Tían, bifhjólaklúbbur Norðuramts, stóð fyrir hópkeyrslu í minningu Heiðars Þ. Jóhannssonar, sem ávallt var kallaður Heiddi, í blíðskaparveðri á Akureyri í dag. Hann hefði orðið sjötugur á miðvikudaginn.
Bifhjólamenn hittust á Ráðhústorginu á hádegi og lögðu síðan af stað í hópkeyrslu um bæinn klukkan 13.
Tóku ökumenn á 52 hjólum þátt í hópkeyrslunni sem endaði við kirkjugarðinn á Naustahöfða þar sem krans var lagður á leiði Heidda.
Tían bauð upp þá í kaffi og kökur í Mótorhjólasafni Íslands á Krókeyri.
Baldvin Ringsted flutti stutt ávarp áður en Sniglarnir afhentu styrk upp á 500.000 krónur handa Mótorhjólasafninu á Akureyri.
mbl.is 18.05.2024
mynd Þorgeir Bald.