mótorhjólaslys.

Endastöð dagsins var hótel að nafni Silbertanne (Silfurgreni) í litlum bæ að nafni Hohegeiss nálægt Braunlage. Braunlage er fjallabær sem virðist haldið uppi af skíðafólk að vetri til. Séð utanfrá var hótelið (gististaðurinn) ekki sérlega aðlaðandi og anddyri þess svona og svona, en herbergið var nýuppgert, hreint og með frábæru rúmi. Þjónustulundin hjá eigandanum og hótelstjóranum var svo mikil að við lá að hún væri um of. Ók hann undirrituðum t.d. á veitingastað í nágrenninu eins og ekkert væri sjálfsagðara. „Svona er þetta úti í sveitum,“ sagði hann og bauð mér far heim aftur.

Bærinn var frekar dauflegur fyrir utan þó nokkra umferð af mótorhjólum. Minnistæður er derhúfutöffarinn á litlum bíl með bumm-bumm-boxi, sem var að skutla unglingsstelpum, eitthvað heimilislegt við það. Frábrugið Íslandi var hitinn hér á miðnætti ca. 22° og blankalogn.

 

Hótel Silbertanne í Hohegeiss

Á hádegi fimmtudagsins lá leiðin út úr Hartzen-fjöllunum til borgarinnar Mühlhausen. Vegurinn þangað hlykkjaðist skemmtilega og lá um fjöldann allan af litlum, fallegum þorpum sem virtust hafa tæmst af mannfólki. Hér starfaði J. S. Bach sem ungur cantor og samdi fjölmörg af sínum frægustu orgelverkum. Að sjálfsögðu var ekki annað sæmandi en að koma við í Divi Blasii-kirkjunni og líta orgelið hans eigin augum. Annars er Mühlhausen rólegur bær og þar var lítið um að vera.

Frá Mühlhausen var ætlunin að halda til Eisenach næsta dag. Eitthvað hafði þá misfarist við pöntunina á næsta gististað og leiddi GPS-tækið mig þess í stað inn í gamla bæjarhluta borgarinnar Erfurt. Það var því ekki var komið við í fæðingarbæ J.S. Bachs.  Vonandi hefur hann ekki orðið of sár í gröf sinni.

Erfurt er höfuðborg Thüringen (Þýringalands). Íbúar borgarinnar eru um 214 þús. og svipar henni til Lübeck, með gömlum miðbæ sem byggðist jafnvel fyrir miðaldir. Þessi gamla borgarmiðja slapp vel við sprengiregn Englendinga í seinni heimsstyrjöldinni og húsin eru þess vegna að mestu leyti upprunaleg. Eins og í Lübeck og Mühlhausen er mikið um kosý stræti og sund með rósum og krúttlegum húsgöflum með blómapottum undir gluggum. Erfurt er þó dálítið frábrugðin þeim fyrri, því hér þeysist fólk um allt á reiðhjólum bæði raf- og súrkálsknúnum og sporvagnar hlykkjast um götur með miklum fjölda veitingahúsa. Mikið var um fólk á götum bæjarins þennan dag en hitinn fór upp í 36°. Í ánni sem rennur í gegnum miðbæinn höfðu þó nokkrir komið sér fyrir með garðhúsgögn. Hér voru fjölskyldur saman að kæla sig eða vinahópar þambandi bjór upp úr kippum sem fengu kælingu í vatnsrennslinu undir borðinu.

 

Hvernig kælir maður sig í 36° borgarhita?

Þegar þetta er samið er gluggi hótelherbergisins opinn og mikil fagnaðarlæti heyrast úr þorpinu fyrir neðan. Það fór ekki á milli mála að á HM í fótbolta var leikur milli Þýskalands og Equadors.

 

Í Erfurt var staðið með sínum mönnum á HM í fótbolta

Þjónustan var ekki sú ánægjulegasta á þessu á annars mjög fína hóteli. Á netinu höfðu verið auglýst bílastæði í boði en ekki var nokkur leið að fá að leggja hjólinu í læstum bílakjallaranum. Einn vísaði á annan og enginn reyndi að finna lausn. „Höfuðsmaðurinn frá Köpenick“ var greinilega fluttur til Erfurt, en í leikritinu sem er eftir þýska rithöfundinn Carl Zuckmayer frá 1931, flækist hinn atvinnulausi skósmiður og fyrrverandi fangi, Wilhelm Voigt, í vítahring þar sem hann fær ekki vinnu án vegabréfs og ekki vegabréf án vinnu.

Mig grunar að heimamönnum hér finnist ferðamenn pirrandi og þjónustan við þá óþörf. Þeir skilja hvort sem er peninginn eftir. Hugurinn hvarflar að því, hvort Íslendingar séu á sömu leið, þegar landeigendur innheimta bílastæðagjöld á stöðum þar sem ríkissjóður hefur splæst í bílastæðin. Erfurtborg var kvödd í 35° hita með blendnum tilfinningum vegna örfárra ekki-lausnarmiðaðra einstaklinga.

Næsti næturstaður var bærinn Hof, nálægt Bayreuth, í Bæjaralandi. Dagurinn fór í að hvílast og drekka mikið af vatni á litlu hótel við stöðuvatn. Ekki einu sinni fallegt umhverfi gat freistað til útivistar.

Hvíldardagur í Hof

Næsta morgunn var farin fljótlegasta leiðin til smábæjar (á þýskan mælikvarða) að nafni Deggendorf, sem stendur þar sem þveráin Ísar sameinast hinni miklu Dóná. Hitinn var 39° og lífinu bjargað með því að rennbleyta bolinn undir jakkanum svo uppgufunin virkaði sem kæling. Þetta er ráð frá mótorhjólaferð um Suður-Afríku. Þegar komið var á Hótel Donauhof var ástandið orðið heldur báglegt og næstu klukkustundirnar var bara legið út af.  Hótelið bauð hvorki upp á pall né sólhlífar og engar veitingar var þar að fá. Það var því ekki um annað að ræða en að ganga tíu mínútna spöl inn í Deggendorfar citycenter í leit að stað fyrir kvöldmat. Hugurinn bjóst við mannlausum bæ, en, nei, hér á laugardagskvöldi var iðandi líf. Þetta reyndist vera fallegur glansmyndabær með eldgömlum, vel við höldnum húsum og slatta af stórfenglegum kirkjum.

Bær vespunnar? Frá Deggendorf.

Ekki fór á milli máli að matstaðurinn sem varð fyrir valinu var hluti af rúnti bæjarins. Bíll eftir bíl ók framhjá, þ.á.m. all margir blæjubilar með boom-boxin á fullu og gefið í til þess að sýna hestöflin.

Beint á móti veitingastaðnum stóð Lamborghini sportbíll og það virtist auðvelt að spotta unga smarta parið sem gætu verið eigendur fararskjótans. Það kom því all verulega á óvart að sjá kall á áttræðisaldri koma röltandi og setjast undir stýri. Hann hagaði sér samt eins og unglingspiltur og gaf með tilheyrandi látum vel í niður steinlagða götuna. Það vakti líka athygli hve áberandi mikið var af ekta gömlum vespum í götumyndinni. Við sjónvarpsgláp þetta kvöld kom svo í ljós að dagurinn var formlegur áttugasti afmælisdagur Vespunnar.

Kvöldkyrrð við Dóná

 

 

 

Hugleiðing að lokum: Þýskaland virðist að ýmsu leyti hafa breyst frá því sem var, miðað við fyrri reynslu. Erfiðara reynist að ná sambandi við fólk; það er eins og covid og/eða símarnir hafi breytt einhverju. Ef til vill hefur undirritaður sjálfur breyst, nema hvoru tveggja sé.

 



Evrópuferðalag Flemmings sumarið 2026 – annar hluti

Fyrsta kafla Evrópuferðalagsins lauk í bænum Deggendorf í Þýskalandi, sem kvaddur var að morgni sunnudagsins 28. júní í steikjandi hita. Þessi hluti sögunnar er beint framhald af því.

Í austurrísku borginni Zell am See var blautt, í fyrsta sinn á ferðalaginu síðan á Íslandi. Hér er greinarhöfundur búinn að hitta Jóhannes.

Nú var ferðinni heitið til München, þar sem hitta átti vininn Jóhannes. Þaðan ætluðum við að hjóla í tæpa viku um nokkur hinna víðfrægu fjallaskarða Alpanna á mörkum Þýskalands, Austurríkis og Ítalíu.

 

Yfir fjallaskörðin fjögur:

Grossglockner Hochalpenstrasse, Staller Sattel, Passo Gavia og Passo dello Stelvio

Við félagarnir hittumst daginn eftir hjá BMW hjólaleigunni í München og rúlluðum svo af stað áleiðis til borgarinnar Zell am See í Austurríki. Að vetri til er borgin vinsæll áfangastaður skíðatúrista í austurrísku Ölpunum og á sumrin er þar áberandi mikið af stórum múslímskum fjölskyldum. Snjöllu markaðsfólk hafði nefnilega dottið í hug að bera Zell am See saman við himnaríkið sjálft. Í hugum múslíma er þar talið vera stórt og mikið stöðuvatn umkringt háum fjöllum og sú lýsing á einkar vel við um Zell am See. Hér er líka mun svalara en á heimaslóðum fjölskyldnanna, sem hingað sækja úr hitanum heima. Ekki spillir fyrir viðskiptalífinu að þetta virðist ekki vera fátækasta fólkið úr röðum múslíma.

Eftir morgunmat næsta dag lá leiðin út úr bænum í átt að hinu þekkta fjallaskarði, Grossglockner Hochalpenstrasse. Þar var komið að hliði og öll mótorhjól rukkuð um 36 evrur fyrir aðgang að veginum upp skarðið.  Hann var að mestu leyti breiður og vel merktur. Auk auk þess var þarna malbikað og því auðkeyrt og áskorunin í samræmi við það, þ.e.a.s lítil. Reyndar er þar undanskilinn mjór steinlagður vegur upp á hæsta toppinn þar sem tækifæri gafst fyrir mynd af landslaginu með Alpanna í bakgrunni. Leiðin er afar falleg og útsýnið magnað, en kapparnir tóku sér heldur of lítinn tíma til þess að stoppa og njóta, eins og verða vill, þegar fleiri eru saman.

Jói og Flems á toppi skarðsins Gross Glockner Alpenstrasse

Á Grossglockner var mikil umferð af alls kyns ökutækjum og vægast sagt nokkuð túristalegt. Kaffihúsið þarna uppi lagði sig heldur ekki fram við að bjóða upp á góðar veitingar, flestir gestanna kæmu jú hvort sem er ekki aftur.

Þegar yfir Grossglockner-skarðið var komið var stefnan tekin eftir fallegum fjallvegum á lítið fáfarið skarð að nafni Staller Sattel (Passo Stalle). Skarðið er á landamærum Austurríkis og Ítalíu og er vegurinn niður sunnan megin verulega brattur, þar að auki einbreiður. Umferðinni er því stýrt með einstefnuljósi, þar sem lokað er í 45 mínútur og opið í 15. Eftir gætilegan akstur niður skarðið voru 60 kílómetrar til ítölsku borgarinnar, Bolzano. Þetta var á háannatíma og hitinn kæfandi. Menn voru líka orðnir þreyttir eftir ótalmargar og krappar beygjur. Þrátt fyrir að kílómetrafjöldinn þennan dag hafi ekki verið voðalegur reyndist hann strembinn fyrir eldri menn á þungum hjólum.

 

Úr hótelglugganum blasti við mósaíkþak dómkirkju Bolzano

Næsti dagur átti því að vera auðveldur og ákveðið var að láta nægja að keyra til bæjarins Bormio við suðurenda fjallaskarðsinsPasso dello Stelvio. Auk þess virtist ekki sniðugt að leggja í Stelvio þennan dag vegna úrhellisrigningar og þrumuveðursspár. GPS- leiðsögutækið gaf upp ca. 170 km til Bormio og þar af fyrstu 40 km á hraðbraut. Eftir nokkurn akstur ogkaffistop var byrjað að rigna. Þá var farið í regngalla og ekið áfram í gegnum fjölda lítilla fjallaþorpa.

Þegar komið var fram hjá þorpinuPonte di Legno var vegvísir sem á stóð: Bormio 45 km. Leiðsögutækið gaf upp hálfan annan klukkutíma þangað en eitthvað fannst okkur bogið við þær upplýsingar miðað við vegalengd.Þrumuveður var skollið á og rigningin farin að færast í aukana. Eftir hvíldarstopp mjókkaði vegurinn skyndilega og varð einbreiður. Þar var ekið fram á nokkra hetjur á reiðhjólum sem púluðu upp snarbrattan fjallveginn í regninu.

Þá kom upp í minnið mótorhjólaferð með syninumá sömu slóðum fyrir all nokkrum árum. Vorum við á leið upp skarðið Passo Gavia, sonurinn á Kawasaki hjólinu sínu sem lét illa að stjórn við svo erfiðar aðstæður. Þegar við vorum komnir eitthvað áleiðis, harðneitaði hann að halda áfram ferðinni. Snérum við feðgar því við og ókum yfir Stelvio skarðið til baka á tjaldstæðið.

Var það nú orðið ljóst að GPS-tækið hafði einmitt leitt okkur Jóa yfir Passo Gavia á leið okkar til Passo dello Stelvio. Útskýrði það hve langan tíma ferðin tók en Passo Cavia-skarðið er frægt fyrir að vera erfiður kafli á leið Giro d´Italia hjólreiðakeppninnar. Að þessu sinni var ekki um annað að ræða en að drífa í þessu, við félagarnir vorum jú á hjólum sem gerð eru fyrir svona ævintýri. Af því mátti svo læra, að láta ekki tæknina alltaf ráða ferðinni.

 

Myndavélin lítur veðrið bjartsýnni augum en hjólandi ferðalangar

 

Fram undan voru endalausar 180° beygjur á einbreiðum, hálum vegi og ekki var nokkur leið að sjá hvort umferð kæmi á móti. Rigningin var orðin all rosaleg og hitastigið hafði lækkað úr 20° niður í 4°. Við það bættust vindkviður og var því komið sannkallað, íslenskt skítaveður. Skyggnið gegnum gleraugu og hjálmgler var varla til staðar. Undirritaður vildi nú halda áfram ogklára dæmið en félaginn hélt nú ekki og heimtaði kaffistopp á veitingastaðnum efst uppi í 2.652 metra hæð. Ökuþórarnir voru þá orðnir ískaldir og satt að segja nokkuð búnir á því, bæði á líkama og sál. Hanskar og skór rennblautir. Það var ekki fyrr eneftir heitt kaffið að kjánunum datt í hug að kveikja á handfangs- og sætishita lúxushjólanna áður en lagt yrði í hann aftur.

Vegurinn niður leit á köflum frekar út fyrir að vera árfarvegur en þjóðvegur. Ferðahraðinn var því líklega á köflum sá hægasti, sem hægt er að halda jafnvægi á mótórhjóli. Búið var að laga neðri hluta vegarins, svo niðurferðin gékk töluvert betur. Eigi að síður reyndist ferðin yfir Passo Gavia verulega erfið, svo ekki sé meira sagt. Þegar komið var til Bormio lentum við í basli með að finna hótelið, Albergo Gufo. Þegar það loks tókst var klukkan orðin 17:30 í stað 13:30 eins og GPS-inn hafði lofað okkur.

Eftir þrekraunir dagsins gerðum við svo vel við okkur með því fara á góðan veitingastað, þar sem pantaður var skrýtinnmatur. Undirritaður fékk sér t.d. súkkulaðilegnar grísakinnar.

Jói á götu í Bormeo sem er notalegur ítalskur bær við Passa dello Stelvio skarðið

Morguninn eftir var loks farið yfir fjórða og síðasta fjallaskarðið, hið fræga Passo dello Stelvio. Ferðin gekk vel um ótalmargar og krappar sveigjur og beygjur þrátt fyrir aragrúa af hjólreiðamönnum. Bílaumferð var mikil og fjöldinn allur var þarna af mótorhjólum, að sjálfsögu. Heilir á húfi vorum við komnir aftur í byggð um hádegið. Ekki langar undirritaðan þó að fara Stelvio-skarðið aftur, þvílíkt var umferðarkraðakið og leiðinjafnframtstórhættuleg.

Nú var stefnan sett til baka til München og lá leiðin í fyrstu gegnum margbrotið og fallegt fjallalandslag. Eftir að komið var á hraðbrautina var ekið ansi hratt (á íslenskan mælikvarða) þá ca. 300 km sem eftir voru.

Dagur í München

Daginn eftir var keyrt á milli mótorhjólagræjubúða í Münchenen lítið keypt. Um kvöldið var farið á ítalskan veitingastað með mjög svo skrautlegum húsráðanda. Hann söng t.d. hástöfum fyrir einn gestinn sem átti afmæli og var allt í öllu. Staðurinn bauð upp á frábæran mat og þá bestu Tiramisu, sem við höfðum bragðað.

Til Litháens um Austurríki, Tékkland, Slóvakíu og Póllandi

Passo dello Stelvio fjallgarðurinn og vegurinn um fjallaskarðið

 

Daginn eftir var komið að kveðjustund. Var henni fundinn staður ca. miðja vegu milli München og borgarinnar Passau, sem var næsti áfangastaður sjálfs Evrópuferðalagsins. Þangað ókum við saman á hraðbraut og við bakaríið, sem þarna var, var mikið grátið og knúsast. Eftir það sneri Jói við til München og undirritaður hélt áfram á rólegum sveitavegum.

Leiðin lá nú óvænt yfir landamærin til Austurríkis og var stoppað í sveitaþorpi að nafni Altheim. Fyrir utan þorpskrána sat ungt heimafólk og þampaði bjór í sumarhitanum. Hinum megin götunnar sátum við þau eldri undir sólhlíf með kaffibolla og sprudelwasser. Eins og svo víða á þessu svæði mátti sjá vel viðhaldin gömul hús og fallega kirkju. Athygli vakti að hér er enn að

 finna gamaldags póstkassa auk sjálfsala af sömu gerð og undirritaður stalst fyrir 60 árum til að kaupa úr sígarettur og sælgæti, fyrir pening úr veski mömmu.

Frá Altheim var ekið yfir ána Inn til Bæjaralands í Þýskalandi en áin myndar hluta af landamærunum milli Austurríkis og Þýskalands. Landslagið breyttist nú úr flötu landbúnaðarlandi í skógivaxið svæði og vegurinn hlykkjaðist notalegaáður en rennt var inn í úthverfi áfangastaðarins, borgarinnar Passau. Hótelherbergið, sem þar beið, var á efri hæð verslunarmiðstöðvar, umhverfið risastórt, steindautt bílaplan og gólfteppi hótelsins grútskítug.

Í Passau búa 53 þúsund manns og er nær fjórðungurinn háskólastúdentar. Í upphafi bjuggu hér Keltar og síðar Rómverjar, svo saga bæjarins er 2000 ára gömul. Miðbærinn stendur á eins konar hálfeyju þar sem árnar Dóná, Inn og Ilz sameinast og gengur borgin undir nafninu „Þriggja fljóta borgin“. Vegna staðsetningarinnar var Passau á miðöldum mikilvæg verslunarmiðstöð og þá helst fyrir salt. Auk þess var borgin fræg fyrir „Passau sverðin,“ sem voru vönduð sverð framleidd hér.

 

Í altmodisches Altheim. Sjálfsalar ef einhvern man eftir svoleiðis

Treglega gekk að fá leigubíl frá hótelinu og inn í miðbæ Passau. Þá var skapið orðið stirt, fordómarnir komnir á fullt og því slegið var föstu að borgin væri sjálfsagt ekkert merkileg, bara enn ein í stíl við Lübeck og Erfurt.

Þegar í bæinn var komið breyttist fýlan yfir hóteli og leigubílastandi í stórt bros, því Passau tekur stórkostlega vel á móti manni. Hér eru notalegirveitingastaðir út um allt og húsin í fallegum litum, aðallega bleikum, oft ríkulega skreytt. Mikið er um örmjóar götur og tengigöng þeirra á milli. Breiður, steinlagður göngu- og hjólreiðastígur liggur meðfram ánum Dóná og Inn í kringum miðbæinn. Borgarbúar og jafnvel heilu fjölskyldurnar sáust slappa hér af og unga fólkið var í líflegum samræðum þar sem virtist vera gamalllandgangur.Börn hjóluðu um á bryggjukantinum í fylgd forelda sem ekki kipptu sér upp við áhættuna. Á bryggjunni eru veitingastaðir, háskólabyggingar og söfn og við hana höfðu feikna langir fljótabátar, útbúnir sem lúxushótel, lagst að fyrir nóttina.

Í 30 gráðu hita í Altheim

 

Unga fólkið var uppdressað þetta laugardagskvöld og skemmtistaðir farnir að opna. Hvítur Roll Royce með niðurrúllaða glugga og boom- box á fullu sigldi fram hjá torginu við St. Stephen´s dómkirkjuna. Þar var beðið eftir leigubíl heim eftir gefandi kvöldi í miðbæ Passau.

Um sjöleytið morguninn eftir vakti hávaðasamur hópur karlmanna gesti hótelsins. Jók það enn frekar á slæmar tilfinningar gagnvart þessumóskemmtilega gististað. Því var farið snemma af stað og Passau kvödd.

Leiðin út úr borginni bauð upp á frábært útsýni þar sem vel sást hvernig árnar þrjár renna saman. Vegurinn tók síðan að hlykkjast gegnum bæverska skóga þjóðgarðsis á landamærum Þýskalands og Tékklands þar til komið var að tékknesku borginni Ceske Budejovice. Umferð var lítil og framvinda fararinnar góð og því var ákveðið var að aka lengra. Í bjartsýniskasti var pantað gott hótel nálægt bænum Trencin í Slóvakíu.  Aksturinn þennan dag endaði með því að verða rúmlega 500 km langur þvert í gegnum margbreytilegt landslag Tékklands. Þar af voru ca síðustu 100 km eknir í rigningu en hitastigið var nú orðið notalegt í fyrst sinn á ferðalaginu.

Eftir góðan nætursvefn í Trencin á uppgerðu óðalssetri, allt of fínu að mínu skapi, var haldið áfram í rigningu og stefna lögð á Pólland. Þegar þangað var var komið hafði stytt upp.

Vegna vegavinnu var umferðinni beint út af hraðbrautinni og þegar leit hófst að bensínsölu blöstu útrýmingabúðir nasista, Auschwitz-Birkinau, óvænt við. Ekki var annað hægt en að stoppa dágóða stund og minnast hörmunganna sem hér áttu sér stað undir stjórn þýsku nazistanna.

Dagsferðinni lauk í borginni Kielce í Póllandi en íbúar hennar eru rúmlega 190 þús. Kielce liggur ca. 200 km norður af Slóvakíu og hafði ég aldrei heyrt hennar getið. Þegar rölt var um í borginni til þess að soga að sér bæjarstemninguna varð fljótt ljóst að Kielce hefur setið eftir hvað uppbyggingu varðar. Tilfinningin var lík því að vera kominn aftur í tímann. Austantjalds íbúablokkir blöstu við og hús, sem lítt hefur verið haldið við, en ekki vantaði háreistakirkjubyggingu. Hvorki Rolls Royce, Lamburghini eða túristar sáust í götumyndinni.

Í miðbænum var að finna göngugötu með verslunum og svo virtist sem margir búðaeigendur snobbuðu fyrir útlenskum nöfnum. Hér voru búðir t.d. merktar Kopenhage, Manhattan og Las Vegas. Oft var ekki séns að sjá hvers konar starfsemi tengdist þessum nöfnum.Lítið var um að vera þetta mánudagskvöld og lífið virtist ganga fremur hægt hér. Það var eitthvað dapurlegt við stemninguna en líka eitthvað fallegt, mannlegt og aðlaðandi. Upplifunin varð svo myndræn að farið var á flug með myndavélina.

Fyrir utan að njóta borgarinnar þennan dag hafði hugurinn mikið snúist um hollan kvöldmat. Var því vandað til þegar kom að því að finna góðan matsölustað. Matseðill staðarins sem varð fyrir valinu bauð m.a. upp á hið ágæta gríska salat en það hafði all oft orðið ofan á í ferðinni. Nú var það hins vegar platti með grilluðu grænmeti sem freistaði, auk réttar sem á seðlinum hét „Fried parmesanchips“. Þetta virtist geta orðið spennandi og öðruvísi máltíð, ekki síst með með djúpsteiktum parmesan-osti í forrétt. Rétturinn sem þjónninn svo birtist með reyndist vera náfölar franskar með smávegis af rifnum osti og tómatsósu. Síðan kom grænmetið reyndist til mikillar undrunar djúpsteikt en ekki grillað og um það bil helmingur þess franskar úr sætum kartöflum. Með þessu var borin fram hvítlaukssósa. Holla máltíðin var sem sagt orðin að gamaldags frönskum með tómatsósu í forrétt og rauðum frönskum með dálítið af djúpsteiktu grænmeti og hvílaukssósu í aðalrétt. Eftir þessa matarupplifun var rölt heim á hótelið með magann kúffullan af grillmat og hugann af allt öðruvísi bæjarstemningu en hingað til í ferðalaginu.

Því skal skotið hér inn að handboltalið Kielce vann Champions League (Meistaradeild Evrópu) árið 2016. Nokkrir Íslendingar hafa leikið með liðinu þó ekki hafi það verið það árið. Einn þessara íslensku handboltamanna á að hafa sagt í viðtali, að þótt sér fyndist Kielce ekki sérlega falleg borg, hafi fólkið þar reynst honum vel. – Með hættu á að lenda í vandræðum skal þess getið, að það er nákvæmlega þannig sem undirritaður hefur það með Akranes: Ljótur bær með góðu fólki sem reynst hefur ofboðslega vel. Kielce gæti e.t.v. verið upplagt vinabæjarefni, kæru Akurnesingar!

Næsta dag voru eknir ca. 400 km yfir flatlendi fram hjá höfuðborginni Warszawa. Næturstaðurinn var sveitahótel nálægt borginni Bialystok, ekki langt frá landamærum Litháens. Hér bjó L.L. Zamenhof, sem þróaði Esperanto-tungumálið og er bærinn lítið þekktur fyrir annað. Það smárigndi alla leiðina og trassað var að fara í regngalla því vindurinn þurrkaði fötin jafn óðum. Síðustu 5 km voru reyndar eknir í meiriháttar dembu og blotnaði hjólakappinn nú alveg inn að skinni.

Fallega sveitahótelið, Korona Park Klewinowo, er staðsett í skóglendi langt úti sveit og þar var fámennt. Hér var gott að slappa af eftir marga daga á ferð. Á veitingastað hótelsins var einn réttur í boði og það á slaginu 17. Í ljós kom að eldaður hafði verið einn af þjóðarréttum Pólverja, Pierogi, og það bara fyrir undirritaðan. Var um að ræða eins konar kjötbollur vafðar inn í deig, sem bornar voru fram í soði með steiktum beikonteningum. Þetta var heldur fölur og bragðlítill réttur sem líktist mest tortellini-pasta fylltu með kjöthakki. Vonandi hefur kjötið ekki verið úr evrópuvísundunum sem eiga sínar síðustu vistarverur í skóginum kringum hótelið. Uppi á herbergi var slakað á við sjónvarpsgláp, þar sem Úkraínustríðið tók mikið pláss, eins og í öllum fréttamiðlum hér um slóðir.

Næsta dag lá leiðin til Kaunus í Litháenen þangað eru tæpir 300 km. Hitastigið var 12° í ekta íslensku roki og rigningu ogekið var á sveitavegi ÁN hjólfara sem fyllast af vatni eins og heima á Íslandi. Á leiðinni hvarflaði hugurinn að því hve mikið Íslendingar gætu öfundast út í vegakerfið í Póllandi. Jók það enn á sannfæringuna um að Ísland verði brátt fullgilt EU-land. Verður þá hraðbraut til Akureyrar forgangsefni ásamt lagfæringu á vaxtastiginu?

Þegar nálgast var landamærin sat þar á stalli storkur í hreiðri. Þann fugl hefur höfundur ekki séð síðan hann var barn á Suður-Jótland í Danmörku. Storkurinn kvaddi þannig fyrir hönd Póllands við landamærin yfir til Litháens áður ennýr kafli ferðalagsins hófst.

 


 

 

Lokakafli í ferðasögu Flemmings um Evrópu

Öðrum hluta Evrópuferðalagsins lauk þar sem Pólland kvaddi með regni og Litháen bauð góðan daginn með sömu rigningunni. Var þá kominn miðvikudagurinn 8. júlí og liðnar þrjár vikur frá upphafi ferðalagsins.

Rólegheit í Kaunas

 Vegaskiltin voru ennþá óskiljanleg með öllu, líkt og í Póllandi, en umferðarmenningin hafði versnaði til muna. Mikið var um framúrakstur á miklum hraða og algengt var að að sjá stóra vöruflutningabíla sikksakka milli akstursbrauta, jafnvel í þéttri borgarumferð.

 

Fyrsti áfangastaður í Litháen var Kaunas sem er næststærsta borg landsins með 300.000 íbúa. Kaunas var bráðabirgðahöfuðborg Litháens frá 1920 til 1940 en Pólverjar stjórnuðu þá Vilníus. Þveráin Neris sameinast hér lengsta fljóti Litháens, Nemunas, og aðalleiðin inn í borgina liggur til skiptis sitt hvorum megin við ána. Fyrir ókunnuga var því frekar flókið að rata að hótelinu sem staðsett var í gamla miðbænum.

 

 

 

 

Hótelið fundið

Kaunas er mjög svo snyrtileg borg með þessum klassísku gömlu húsum og risastórri kirkju með torgi framan við. Hér var ósköp rólegt í rigningunni þetta miðvikudagskvöld. Það hvarflaði að manni að stemningin væri ekki ósvipuð og í hliðargötunum kringum Strikið í Kaupmannahöfn, en mannmergðina skorti. Eftir nokkra leit tókst að finna veitingastað sem bauð upp á grænan mat, sem reyndist frábær. Þegar hugað var að göngu til baka á gististaðinn opnuðust skýin með hellidembu, svo Uber-leigubíll þurfti að redda þeirri ferð.

 



Næsti dagur hófst með að því að verða sér úti um þráðlaust hleðslutæki fyrir símann en tengi hans hafði blotnað nokkrum sinnum og gert leiðsöguvininn óvirkan. Hleðslutækið fannst en ferðalangurinn blotnaði vel við leitina. Ekki fékk rafmagnskallinn draslið til þess að virka og seinna kom í ljós að hleðslutækiðtækið var fyrir apple-armbandsúr í stað síma.

Eftir þetta basl í morgunsárið beið hjólamannsins 100 km langt ferðalag til Vilníus með símann í plastpoka. Leiðin var blaut og grámuskuleg og endaði í holóttum, steinlögðum götum við hótel Evolina í miðbæ Vilníus.

 

 

Vilníus með sína 590 þúsund íbúa hefur verið höfuðborg Litháens frá 1940 og er bæjarstæði hennar þar sem árnar Neris og Vilnia sameinast. Í gamla bænum blasir við fjöldinn allur af kirkjum og gömlum byggingum oftast skreyttum lágmyndum. Framhliðum þeirra hefur verið haldið við en baka til er oftast hrörlegt um að litast. Göturnar eru flestar steinlagðar og gangstéttirnar á köflum svo illa farnar að lítið mál er að finna holu eða skakkan hellustein til þess að detta um. Veitingahús teygja sig út á götur og ekki sást alvöru göngugata. Í hennar stað var voru mjóar, lokaðar götur með litlum búðum sem buðu upp á fjölbreytt vöruval.

 

 

Höfuðborgin, Vilníus

Gamli miðbærinn í Vilníus

 

Ýmislegt til sölu í Vilníus

 

 

Mjóar götur með bílum

 

Mjóar lokaðar götur

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Áberandi í götumyndinni eru rafknúnir „harmóníku strætisvagnar.“ Framan á þeim eru ljósaskilti sem sýna áfangastað vagnsins til skiptis á við stuðningsyfirlýsinguna „Vilnius©Ukraine.“ Bílaumferðin var þétt og hávaðinn frá sportpústkerfum bensínbíla og -mótorhjóla geysilegur. Svo virðist sem bensínfarartæki og hefðbundnar sígarettur ráði ennþá ferðinni frekar en rafbílar og rafrettur.  Já, hér var bensín- og reykingalykt, ó já.

 

Strætó

 

Hvarvetna og hvenær sem er sólarhrings sáust sendlar með stóran, bláan og kassalaga bakpoka merktan Wolt. Margir sendlanna voru með klút fyrir andlitinu og nokkuð skuggalegir ásýndum. Keyrðu þeir um á rafknúnum fatbikes með kolryðguðum keðjum svo heilsubót er ekki líkleg aukaverkun af starfi þeirra.

Ekki síst var algengt að sjá túristahópa með leiðsögn, fjölskyldur á gangi með börnin sín eða einstaklinga á rölti, eins og greinarhöfund. Allt fór fram í hinum mestu rólegheitum.

 

 

 

Hernám og frelsisbarátta

Wolt

Vilníus er í dag nútímaborg þar sem friður og frelsi ráða ríkjum, en þannig var það ekki á áratugalöngu tímabili. Eftir fyrri heimsstyröldina var Litháen lýðræðisríki þar til ca. 1938. Þá fannst Stalín að Litháar þyrftu alvöru stjórn af kommúnistískum toga og tók að beita þekktum rússneskum handtökuaðferðum við yfirtöku nágrannaríkja. Sér til aðstoðar fengu Rússar dyggan stuðning af illa menntuðum Litháum með háleitar hugmyndir um stjórnmál. (Er eitthvað kunnugt við það?) Sem andsvar myndaðist vopnuð andspyrnuhreyfing sem aðallega faldi sig í sveitum landsins. Fjölmennur rússneskur innrásarher notaði svo uppljóstrara, sem skráðu sig í andspyrnuhreyfinginuna, með þeim afleiðingum að á skall borgarstyrjaldarlegt ástand með hörmungar og óréttlæti sem fylgifiska.

Með Molotov-Ribbentrop-samkomulaginu (1939) skiptu Stalín og Hitler Póllandi og Baltneska svæðinu á milli sín en eins og kunnugt er stakk Hitler Stalín í bakið og yfirtók allt Pólland. 1942 réðust Nasistar svo á Litháen og ráku Rússana í burtu. Á þessum tíma voru margir gyðingar í landinu og var Vilníus stundum nefnd Jerúsalem Litháens. Nasistarnir voru stórtækir við útrýmingu gyðinga og yfirtóku líka eltingaleik Rússa við

Skelfilegur staður! KGB fangelsið

 andspyrnuhreifinguna.

Litháar settu traust sitt á Möltu samkomulagið 1943, þar sem Rossevelt, Churcill og Stalín komu sér saman um að landamærin fyrir stríð myndu standa eftir að Þjóðverjar töpuðu því. Rússar voru ekki á þeim buxunum og komu á stórtækum fólksflutningum á litháískum fjölskyldum, sem sendar voru allslausar í útleigð í fangabúðir í Síberíu. Á tímabili var ástandið heima fyrir það slæmt, að algeng sjón að morgni var haugur af líkum, sem Rússar skildu eftir á torgum og götum íbúum til aðvörunar.

Rússneska leyniþjónustan KGB hélt svo uppi ástandi ekki ósvipuðu og í Austur-Þýskalandi allt fram að falli járntjaldsins. Íslendingar viðurkenndu sjálfstæði Baltnesku ríkjanna 1991 en það var ekki fyrr en 1993 að síðustu fulltrúar KGB þorðu ekki annað en fara heim til sín.

Samantektin hér á undan byggir á heimsókn greinarhöfundar á „Museum of Occupation and Freedom Struggles.“ (Safn hernáms og frelsisbaráttu). Hér var aðal aðsetur valdhafa sem höfðu komið sér upp aðstöðu fyrir yfirheyrslur, pyntingar og aftökur sem gögnuðust bæði Rússum og Nasistum. Átakanlegt var að ganga tröppurnar niður í kjallarann þar sem hundruð manneskja gengu síðustu skrefin áður en þeim var lesin stutt yfirlýsing með dauðadómi þeirra. Þar voru þau umsvifalaust skotin í höfuðið. Líkum þeirra var svo rennt niður þar til gerða braut og út um gat. Safnið varpar heldur betur ljósi á hvers vegna Baltnesku ríkin með Natóþátttöku sinni geri allt sem þau geta til þess að lenda ekki í klóm Rússa aftur.

Eftir ferðina á frelsissafnið var tekið langt og þarft kaffistopp til þess að melta hörmungarnar sem hér áttu sér stað.

 

Kaffisopi eftir KGB skelfingu

Nútímalist og miðborgarlíf

Eftir kaffisopannvar litið inn í nútimalega byggingu sem hýsir nýlistasafnið MO. Hér vekja listamenn ímyndunarafl áhorfenda og hvetja þá til að skoða umhverfi sitt frá nýjum og óvenjulegum sjónarhornum. Eytt var drjúgum tíma þar við ýmis verk sem ferðalangur skildi mismikið í en það hreinsaði kollinn svolítið eftir skelfingarnar í frelsissafninu.

 

 

 

Nútímalistasafnið MO

 

Næsti dagur fór í langa göngu gegnum bæinn að Gediminas-turninum sem er hluti af varnarvirki borgarinnar. Turninn er frá miðöldum og einn af aðaláfangastöðum túrista í Vilníus. Tröppurnar upp í turninn eru orðan vel slitnar og þrepin ansi mörg, en upp var farið og myndir teknar yfir borgina og sveitirnar í kring.

 

 

 

Það er umhugsunarvert, hve Vilnius vann á við að staldra þar lengur við, þrátt fyrir bílaumferðina, hávaðann, tóbakslyktina og hættuna á að verða fyrir Wolt sendli. Stemninginn í borginni var afslöppuð og notaleg og maturinn góður og vel útilátinn. Verðlagið reyndist ekki mjög hátt þó, ekkert mál væri að eyða hér peningum ef maður legði sig fram við það.

 

Horft yfir Vilníus

Breytt áætlun, hvað þá?

Glöggur lesandi hefur líklega tekið eftir því hve umfjöllunin um Vilníus hefur verið um margt ýtarleg. Dvölin í höfuðborginni varð nefnilega mun lengri en upphaflega stóð til, átti að vera sólarhringur. Ástæðan fyrir þessu var að ferðaáætlun hjólakappans snarbreyttist föstudagsmorguninn 9. júlí. Þegar kveðja átti Vilníus og allt var klárt til að halda leiðangrinum áfram um Eistrarsaltslöndin þrjú, var fararskjótinn búinn að leggjast í djúpt dá. Rafmagnslykillinn náði engu sambandi við hjólið sem stóð fast í öryggislás á bílastæðinu bak við hótelið. Allt var reynt og ekkert gekk, þrátt fyrir rafmagnsþekkingu ökumannsins, leiðbeiningabók hjólsins, Youtube og gerfigreind. Hið rúmlega ársgamla hjól var greinilega þreytt eftir ca 4.500 km akstur og svaf áfram djúpum svefni. Dagurinn fór því í að bíða eftir sjúkrabíl sem kom um kvöldmatarleytið og flutti hjólið á BMW-spítalann í Vilníus. Hjólalæknarnir þar, sem væntanlega vissu meira en gerfigreindin, voru þá farnir í helgarfrí og ferðalangur kominn í óviljandi helgarstopp í Vilníus. Til allrar hamingju reyndist starfskonan í móttöku hótelsins með afbrigðum hjálpsöm og útvegaði hún gistingu áfram fyrir fyrrverandi hjólakappann með alls konar tilfærslum.

 

Hjólasjúkrabíll

Beðið frétta af hjólinu

Helgin var svo notuð til þess að sættast við orðinn hlut og gefa sig á vald aðstæðna, fara á söfn, skoða sig um og borða góðan mat, eins og þegar hefur komið fram.

Mánudagurinn eftir þessa ágætu helgi fór í að bíða frétta af hjólinu. Þegar þær loks bárust höfðu annmarkar á upphaflegri bilunargreiningu komið í ljós, svo enn var von. Greinarhöfundur fór þá á staðinn en það var ekki fyrr en yfirmenn fóru að sparka í viðgerðamanninn að lokaúrskurður kom. Forrita þyrfti nýjan lykil hjá BMW í München og sækja þar varahluti. Jafnvel þótt heppnin yrði með í spilinu væru líklega allt að tvær vikur í að viðgerð lyki! ÓK!  Bílaleigubíll varð niðurstaðan með hugmynd um að aka honum til Riga á meðan beðið væri eftir hjólinu.

 

 

Á bíl um sveitir Litháens

Lagt var af stað út á land í átt að eina hótelinu innan seilingar sem var með laust herbergi. Eftir beygju af aðalþjóðveginum versnaði

Storksungar bíða eftir froskalæri

vegurinn snarlega og endaði með löngum malarkafla sem hlykkjaðist um skóglendi, akra og órækt. Í þeim fáu húsaþyrpingum sem fyrir augu bar voru hús sem ekki virtust hafa fengið viðhald á þessari öld. Þau voru ýmist úr múrsteini eða með tréklæðningu en í kring um þau var aftur á móti snyrtilegt. Slátturaóbótar hafa greinilega gert innrás í sveitir Litháens. Mikið var af fuglum og fljúgandi skordýrum í loftinu og hér var meira af storkum en greinarhöfundur hafði á æfi sinni upplifað. Þess má geta að hann ólst upp á Suður-Jótlandi í Danmörku á tímum þar sem storkar voru ennþá hluti af fuglalífinu. Þessir stóru og tignarlegu fuglar sátu á hreiðaköntum og gáfu hungruðum ungum sínum æti og allt um kring sáust þeir á jörðu niðri leitandi að froskum og smádýrum.

 

 
Vegna vegavinna lengdist ferðalagið stöðugt og akandi lengst úti í sveit fór glorhungruðum ökukumanninum að lítast illa á blikuna. En viti menn, eins og fyrir galdur lá leiðin nú skyndilega eftir örmjóum sveitavegi að þokkalegum stöndugum bæ að nafni Anyksciai. (Já, reyndu að bera það fram.) Þar leiddu smágötur að dýrustu hótelgistingu ferðarinnar og veitingastaður þess var meira að segja opinn fram eftir. Það má því segja að helsta áhyggjuefni ökuþórsins hafi verið gert til skammar.

Vegna óvissu um framhald ferðarinnar varð nætursvefninn á þessu fína heilsulindarhóteli með panflautum, böðum og reykelsi ekki upp á marga fiska. Löngunin til þess að halda áfram í bíl og stressandi biðin eftir hjólinu varð til þess að í morgunsárið var tekin ákvörðun um að fljúga heim til Íslands við fyrsta tækifæri. Eftir fjölmargar símhringar til BMW-verkstæðanna í Vilníus og á Íslandi, tveggja ferjufélaga og tryggingafélags var pantaður flugmiði daginn eftir.

Sveitaþorp

Aftur til Vilníus

Á leiðinni til baka í átt að Vilníus var pöntuð gisting á ódýrasta hóteli ferðarinnar. Aftur lá vegurinn um sams konar fátæklegar en fallegar sveitir með fullt af storkum. Í einum bænum, ef bæ skyldi kalla, var storkahreiður á nánast fjórða hverjum ljósastaur.

Síðustu og ódýrustu nótt Evrópuferðalagsins var gist á hótel Bistrampolio Manor, rúmlega 120 km frá Vilníus. Það reyndst vera herragarður byggður um 1850. Umhverfið er fallegt, hér er tjörn með fiskum sem sáust naga þörunga á yfirborði vatnsins og fimar svölur veiðandi flugur svifu rétt fyrir utan glugga herbergisins. Í kringum bygginguna er stór lystigarður skrýddur rósabeðum og höggmyndum. Þar er einnig lysthús eins og í Bergman bíómynd.

 

„Auðskiljanleg“ list við óðalssetrið Bitrampolio

Gistiaðstaðan var skráð sem tveggja stjarna og stóð vel undir því. Ekki var gengið frá klóssetpappírsrúllunni með því að brjóta upp á pappírinn að hótelhætti, sturtan brotnaði við notkun og hávaðasuð barst frá einnhvers konar skáp frammi á gangi. Veitingastaðurinn kom aftur á móti verulega á óvart með einni af betri máltíðum ferðalagsins, þriggja rétta og fyrir 30 evrur. Rúmið var svo gott, að kallinn, vel saddur, afslappaður og ánægður með að vera á leiðinni heim, steinsofnaði þrátt fyrir suðið frammi á gangi. Hótel Bistrampolio kvaddi að morgni með hundfúlum stork á þakhryggnum sem beitti háværum nefsmellum og árásarlegri hegðun þegar nær var komið til myndatöku. Hann var líklega bara þreyttur eftir að hafa fært mannfólkinu í sveitinni kornabörn alla nóttina.

 

Fúll storkur kveður

Rauðrófusúpa á Bitrampolio

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Eftir morgunmat á Bistram óðalssetrinu var keyrt til Vilníus, mótorhjólatatöskurnar og allt „mitt

Langt ferðalag tekur sinn toll

habengút“ sett af hjá BMW umboðinu. Það átti síðan að fylgja hjólinu heim en umboðið ætlaði að sjá um flutninginn á því til Íslands að viðgerð lokinni. Bílaleigubílnum var skilað á Vilníusflugvelli og nokkrum klukkustundum síðar var sest upp í flugvélina til Riga og þaðan haldið áfram til Íslands.

Þetta var tveimur vikum fyrr en ferðaáætlun Evrópuferðarinnar hafði lagt upp með. Spurning er, hvort ferðinni verður ekki bara haldið áfram að ári.

Í lok þessa þriðja hluta ferðasögu minnar langar mig að þakka Gyðu eiginkonu minni fyrir að koma upphaflegum texta á prenthæft form.

 

Allar ljósmyndir: Flemming Madsen

Flemming Madsen

Skessuhorn.is