Að fá öflugasta fjöldaframleidda hjólið miðað við þyngd í prófun er eitthvað sem gerist ekki á hverjum degi. Blaðamenn DV hafa þó undanfarið haft mikið að gera við að prófa öflug og skemmtileg tæki og er R1 engin undantekning á því. Þetta hjól hefur verið lofað í erlendum fjölmiðlum og nú er komið að því að sjá hvort það sama verður ekki upp á teningnum hérna.
__________
Það var um daginn að Merkúrmenn hringdu og buðu blaðamanni bílablaðs DV í prófun á nýja Yamaha R1 hjólinu. Við vorum fljótir að slá til því þetta hjól hefur fengið mikla umfjöllun í erlendum blöðum og tímaritum að undanförnu og fengið þar góða dóma fyrir afl og aksturseiginleika. Um leið óskaði maður sér þess að til væri alvöru kappakstursbraut til að prófa svona græju því oft getur reynst erfitt að finna hentuga vegi fyrir hjól sem er
með sömu aflhlutföll og Formúlu 1 kappakstursbíll.
R1 hjólið er alvöru græja í samanburði við hvaða hjól sem er, 150 hestöfl á 177 kiló er það mesta sem nokkur framleiðandi hefur nokkru sinni geta boðið og ekki skemmir fyrir að i boði er mesti hliðarhalli sem hægt er að fá, hvorki meira né minna en 58″. Þú þarft í raun og veru að vera atvinnumaður í mótorhjólakappakstri til að geta náð öllu út úr þessu hjóli sem hægt er að fá.
Tækniundur
Vélin í R1 er líka eitt tækniundur og hönnuðir Yamaha lögðu mikið á sig til að geta grennt hana, m.a. með því að færa kúplinguna fyrir ofan gírkassann til að minnka bæði breidd og lengd mótorsins og fengu þannig einnig stysta hjólabil sem hægt er að fá í jafn stóru hjóli. Nýja hjólið er líka komið með 6 gíra kassa í staðinn fyrir gamla 5 gíra
kassann í YZF1000R sem var ekki mjög kappakstursvænn. Það er ekki hægt að segja annað en að keyra þetta
hjól sé ást við fyrsta gír. Þrátt fyrir stutt hjólhaf er fjöðrunin löng og skemmtleg og tekur við öllu sem er í veginum. Sérstaklega eru 41 millímetra „UpsideDown“ framdemparamir öflugir og svara vel, þ.e.a.s. þegar framdekkið er á
annað borð á götunni. Vegna léttleika hjólsins og hrikalegs aflsins þarf ekki annað en að snúa upp á rörið hvar
sem er yfir 4000 snúningum og það er komið á afturdekkið. Maður þarf eiginlega að passa sig á að vera ekki of fljótur að gefa því inn út úr beygju því þá er það snöggt að missa gripið á framhjólinu. Maður þarf eiginlega að skipta um akstursstíl á þessu hjóli; þar sem maður áður bremsaði snemma og gaf í fyrr út úr beygjunni þarf núna að bremsa miklu seinna og passa sig á að gefa ekki í of snemma.
Svarar strax fyrir sig
Bensíngjöfin er líka óvenju næm og minnsta hreyfing á henni svarar fljótt fyrir sig. Það er eftirtektarvert hvað hjólið er fljótt upp á hvaða snúningssviði sem er og þegar slegið er af er það fljótt að vinna sig niður. Ég var farinn
að leika mér að því að láta stafræna hraðamælinn hitta beint á tugatölur, svo fljótur er maður að finna inn á hana.
Það tekur smástund á finna inn á réttu ásetuna, þægilegast er að faðma voldugan bensíntankinn og á miklum hraða minnkar loftmótstaðan til muna ef olnbogamir eru settir þétt upp að honum. R1 tekur dálitinn vind á sig,
sérstaklega beint á hlið, eins og ég varð vel var við í rokinu sem var meðan ég hafði hjólið. Samt hefur vindurinn ekki áhrif að framan og um leið og maður hneigir aðeins höfuðið færðu furðumikið skjól út úr lítilli vindkúpunni. Þó að R1 krefjist þess að setið sé í fósturstellingu þreytir það mann ekki eins mikið og mörg önnur kappaksturshjól, líklega vegna þess hvað ásetan hentar vel manni af mínum stærðarflokki (183 cm). Reyndar fannst mér að ég þyrfti að hreyfa hægri fótinn heldur mikið til að finna afturbremsuna og gírskiptingin er líka dálítið gróf. Það hefur
reyndar verið lagað í nýjustu hjólunum með því að lengja arminn um einn sentímetra. Mælaborðið í R1 er þægilegt aflestrar og stafrænn hraðamælirinn er fljótur að svara viðbragði bensíngjafarinnar. Einnig er vegmælirinn góður og hægt að velja um nokkra möguleika, til dæmis fer hann sjálfkrafa yfir á sérstaka stillingu þegar 50 kílómetrar eru eftir á tankinum, eins konar stafrænn varatankur. Verðið á Yamaha R1 hjólinu hefur líka lækkað síðan í fyrra og nú er hægt að fá það á 1.480.000 kr. sem er lækkun um rúmar hundrað þúsund krónur. Miðað við hvað maður fær fyrir peninginn er ein og hálf milla svo sem ekki mikið. Má í því dæmi nefna að á keppninni á Mön rúllaði þetta hjól upp tífalt dýrari hjólum og vann allt sem hægt var að vinna.
-NG
DV 1999









