Það er mikil upplifun að ferðast um landið á mótorhjóli. Ferðamenn upplifa landslag og umhverfi með allt öðrum hætti en á bíl enda
kjósa sífellt fleiri ferðamenn þennan valkost yfir sumartímann.

 

Ásbjörn Björgvinsson og Hildur Guðnadóttir í sól og sumaryl á Siglufirði.

Ásbjörn Björgvinsson, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, er nýkominn úr skemmtilegu ferðalagi þar sem hann var farþegi aftan á mótorhjóli tilvonandi eiginkonu sinnar, Hildar Guðnadóttur, og í samfloti við annað par. „Vinum og ættingjum leist nú mátulega á þessa hugmynd Hildar. Ég hef enga reynslu af akstri mótorhjóla auk þess að vera talsvert stærri  og þyngri en hún en ég gat ekki skorast undan svo spennandi áskorun.“ Tilefni ferðarinnar var brúðkaupsferð vinahjóna þeirra,
Magnúsar Arnar Stefánssonar og Esterar Halldórsdóttur sem giftast í dag, laugardaginn 28. júlí. Ásbjörn fékk lánaðan galla og fjárfesti í skærappelsínugulum mótorhjólahjálmi svo hann sæist vel.

Önnur upplifun sem farþegi

Ferðalagið hófst í Reykjavík 8. júlí og lá leiðin fyrst út á Reykjanes og þaðan til Þorlákshafnar eftir nýja Suðurstrandarveginum. Fyrstu nóttina var gist í Vestmannaeyjum og snemma morguns haldið áfram austur á bóginn. Við Skóga byrjaði að rigna eins og hellt væri úr fötu. „Leiðin frá Skógum að Skaftafelli var því ansi blaut, en fyrir utan þennan spotta rigndi ekkert á ferðalagi okkar.

Á suðurströndinni upplifði ég líklega skemmtilegustu og sterkustu upplifun ferðarinnar. Þá fann maður alla lyktina frá náttúrunni. Það var megn brennisteinsfýla frá jökulánum, lykt af nýslegnu grasi, ilmur frá smárabreiðunum og skítalykt af túnum í bland við rok, rigningu, kulda og sól svo eitthvað sé nefnt.“ Þegar hópurinn var kominn að Jökulsárlóni var sólin komin á
kreik og sól og blíða og heitir pottar biðu blautra ferðalanga að Hoffelli í Hornafirði. Þaðan var haldið austur á firði og gist á Mjóeyri við Eskifjörð, síðan á Egilsstöðum og svo við Þistilfjörð. Ferðalangarnir lentu í miklu hvassviðri í Öxarfirði á leið sinni til Húsavíkur en dagurinn endaði á Akureyri, heimabæ Ásbjarnar. Á mánudeginum var haldið út Eyjarfjörðinn inn í Skagafjörð og endað á Hvammstanga þar sem gist var síðustu nóttina áður en haldið var til Reykjavíkur eftir níu daga ferðalag.

 

Margir frábærir veitingastaðir

Ásbjörn segir það vera mikla upplifun að ferðast um landið með þessum hætti. „Við fórum af stað með það í huga að kaupa alla þjónustu á leiðinni enda ferðuðumst við mjög létt. Við heimsóttum safnið að Skógum og fengum kærkominn kaffisopa á Steinasafni Petru. Á Eskifirði fundum við frábæran veitingastað í gömlu pakkhúsi rétt við Mjóeyri. Selársdalslaug við
Vopnafjörð stendur alltaf fyrir sínu og það var dásamlegt að vakna við ilminn af nýbökuðum pönnukökum á Ytra Álandi. Á Smyrlabjörgum í Suðursveit fengum við glæsilegt kvöldverðarhlaðborð og frábært grillhlaðborð á Gauksmýri en við heimsóttum líka nýja veitingastaðinn hans Völla Snæs á Húsavík sem var virkilega góður.“ Þrátt fyrir að ferðalagið hafi verið mikið ævintýri er Ásbjörn ekki farinn að skipuleggja aðra ferð. „Ég er meiri golfari en mótorhjólamaður. Fyrir mig var þetta ferðalag einstök upplifun en eitthvað sem ég þarf ekki endilega að gera aftur. Þetta tók í skrokkinn og maður var oft aumur í rassinum á kvöldin eftir langan dag. Það þurfti því oft að strjúka á mér rassinn á kvöldin.“

Fréttablaðið  28.07.2012