Mótorhjólasafnið hefur í nokkur ár smíðað númeraplötur á gömul hjól.

Ef þú átt fornhjól þá eru Fornmerki skráningarmerki sem mega fara á ökutæki sem skráð eru fornökutæki og eru með fyrsta skráningardag fyrir árið 1989.
Gerð og áletrun fornmerkja skal vera í samræmi við aldur ökutækis.

Platan kostar 10000kr
Til að panta plötu er best að senda póst á Gunna Möller gmoller68@gmail.com
Þar þarf að koma fram gerð og árgerð hjóls, fast númer, skráður eigandi, á hvaða skoðunarstöð þú villt sækja plötuna og að sjálfsögðu hvaða númer á að smíða.

Áður en hægt er að afhenda plötu þarf að vera búið að sækja um númerið hjá Samgöngustofu og sækja um að mega nota fornmerki á viðkomandi hjól.
Við sendum svo plötuna til Samgöngustofu til samþykktar og þeir senda hana til skoðunnarstöðvar til afhendingar.
Umsókn um fornmerki á ísland.is