Guðmundur Bjarnason Tæknifræðingur er búinn að vera á margra mánaða ferðalagi um suður Ameríku.
Hefur hann rúllað yfir 40000km vítt og breitt um álfuna súðurm.a  á syðsta veg áfunar og þvæst út um allt.
Vonandi fáum við góða ferðasögu frá honum þegar hann er búinn að jafna sig eftir ferðina. 

En hér er smá úrdráttur sem ég fann hjá honum á facebook. en þarna er hann staddu í Sandiago Chile

Janúar 6 til 14  2026


Sandiago


Það var byrjað á að skipta um olíu og síðan voru legur í framgjörðinni skoðaðar en ekki skipt um.

Hérna eru annars menn að koma og fara en allir á mótorhjólum
Kani sem kom fyrir nokkru með hjólið, KTM 500 Christini AWD í frumeindum í flugi, setti það saman og reyndi að slá hæðarmet, gekk ekki en komst uppí 6640m. Tók hjólið í sundur og fór með grind og mótor í frumeindum heim til USA.

  • Hjartveikur Kani á KTM 690, fór heim í fylgd hjúkrunarfræðings. Hjólið er á leiðinni til Flórída.Fékk hjúkrunarfræðinginn til að mæla blóðþrýstinginn, hann hefur ekki verið svona lágur í um 10 ár.

    Cristini Framdrifsbúnaður er ekkert sáraeinfallt dæmi.

  • Tveir frá Þýskalandi á KTM 690 og Husqvarna 701, taka 2 til 3 mánuði og síðan til baka til Þýskalands
  • Landflótta Ukraínubúi á Honda 300 er búinn að vera á ferðalagi frá stríðsbyrjun.
  • Breti á Royal Enfild 450 á Chile númeri 2-3 mánaða hringur og síðan aftur meira eftir ár.
  • Túnis/Þjóðverji á Voge 300 á Chile númeri ferðast um S-Ameriku og selur síðan hjólið
  • Ungur Hollendingur að kaupa Royal Enfild 450 á Chile númeri
  • Ísraeli á BMW 1200 og Frakki á AfricaTwin halda í suður.
  • Frakki á AJP eins og mínu, hjólaði í austur frá Frakklandi og sendi hjólið frá S-Kóreu til Chile, er búinn að hjóla um 45þ km. Hann er búinn að fara með hjólið niður á höfn til að senda það til Hamborgar.
  • Glaður Argentínu maður á Suzuki Vistrom hann ætlaði norður átt held ég en hann talaði enga ensku.

Fór með hjartveika Kananum til að láta útbúa umboð til að hægt sé að koma hjólunum úr landi. Þetta er gert hjá lögfræðingi og fórum við í Uber þar sem þetta var í rúmlegar 2 km fjarlægð. Þetta tók langan tíma þurtum að bíða í 2 klukkutíma, en gekk.

Fór að láta skipta um rennilás á buxum, var í 2,7 km göngufjarlægð og þar var útlitið heldur verra en hér austar í borginni. Stór fiskmarkaður með fiskfýlu og annarsstaðar hlandlykt af heimilislausum. Saumakonan var í 25 hæða íbúðarblokk með húsverði.
Annars er stundum tekin göngutúr á mornana áður en að það hitnar en venjulegar er um 35°C yfir hádaginn.
Einnig voru skoðuð 2 söfn……