Dakar 2026
17 jan – leið 13 lokadagur

Á þessum lokadegi Dakar 2026 er heildarlengd 141km og þar af 105km á sérleið.
Liggur fyrri hlutinn í gegnum fjallendi með þröngum beygjum, svo kemur smá ferjuleið að ströndinni og síðasti leggur liggur með ströndinni og inní Yanbu borgina.
Ricky Brabec(Honda) sem vann sinn 13 sérleiðasigur í gær fór af stað kl.09:30 og er reiknað með að fyrstu keppendur verði um klukkutíma að klára leið dagsins. Ef vel gengur þá gæti Ricky fagnað sínum 3ja Dakar sigri en hann sigraði 2020 og 2024 en fyrir þessa leið var hann 3m43s á undan sínum helsta keppinaut Luciano Benavides(KTM).
Liðsfélagi Ricky Tosha Schareina(Honda) er eiginlega of langt í burtu til að eiga möguleika nema að eitthvað stórvægilegt gerist hjá þessum tveim.
Bónustími hefur spilað stórt hlutverk í ár og ef Ricky heldur forustu alla leið þá á hann möguleika á 1m23s í frádrátt frá tíma dagsins.
Eftir 21km var Ricky með 17sek forskot á Luciano þegar bónustími hafði verið dregin af sem segir manni að Luciano var að hjóla mun hraðar.
Eftir 43km var aðeins farið að draga á milli þeirra, munurinn orðin 28sek en Luciano var hraðari og eftir 65km var munurinn komin niður í 13sek og munið að Ricky er að tikka inn bónustíma sem búið er að draga frá.
Eftir 86km var munurinn aftur komin í 22sek svo þar var nokkuð ljóst að þarna var verið að berjast til síðasta metra.
En svo gerðist það sem mátti ekki gerast!!!
Ricky las rangt í leiðarbók og fór útaf leiðinni, valdi ranga slóð og er farin að tapa tíma svo Luciano á séns á að ná honum á síðustu metrunum, ótrúlegur slagur þarna á síðustu metrum og smávægileg mistök sem breyttu stöðunni rétt í blálokin.
Þeir urðu svo að bíða aðeins við marklínuna til að fá staðfestingum á tíma sínum, getið rétt ímyndað ykkur taugaspennuna þar.
Eftir smá stund kom niðurstaða, Luciano Benevides vann með minnsta mun í sögunni, aðeins 2 sek skildu á milli þeirra.
Þegar niðurstaðan var ljós þá var honum vel fagnað https://www.facebook.com/reel/1452182113281867
Luciano Benavides vann því sinn fyrsta Dakar sigur og sinn fyrsta sigur í alþjóðlegri keppni, verðskuldaður sigur og unnið vel fyrir honum.
Er þetta 3 Dakarverðlaunin sem koma í fjölskylduna því bróðir hans vann 2021 og 2023.
“ég gaf allt í þetta í dag, ég hélt fast í drauminn, hætti aldrei að trúa að þetta væri möguleiki. Sagði fólkinu mínu að það væri ennþá möguleiki. Þegar það voru rétt um 3km eftir þá villtist Ricky inná rangan slóða en ég valdi réttan og ég sá hann og varð hann að snúa við til að komast aftur inná réttan slóða því það var ekki möguleiki á að krossa yfir, þarna var minn möguleiki komin og ég gaf allt í þessa síðustu kílómetra. Ég hugsaði “ég sagði við alla í ræsingunni að þetta yrði mitt Dakar” og hér er ég. Ég hugsa núna til bróður míns sem vann með 43sek mun og núna ég með 2sek, það er ótrúlegt! Draumur minn er orðin að veruleika.
Tæknilega séð þá taldi ég að ég myndi ekki ná Ricky, hann er klár í þessu landslagi, í gær á vegslóðunum hugsaði ég að ég væri búin að gera allt rétt og mitt besta og var sáttur við það, ég vildi klára á toppnum eftir velheppnaða keppni. Vá það er ótrúlegt að hugsa til þess að eftir 2 vikur og 8000km að munurinn sé 2 sekúndur”.
Og hann fagnaði með stæl https://www.instagram.com/reel/DTm2Z4hCP4J/?utm_source=ig_web_copy_link&igsh=MzRlODBiNWFlZA==
Tosha Schareina(Honda) hefur aldeilis verið að standa sig vel og hefði klárlega verið að berjast um fyrsta sætið ef hann hefði ekki gert klaufamistök þegar hann var að fara af stað útúr bækistöðinni í fyrra maraþoninu,
fékk hann þar 10mín refsingu sem sat í honum það sem eftir en klárar samt á palli.
fékk hann þar 10mín refsingu sem sat í honum það sem eftir en klárar samt á palli.“fyrir fáum árum þá var ég að berjast fyrir því að komast í Dakar keppni, standandi svo hér núna á palli virkar soldið einsog eðlilegt en auðvitað verður maður ða horfa á þetta raunhæft. Ég hef barist fyrir þessu alla tíð svo ég er vissulega ánægður, líka ánægður að við náum 2 Honda á pallinn. Refsingin sem ég fékk sat soldið í mér en það eru nokkur atriði sem ég þarf að bæta hjá mér, stilla betur saman lestur leiðarbókar og hraða”.
En það voru fleiri hraðir í dag, Edgar Canet(KTM) sem fór af stað 31mín eftir Ricky gaf allt í þetta í dag og sigraði sérleiðina 6sek hraðari en liðsfélagi sinn Luciano og er þetta því hans 3 sérleiðasigur í Dakar 2026, vel gert hjá þessum unga manni.
Þessi ranga beygja hjá Ricky í dag kostaði hann rúmar 3mín og kom hann 10 í mark í dag 3m28s á eftir fyrsta manni og þá 3m22sek á eftir Luciano, mjög svekkjandi á síðustu metrum en útá þetta gengur rallið, ekki endilega sá hraðasti sem vinnur heldur sá sem ratar hraðast.
Skyler Howes(Honda) hafði það að markmiði að hjóla hraðar en Daniel Sanders(KTM) og komast uppfyrir hann í stigaröðinni, náði hann því vel í dag, var hann rúmum 7mín fljótari í dag og situr því í 4 sæti í heildina.
Það mátti ekki muna mjög miklu að Adrien Van Beveren(Honda) næði einnig upp fyrir Sanders en það munar ekki nema rúmri mín á þeim yfir heildina.
Það verður að taka hjálminn ofan fyrir hörkunni í þessum körlum, Daniel búin að hjóla í 3 daga með brotið viðbein og brákað bringubein en hann er ekki sá fyrsti sem klárar keppnina brotin, það eru mörg dæmi um það í gegnum árin að menn hafi klárað úlnliðsbrotnir handarbrotnir, jafnvel öklabrotnir.
Þetta sýnir mikla hörku og þrautseigju, kannski ekki alltaf skynsamlegt en læknar í þessum keppnum og liðslæknar vakta þá vel og myndu aldrei hleypa þeim af stað ef þetta væri lífshættulegt.
En það er takmarkað hvað þeir mega taka af verkjalyfjum til að trufla ekki einbeitingu svo þarna er bitið rosalega fast á jaxlinn og klárað.
Hérna má sjá hann renna létt yfir sögu leiðarbókarinnar en það hefur margt breyst í árana rás https://www.facebook.com/reel/1227529705990652
En baráttan milli framleiðanda hefur verið hörð, eftir 19 ára sigurgöngu hjá KTM þá braut Honda þá sigurlínu fyrir nokkrum árum og í dag erum við að sjá fleiri merki koma sterk inn en það eru samt þessi 2 merki sem mest áberandi.Á topp 10 í lok þessa ralls eru 5 Honda(þar af 2 á palli), 3 KTM og 2 HERO en fleiri tegundir raða sér svo í sæti 10 til 20.
Gaman að sjá svona mikla flóru í þessu.
Á þessum 2 vikum eru keppendur búnir að hjóla um 8000km og þar af um 5000km á sérleiðum.
Fljótasti maður var 49 klukkutíma að hjóla þessa 5000km og síðasti maður er skráður með 157:34:40 en inní því er rúmir 98 klukkutímar í refsingu svo þarna eru sirka 59 klukkutímar á hjólinu á sérleiðum.
Bakvið svona miklar refsingar eru yfirleitt ástæðan að viðkomandi hefur þurft aðstoð til að komast útaf leið en fær að taka þátt áfram fyrir reynsluna.
25 keppendur á hjólum náðu ekki að klára keppni af ýmsum ástæðum.
Hugleiðing mín varðandi bónustíma.
Persónulega finnst mér þetta bónustímadæmi vera leiðinlegt, get skilið að fyrsti maður fái eitthvað fyrir að opna leið en að þeir sem hanga aftan við hann innan 15sek séu líka að fá er bara rangt finnst mér, það sést á að liðsfélagar sem voru að opna leið voru að hinkra eftir félaga sem svo gæti farið að tikka inná bónustíma, ekki mjög keppnislegt finnst mér.
Tímar eftir leið 13:
1. Edgar Canet KTM 49:03
2. Luciano Benavides KTM, +00:06
3. Tosha Schareina Honda, +00:47
4. Michael Docherty KTM +00:50
5. Adrien Van Beveren Honda +01:15
6. Skyler Howes Honda +01:46
7. Bradley Cox Sherco +02:49
8. Ignacio Nacho Cornejo HERO +03:11
9. Martin Venture Honda +03:18
10. Ricky Brabec Honda +03:28
23. Daniel Sanders, KTM +08:10
Lokastaða eftir leið 13:
1. Luciano Benavides KTM, 49:00:41
2. Ricky Brabec Honda +00:02
3. Tosha Schareina Honda, +25:12
4. Skyler Howes Honda, +56:41
5. Daniel Sanders KTM, +01:03:15
6. Adrien Van Beveren Honda, +01:04:46
7. Ignacio Nacho Cornejo HERO +01:39:50
8. Ross Branch HERO +02:49:15
9. Toni Mulec KTM +02:57:18
10. Preston Campbell Honda +03:01:55
En þar með er Dakar 2026 lokið og ég hef þá lokið minni umfjöllun um það þetta árið.
Dellan í mér er svo mikið að fylgjast með og langaði að deila því smá með ykkur líka.
Ég vona að þið hafði haft gaman af þessu hjá mér.
Dakar kveðja
Dóri Sveins
___________________________________________________________________________________________

Dakar 2026
16 jan – leið 12
Leið dagsins er 718km í heildina og þar af 311km á sérleið,
Rúmlega helmingur leiðarinnar er um grýtt svæði og sandur inná milli, þetta hentar mörgum og þarna eru meiri möguleikar á að vinna upp tíma því hraðinn er minni og ekki hægt að vera bara í botngjöf.
Eftir svona langt rall er orðin mikil þreytta og orkan að verða búin https://www.facebook.com/reel/1594149735171003
Nú sér fyrir endann á þessum 2 vikum í sandi, grjóti, hita og löngum dögum en þetta er síðasta alvöru dagleiðin í Dakar 2026 því síðasti dagurinn er alltaf stuttur, það er svo spurning hvort taktíkin sem Ricky Brabec(Honda) var með í gær, þ.e.a.s að hægja vel á sér rétt í lokin svo hann myndi ræsa aftar.
Menn hafa soldið gaman af tölum í kringum Dakar, Skyler Howes(Honda) sem náði í sinn fyrsta sérleiðasigur í Dakar þetta árið en það var hans 81 dagleið sem hann hjólar í Dakar keppnum, hann er 125 einstaklingurinn sem vinnur sérleið og sá 9 frá Ameríku sem gerir það.
Eins og staðan er í dag þá eru það líklega Ricky Brabec(Honda) eða Luciano Benavides(KTM) sem standa munu á efsta palli, það munaði ekki nema 23sek á milli þeirra í gær en auðvitað er ennþá dagurinn í dag og svo stubbur á morgun eftir.
Það tekur nú örugglega soldið í að hjóla svona í sandinum.
En það var Skyler Howes(Honda) fór fyrstur af stað í morgun á undan liðsfélaga sínum Adrien Beverner(Honda).
Luciano Benavides(KTM) sem var fjórði af stað í dag náði fljótlega liðsfélaga sínum Edgar Canet(KTM) en hugsanlega var að skipulagt svo þeir gætu hjólað saman því þannig ná þeir að styðja hvorn annan og hjálpast að rata og geta haldið meiri hraða. Luciano er efstur fyrir þessa leið en Edgar er dottin úr keppni um toppsæti eftir dekkjavesen á leið 5
Liðsfélagarnir Ross Branch og Nacho Cornejo á Indversku HERO hjólunum eru ekki búnir að leggja árar í bát þrátt fyrir að hafa ekki unnið sérleið þetta árið. Eru þeir í 7 og 8 sæti fyrir þennan dag og eru nokkuð sáttir við stöðuna en vissulega vildu þeir vera ofar en sjáum hvað gerist.
Neels Theric(Kove) mætti ekki við rásmark í morgun en hann hefur staðið sig vel á mörgum leiðum en einnig verið óheppin en eins og hann sagði í morgun “við erum ungt merki og hver keppni fer í reynslubankann til þróunar og eflingar á hjólinu. Við erum búnir að sanna að hjólið er hraðskreytt og gott en þurfum að vinna aðeins betur í endingu”.
Eftir 45km var Luciano Benavides hraðastur með 25sek forskot á Ricky Brabec en eftir 92km hafði þetta víxlast, þá var Ricky orðin 22sek á undan Luciano.Taktíkin hjá Ricky frá í gær var greinilega að skila sér því eftir 134km var forskotið orðið 1m24sek enda með skýr för til að elta en það var Adrien Van Benever(Honda) sem opnaði leiðina meirihluta dagsins.
Ef horft er í fyrstu 10 hjólin eftir þessa 134km þá eru 2 tegundir með yfirburðir, 5 Honda og 4 KTM en svo laumast 1 HERO hjól þarna með.
Eftir því sem lengra leið sást hvað Ricky var að græða á þessum leik sínum, Luciano lenti í smá tíma að opna leiðina sem tefur mikið meðan Ricky heldur fullum hraða og eftir 198km þá var hann komin með 3m27s forskot og þar með komin með forskot yfir heildina.
Þegar Skyler Howes(Honda) fór af stað í morgun í 5 sæti yfir heildina var stefnan sett á að vinna meiri tíma af næsta manni sem er Daniel Sanders(KTM) en það munaði 10m48sek á milli þeirra en Daniel er slasaður og fer því hægar yfir en ella.
Eftir 184km þá hafði munurinn á milli þeirra komin í 4m47sek og ef allt gengur eftir hjá honum þá er séns á að það verði Honda í 3 af 4 efstu sætum.
Ricky Brabec(Honda) sigraði sína aðra sérleið í Dakar 2026 í dag með 3m43sek forskot á Luciano Benavides(KTM) en tími þessar tveggja er mun betri en næstu manna, hörku keppni þarna í gangi en með þessum sigri er Ricky komin með 3m20sek forskot yfir heildina.
Þetta þýðir að hann opnar á morgun síðustu leiðina en hún er reyndar ekki nema 105km á sérleið en það þarf vissulega að klára hana til að vinna.
Stefnir hann á að ná fullu húsi í bónusstigum en hann gæti unnið sér inn 1m23sek á leiðinni.
“ég veit ekki hvort það var leikplanið sem var svona gott en ég átti góðan dag, gat pressað hratt í allan dag en Luciano hjólaði vel í dag. Ég gaf mig allan í þetta og náði fljótlega í fyrsta manni til að ná að telja í bónusstigum, hann fór 6mín fyrr af stað en ég svo ég var því búin að ná því þegar ég nálgaðist hann með bónusstigunum. En það er einn dagur eftir og oft talað um að hann sé auðveldur en ef ég stend mig vel og passa mig þá verð ég hamingjusamur”.
Luciano Benavides(KTM) sagði í dag “ég byrjaði að pressa strax og náði Edgar mjög fljótt en eftir 150km var ég komin í þá stöðu að opna leiðina og þetta var ekki auðveld leið til að opna, ég tapaði einhverjum tíma við það en ég er sáttur því ég gaf mig 100% í þetta. Við höldum í vonina alveg til enda sem verður erfitt, það er ljóst, leið dagsins var erfið en við sjáum til á morgun.
Daniel Sanders(KTM) er að síga niður listann yfir heildina sem er ekki skrítið hjólandi með brotið viðbein og brákað bringubein en hann er staðráðin í að klára og ná sér í stig í heimsmeistarakepninni.
“allt var verra í dag en í gær, undirlagið svo miklu erfiðara, lausagrjót og svo lækjarfarvegir. Þetta var kvalarfullt, leiðin var tæknileg og skorin og það er svo erfitt að hjóla svona með annari hendinni, ég datt einu sinni og reyndi að detta ekki á veiku hliðina. Ég er líka aumur í öllum skrokknum og sérstaklega þar sem ég er að beita meir öðruvísi til að reyna hlífa vinstri hliðinni en takmarkið var að klára daginn og það tókst, ég er að tapa fullt af tíma en stefnan er á að klára rallið. Það er það minnsta sem ég get gert til að þakka ölllum þeim sem standa á bakvið okkurkeppendur, öll vinnan sem þau eru búin að leggja í þetta svo við getum keppt hér en það verður hamingjustund þegar ég sé marklínuna á morgun”.
Skyler Howes(Honda) sem fór fyrstur af stað eftir sigur gærdagsins en það leit svo út fyrir að hann myndi ekki klára rallið í da, hann tók eftir því eftir 100km að stígvélin hans voru orðin útötuð í olíu og þá tók hann eftir að allt hjólið var útatað, það virtist sem að öll olía hefði farið af mótornum og það voru 200km í eldsneytisstopp og olíu, varð hann að taka sénsinn, hugsaði að hann mætti ekki kúpla og reyna láta hjólið hitna sem minnst, engin afturbremsa því hún var löðrandi í olíu, þetta var rosalegt ástand. Svona er Dakar í hnotskurn, maður lentir í vandamálum og þarft að yfirstíga þau. Ég er búin að lenda í þeim nokkrum en er rosalega ánægður að hafa sloppið í gegnum daginn en þetta er ekki búið fyrr en það er búið”.
Tímar eftir leið 12:
1. Ricky Brabec Honda, 3:19:01
2. Luciano Benavides KTM, +03:43
3. Tosha Schareina Honda, +12:58
4. Adrien Van Beveren Honda, +13:07
5. Michael Docherty KTM, +17:11
6. Martim Ventura KTM, +18:51
7. Toni Mulec KTM +19:01
8. Ross Branch HERO +22:42
9. Preston Campbell Honda +22:46
10. Mason Klein HOTO +23:48
15. Daniel Sanders, KTM, +35:22
Heildarstaða eftir leið 12:
1. Ricky Brabec Honda, 48:08:12
2. Luciano Benavides KTM, +03:20
3. Tosha Schareina Honda, +27:51
4. Skyler Howes Honda, +58:21
5. Daniel Sanders KTM, +58:31
6. Adrien Van Beveren Honda, +01:06:57
7. Icnacio Nacho Cornejo HERO 01:40:05
8. Ross Branch HERO +02:48:15
9. Toni Mulec KTM +02:55:16
10. Preston Campbell Honda +03:01:28
Dakar kveðja
Dóri Sveins
_____________________________________________________________________________________________
Dakar 202615 jan – leið 11
Heildarlengd dagsleiðarinnar er 882km og þar af 347km á sérleið
Þetta var mikill Honda dagur í dag, eru Honda í 5 af 10 efstu sætum í dag.
Adrien Van Beveren(Honda) fór fyrstur af stað í morgun kl.08:15 eftir sigurinn í gær, 346km framundan, 3mín seinna fer liðfélagi hans Ricky Brabec(Honda) af stað og svo 3mín á eftir honum Luciano Benavides(KTM) þar á eftir.
Taktíkin hjá keppendum með að vera ekki fyrstir af stað getur stundum skipt sköpum, flestir stefna að því að starta á bilinu 5-10 sæti til þess að fá góð för á undan og geta því einbeitt sér meira að hraðanum frekar en rötun.
Startkerfið er þannig að 10 fyrstu er startað með 3mín millibili, svo eru næstu 10 ræstir með 2 mín á millibili, næstu 20 eftir það eru ræstir með 1mín millibili og svo restin með 30sek millibili.
Neels Theric(Kove) sem hefur á sína toppa og lægðir í þessu Dakar, þurfti að labba síðustu 3km í prolouge en líka búin að vinna 3 sérleiðasigra í Rally2 flokknum en í gær gekk lægð yfir hjá honum en mótorinn virðist hafa gefið sig og kláraði hann því
ekki leið gærdagsins.
En þar sem hann er í Rally2 flokknum þá má hann ræsa aftur í dag en fellur þá undir „Dakar Exsperience“ en fær ekki neina medalíu þó hann klári rallið. En vandræðum hans er ekki lokið. Stoppaði hann eftir 274km vegna vélarbilunar en hann var í öðru sæti í Rally2 þegar þetta gerðist en hann er búin að kalla á aðstoð til að komast út af sérleiðinni.
Við vegpunkt 84km var Adrien Van Beveren(Honda) fyrstur þökk sé bónustímanum en Skyler Howes(Honda) fylgir honum fast eftir.
Sama sagan við vegpunkt 156km, bónustíminn er að halda honum í fyrsta sæti.

Daniel Sanders(KTM) sem féll illa í gær og braut eða brákaði viðbein og bringubein ætlar að halda áfram í von um að klára rallið og ná í dýrmæt stig í heimsmeistarakeppninni en Dakar er liður í henni.
Hann fór 16 af stað í morgun og eftir 156km var hann 5mín hægari en fyrsti maður svo sæti á pallinum fjarlægist en hann þarf fyrst og fremst að einbeita sér að því að klára rallið, miðað vð þetta þá er líkur á að Skyler Howes(Honda) færist uppfyrir hann
í heildarstöðunni en eins og er þá er hann 16mín á eftir Daniel.
Eftir 319km sem er síðasti vegpunktur fyrir marklínu þá skildu aðeins 16sek þá félaga Adrien Van Benever og Skyler Howes, Ricky Brabec var svo tæpri mín á eftir Skyler þrátt fyrir að vera búin að vera sá hraðasti á leið dagsins en hann tók þá taktík að hægja á sér rétt fyrir marklínu til að ræsa aftar á morgun,
Fór dagurinn þannig að Skyler Howes(Honda) sigraði leið dagsins.
Sagði hann “það er frábært að vinna sérleið og sérstaklega á svona leið, sem í raun hentar mínum stíl mjög vel, grýtt og mikill hraði, ´ég er mjög sáttur með hvernig mér gekk í dag en á morgun verð ég að opna leiðina og það verður áskorun. Það kemur í ljós hvernig það fer.
Nú styttist í lokin og ég fer aðeins yfir árangur minn og mistök, það sem skemmdi klárlega mest fyrir mér var gatið á dekkinu sem tók líklega af mér 20mín, ég kom ekki í Dakar til að enda í 5 sæti. Ég er þakklátur fyrir það sem komið er árangurinn til þess og að sjálfsögðu stefni á á pallinn og helst fyrsta sæti”.
Sigurvegari gærdagsins Adrien Van Beveren(Honda) opnaði leið dagsins og gerði það í allan dag, græddi hann vel á því í bónustíma.
“ég einbeitti mér að fyrri hlutanum, ég vissi að Ricky Brabec(Honda) vildi hjóla með mér svo ég einbeitt mér vel að rötun fyrir okkur og forðast mistök svo við gætum náð góðum hraða í dag. En á grýttu köflunum var erfitt að sjá einhver för eða slóðir, ég var alltaf að líta afturfyrir mig og athuga með Ricky, ég sá hann lengi vel en rétt í endann hvarf hann. í eldsneytisstoppinu var ég með smá forskot á hann, ég spurði hvort hann vildi opna restina af leiðinni svo hann fengi einnig bónusstig en hann vildi frekar að ég opnaði áfram”.
Luciano Benavides(KTM) kom fjórði ímark í dag en það dugði honum samt til að halda forustu yfir heildinaSagði hann “þetta var góður dagur, hann var mjög hraður og það voru nokkrir kaflar sem mér líkaði ekki vel svo ég reyndi að fara varlega þar. Það var ekki óhætt að fara mjög hratt á þessum köflum, við vorum ekki með neitt leikplan eins og Ricky en hann hægði vel á sér í restina. Í gær stoppaði hann líka hjá Daniel til að laga til tíma sinn en skiptir mig ekki máli. Ég reyni bara að gera það besta sem ég get og stjórna því sem ég get stjórnað. Á morgun mun ég pressa eins og ég get og reyna auka forustuna, það styttist í lok rallsins”.
Eftir að hafa leitt í allan dag, þ.e.a.s með bestan tíma og á síðasta vegpunkt var Ricky Brabec(Honda) með 3m47sek forskot á Luciano en kaus þá að slaka á og hægja á sér og endaði hann í 6 sæti 2 sætum á eftir Luciano.
Þessi taktík er til þess að hafa menn á undan sér á morgun til að búa til för svo hann geti einbeitt sér að hraðanum.
“við erum að nálgast lokin í rallinu og hlutirnir aðeins farnir að æsast. Það er bara einn dagur eftir til að pressa vel. Þannig að við Adrien ákváðum að hjóla saman í dag um stund. Ég hef góða tilfinningu fyrir morgundeginum, við stefnum aftur í grjótið sem hentar okkur betur. Dagurinn í var mjög hraður, fyrstu hundrað kílómetrarnir voru nánast bara botnkeyrsla. Rétt fyrir eldsneytisstoppið kom smá tæknilegur kafli og þar náði ég Adrien en ég varð að setja upp smá leikplan fyrir morgundaginn”.
Daniel Sanders(KTM) sárþjáður eftir slysið í gær kláraði daginn 10mín á eftir Skyler Howes, hann heldur samt áfram 4 sæti yfir heildina milli þeirra Hondamanna Tosha Schareina og Skyler Howes.
Tökum okkur aðeins far á rallymótorhjoli https://www.instagram.com/reel/DPWm77AjciC/…
Má til með að sína ykkur lætin í þessum trukkum stundum, þarna virkar að standa á gjöfinni https://www.instagram.com/reel/DTZVoNcEZFD/…
Smá um bónuskerfið sem keppendur spila mikið inná.
Sá keppandi sem opnar leiðina vinnur sér inn 1sek fyrir hvern kílómeter sem hann og það sama gildir um alla þá sem ná að hjóla með viðkomandi en innan 15sek fjarlægð við hann.
Á leið 11 var möguleiki á að vinna sér inn 5m24sek með því að leiða alla leiðina.
Tímar eftir leið 11:
1. Skyler Howes Honda, 3:09:02
2. Adrien Van Beveren Honda, +00:21
3. Edgar Canet KTM, +01:15
4. Luciano Benavides KTM, +03:37
5. Tosha Schareina Honda, +04:06
6. Ricky Brabec Honda, +04:56
7.Martim Venture Honda +07:11
8. Bradley Cox Sherco +08:11
9. Ross Branch HERO +09:00
10. Toni Mulec KTM +09:33
13. Daniel Sanders (AUS), KTM, +10:28
Staðan í heildina:
1. Luciano Benavides KTM, 44:48:48
2. Ricky Brabec, Honda, +00:23
3. Tosha Schareina Honda, +15:16
4. Daniel Sanders KTM, +23:32
5. Skyler Howes Honda, +34:20
6. Adrien Van Beveren Honda, +54:13
7. Ignacio Cornejo, Hero +01:10:50
8. Ross Branch HERO +02:25:56
9. Toni Mulec KTM +02:36:38
10. Preston Campbell Honda +02:39:05
Dakar kveðjur
Dóri Sveins
___________________________________________________________________________________________
Dakar 2026
14 jan – leið 10
Leiðin á þessum seinni maraþondegi er 417km og þar af 371km á sérleiðum, liggur hún að mestu í sandi með tilheyrandi stórum sandöldum svo þarna munu þeir sem elska sandinn njóta sín vel. Síðasti hlutinn er svo vegslóðar en aðalmálið er að komast heill í gegnum þennan dag.
Hérna er smá af sandölduveseni https://www.facebook.com/reel/2297640920734849
Smá fróðleikur hvernig regluverkið virkar, hérna er reyndar verið að fara eftir FÍA reglum sem bílar falla undir en engu að síður hægt að sjá að það eru stífar reglur https://www.youtube.com/watch?v=vac1w-ycd8k
FIM reglurnar yfir hjólin eru ekkert minni en flest á hjólunum er innsiglað og merkt, svo kíkja eftirlitsmenn reglulega á hjólin.
Smá má ekki gleyma hetjunum í Orginal by Motul, smá um það hér https://www.youtube.com/watch?v=e_HsnbHbISc&t=40s
Hér er enn eitt dæmið um Dakar andann þar sem menn hjálpast að https://www.facebook.com/reel/3397000507143704
Menn verða að taka lífinu létt í náttstað https://www.facebook.com/reel/2237585636729144
En það var dramatík í dag, miklar sviptingar hjá keppendum á þessum seinni maraþondegi.
Daniel Sanders(KTM) fór af stað annar í morgun með rúmlega 6mín forskot vongóðum um að halda þessum mun eða helst bæta við muninn en það átti
eftir að breytast.
eftir að breytast.Tosha Schareina(Honda) fór fyrstur af stað í dag en náði ekki alveg nógu góðum degi, munið litlu að það færi illa þegar hann flaug framaf stórri sandöldu en slapp með skrekkin en hann tapaði tíma strax í byrjun og endaði hann í 8 sæti í dag 10m28s á eftir fyrsta manni og hækkar í 3 sæti í heildina en það er fyrst og fremst vegna óhapps hjá Daniel Sanders.
En Daniel Sanders(KTM) sem fór vel af stað í morgun og átti frábæra byrjun fyrstu 138km en þá endastakkst hann fram af stórri sandöldu, lenti illa og lá á jörðinni þegar Ricky Brabec(Honda) kom að honum, hann stökk strax af sínu hjóli til að aðstoða Daniel, hlúði að honum og aðstoðaði hann við að koma hjólinu upp og Daniel hjólaði af stað en greinilega mikið þjáður. Greinilegt að hann er ekki tilbúin að gefast upp þrátt fyrir þetta en við næsta eldsneytisstopp skoðuðu læknar hann og benti allt til að hann hefði brotið eða brákað á sér viðbein og brákað bringubein, var hann teipaður og svo fór hann aftur af stað og kláraði daginn í 16 sæti 27m50s á eftir fyrsta manni en ótrúlegt er að hann er samt ennþá í 4 sæti yfir heildina, reyndar 17m37s í fyrsta mann sem gerir nánast út um möguleika á palli en hver veit.
Sagði hann eftir daginn “þetta virðist vera brákað eða brotið viðbein, ég lét skoða þetta í eldsneytisstoppinu, þetta gerðist eftir sirka 140km og Tosha lenti næstum í því sama. Ég fann það strax þegar ég komst á fætur að það væri eitthvað að viðbeininu, líklega brotið og fann líka til í bringunni. því miður þá var rallið soldið að renna frá mér. Ég hugsaði stöðugt meðan ég hjólaði í gegnum sandöldunar að núna væri staðn breytt, ég var ekki tilbúin í að hætta og ætla að berjast áfra. Ég er að láta skoða mig betur og við eigum eftir að taka ákvörðun með framhaldið. Ég vill halda áfram, nú þegar búin með 150km í eyðimörkinni svona og það var þolanlegt svo ég tel að ég geti alveg farið í gegnum grjótið á morgun. Það væri erfiðara í sandinum en ég tel að grjótið sé betra. Eins með vegslóðana, þeir eru skárri svo við verðum að sjá, ég gefst ekki upp og meðan mér er ekki skipað að hætta þá held ég áfram”.
Hann er nú búin að fá grænt ljós á að halda áfram en verður undir eftirlit lækna keppninar.
Ricky Brabec(Honda) fór 4 af stað í dag og hjólaði þétt og af öryggi, eitthvað sem hefur haldið honum nálægt toppnum allan tímann en hann hafði för hina 3ja til að elta, en eftir að hann hjólað frammá Daniel þá var hann varari um sig en eftir þetta óhapp Daniels þá leit út fyrir að Ricky Brabec(Honda) væri komin með forustu en þegar hann kom í mark í dag þá var ekki þorandi að fagna því strax því það var ekki búið að skoða gps hjá honum en reglan í Dakar er sú að þú stoppar þegar keppandi þarf aðstoð eftir slys, svo þegar þú skilar þér í mark er skoðað hversu lengi var stoppað og sá tími dregin frá heildartíma því þér á ekki að hefnast fyrir að aðstoða keppendur í neyð.
Hér má sjá þegar Ricky aðstoðar Daniel https://www.facebook.com/reel/3858183734478091
En eftir skoðun var dregin af honum 1m37sek vegna stoppsins hjá Daniel. Þar með staðfestist að hann væri komin með forustu yfir heildina 56sek á undan Luciano Benavides(KTM) nú þegar 3 leiðar eru eftir.
Hafði hann þetta að segja “við náðum að klára þetta i einu lagi og hjólið líka, tímarnir í dag eru mjög þéttir en við berjumst áfram. Leiðin var flókin, þessar sandöldur eru varasamar og þær voru þarna fyrstu 240km, við vorum með fremstu mönnum að opna leiðina, Luciano Benavides(KTM) var í betri stöðu en við náðum bónustíma en svo komum við að Daniel eftir mikið fall, við stoppuðum hjá honum og aðstoðum hann við að komast af stað aftur. misstum tíma við það sem við ættum að fá til baka. Ég er í ágætis stöðu fyrir morgundaginn, hefði reyndar viljað byrja aftar en það er bara svona. Nú förum við í liðinu yfir morgundaginn en það eru ennþá 3 leiðir eftir svo það er nóg eftir”.
Luciano Benavides(KTM) sem fór níundi af stað í morgun átti góða byrjun enda með flott för á undan sér en eftir um 123km þá festi hann hjólið illa og tapaði líklega um 4mín á að koma sér af stað aftur en svo náði hann sér vel á strik og kláraði daginn í 3 sæti 4m4sek sem heldur honum í 2 sæti yfir heildina.
“ég gerði mistök rétt eftir eldsneytisstoppið og festi mig illa í sandöldu, það kostaði mig dýrmætan tíma og á tímabili hélt ég að Dakar hjá mér væri búið. Sem betur fer komu nokkrir keppendur þarna að og aðstoðu mig við að losa hjólið, ég er mjög þakklátur þeim”.
Adrien Van Beveren(Honda) sýndi það og sannaði í dag að hann elskar sandinn, átti hann frábæran dag , var hann 6 af stað í morgun og hafði því skýr og góð för til að elta og gat því haldið góðum hraða ásamt því að gera engin mistök, kom hann fyrstur í mark í dag tæpum 4mín á undan liðfélaga sínum Ricky.
Var þetta hans 7 sérleiðarsigur í 11 dakarröllum.
“þessi sérleiðarsigur er meira en sérleiðarsigur, þetta er sönnun á þeim endurbótum sem við höfum verið að vinna í og er að koma mér á réttan stað, við pressuðum í allan dag, við hjóluðum mikið 4 saman í dag og pössuðum uppá hvern annan, ég var í forustu mikið og náði góðum bónustíma við það. Ég er mjög sáttur hvernig dagurinn endaði”.
Eftir þessar 10 leiðir þá eru 18 hjólakeppendur dottnir úr leik af ýmsum ástæðum, meiðsli eða bilanir sem er í raun ekki mikið miðað við þær þolraunir sem keppendur eru búnir að fara í gegnum á þessum 10 leiðum.
Tímar á leið 10 voru:
1. Adrien Van Beveren Honda, 4:15:43
2. Ricky Brabec Honda, +03:49
3. Luciano Benavides KTM, +04:04
4. Skyler Howes Honda, +04:51
5. Ignacio Cornejo Hero, +06:34
6. Michael Docherty KTM, +09:31
7. Toni Mulec KTM + 10:24
8. Tosha Schareina Honda, +10:28
9. Paolo Lucci Honda +15:04
10. Edgar Canet KTM +18:36
16. Daniel Sanders KTM, +27:50
Og heildarstaðan eftir 10 leiðir:
1. Ricky Brabec Honda, 41:35:13
2. Luciano Benavides KTM, +00:56
3. Tosha Schareina Honda, +15:43
4. Daniel Sanders KTM, +17:37
5. Skyler Howes Honda, +38:53
6. Adrien Van Beveren Honda +58:25
7. Ignacio Cornejo Hero, +48:28
8. Ross Branch HERO +02:21:29
9. Preston Campell Honda +02:28:15
10. Toni Mulec KTM + 02:31:38
Dakar kveðjur
Dóri Sveins
____________________________________________________________________________
Dakar 2026
13 jan – leið 9
Fyrri dagur af seinna maraþoninu hófst í dag, 541km framundan og þar af 418km á sérleið.
Svona maraþondagar reyna mikið á keppendur bæði andlega og líkamlega, einnig á ökutækin þar sem það bíður ekki fullur viðgerðabíll með alla varahluti og viðgerðamenn við marklínu.
Meirihluti leiðar dagsins eru vegslóðar en eitthvað smá um sand og grjót.
Leiðin er ekki alltaf skýr og ekki hægt að treysta slóðinni fyrir framan þig 100% því þeir sem á undan fóru gætu verið að villast, hérna má sjá smá villur keppanda https://www.facebook.com/reel/632931233236137
Smá fróðleikur hvernig leiðarbókin virkar https://www.youtube.com/watch?v=0dBEHleS2bo
Eins og í fyrra maraþoninu þá eru aðskildar leiðir fyrir mótorhjól og bíla, breytir ekki svo miklu fyrir hjólin nema þá helst öftustu keppendur en skiptir miklu máli fyrir bílana að þurfa leggja sínar eigin línur í sandinn.
Hérna má sjá þá Daniel og Tosha þeyttast um þessar sandöldur https://www.facebook.com/reel/2191034987968871
En það var Luciano Benavides(KTM) sigurvegari síðustu 2ja daga sem fór fyrstur af stað í morgun en það byrjaði ekki vel hjá honum, eftir 33km lenti hann í vandræðum með að finna vegpunkt en það er tímarefsing fyrir sleppa vegpunkt, sömu sögu má segja með liðsfélaga hans Daniel Sanders(KTM) og töpuðu þeir tíma við þetta sem kom sér vel fyrir Ricky Brabec(Honda) því hann náði þeim og um stund þá hjóluðu þeir saman sem hristi vel uppí stigagjöfinni.
Þarna var Daniel orðin fyrstur, Ricky annar og Luciano komin í þriðja sæti en það var langt eftir.
En það var Tosha Schareina(Honda) sem átti frábæran dag.
Það sem kom honum á sporið í dag að lesa leiðarbókina rétt, valdi ekki sama gil til að fara í gegnum eins og þeir á undan, treysti á sitt innsæi og kom þá beint á fyrsta vegpunkt og þetta gaf honum meira sjálfsöruggi til að klára daginn, hékk hann í fremstu mönnum fram að eldsneytisstoppi en setti þá svo greinilega í flugírinn og toppaði þá alla og kom fyrstur í mark í dag 6m22s á undan liðsfélaga sínum Ricky og 6m24s á undan Daniel en þarna átti eftir að reikna inn bónustíma.
Þetta er hans 3 sérleiðasigur í Dakar 2026 og sá 5 í heildina.
Hann er nú í 4 sæti yfir heildina, rúmum 15m á eftir fyrsta manni og má vel við una en líka á móti sparka soldið í sjálfan sig fyrir að hafa fengið þessa klúðurslegu 10mín refsingu í fyrra maraþoninu.
“Þetta var góður dagur, ég gerði ein smávægileg mistök og það truflaði smá svo ég ákvað að breyta taktíkinni og reyna ná sem flestum bónusstigum í hús. það var svakalegt ryk í dag en undir lokin rofaði til og leiðin var greið en það er erfitt að vinna upp tíma á svoleiðis leið, allir í botnkeyrslu. Ég gerði mitt besta og við hjóluðum í hóp í mark”.
Við þessi úrslit er Daniel Sanders(KTM) komin í forustu í heildina, rúmum 6mín á undan Ricky Brabec(Honda) en Ricky er kannski í betri stöðu á morgun því hann hefur för frá 3 hjólum á undan sér sem hentar vel í tæknilegri leið sem morgundagurinn mun vera.
Daniel Sanders(KTM) sagði í dag
“strax í byrjun skoðaði ég leiðarbókina þar sem við vorum á algjörlega nýju svæði sem við höfðum aldrei áður komið á og það var góður taktur í þessu sem var gott, leiðarnóturnar voru soldið flóknar og ég var í rykinu af Luciano og við bara misstum af einum vegpunkt, þá birtist Ricky og púff, 6mín hurfu þarna við þetta og nokkrum kílómetrum seinna náði Tosha okkur svo ég hugsaði ´þarna er mikill tími horfin´ og eftir það voru allir að reyna finna einhverja góða taktík til að klára á réttum stað því á morgun verða miklar sandöldur og flóknari leiðarbók svo þetta endaði eiginlega á að við vorum allir í samfloti og það verður bara að gera það besta úr þessari rásröð á morgun”.
Ricky Brabec(Honda) sem kom fjórði í mark í dag og er í þriðja sæti yfir heildina sagði þetta“ég átti von á annari útkomu úr þessum degi, samkvæmt lýsingu á leiðinni þá ætti hún að vera mjög hröð. Luciano sem stóð sig vel í gær á hraðri leið og ég átti von á því sama í dag en svo datt ég inná þá KTM félaga eftir 30-40km þar sem þeir höfðu gert mistök og svo hjóluðum við hóp áfram þar sem fleiri bættust í.
Þegar ég lagðist á koddann í gær þá var ég viss um að taktíkin sem við vorum búnir að hugsa myndi virka í dag en það gekk ekki alveg upp, það voru margir sem gerðu smá mistök í dag en ég er á nokkuð góðum stað fyrir morgundaginn.
Ég hef nokkur hjól á undan mér til að búa til för til að elta en svona í lok dags þá komst ég á næturstað, dekkin eru í góðu standi, hjólið í lagi og ég líka.
Bæti svo við kaldhæðnislega “Nú hlakkar mig til að sofa á harðri jörðinni í tjaldi með engan kodda”.
Luciano Benavides(KTM) sem fór fyrstur inná leið dagsins tapaði um 9mín á þessum leiðarmistökum sínum í dag og kláraði því í 9 sæti í dag
“þetta ansi ´tricky´vegpunktur, ég gerði mistök og bara fann hann ekki og Daniel gerði sömu mistök og svo pompaði Ricky þarna í hópin líka, við vorum ekki að standa okkur vel þarna. En þegar Ricky kom þá áttuðum við okkur á hvar mistökin voru og leiðréttum okkur en þarna var mikill tími tapaður. Eftir þetta var ég í smá basli, vorum 4 að hjóla saman og það var mikið ryk en ég er í ágætisstöðu fyrir morgundaginn en verð að fara varlega, það er smá skemmd á afturdekkinu hjá mér en sleppur vonandi”.
Þess má geta að í leiðarbók dagsins voru 29 vegpunktar sem þarf að finna og í svona landslagi þá eru þeir ósýnilegir, þeir eru bara gps punktur sem þeir þurfa að finna án gps tækis með nokkura metra frávikum. Eða eins og Sam Sunderland fyrrum Dakar sigurvegari sagði einu sinni um þessa vegpunkta “það er ekki eins og þarna sé hrúga af brennandi dekkjum, við erum að leita að ósýnilegum punkt í miðri eyðimörk”.
Á þessum sléttum þar sem mönnum finnst þeir vera stundum á góðum hraða en svo kemur bara einhver framúr og þá þarf að gefa meira inn https://www.facebook.com/reel/882115524405082
Seinni dagur maraþonsins er 417km og þar af 371km á sérleið sem mun að mestu liggja um sand og stórar sandöldur.
En tímar á leið 9 eru
1. Tosha Schareina Honda 03:45:42
2. Daniel Sanders KTM +04:35
3. Michael Docherty KTM +04:50
4. Ricky Brabec, Honda, +06:22
5. Skyler Howes Honda, +07:54
6. Adrien Van Beveren Honda +10:10
7. Neels Theric KOVE, +10:50
8. Bradly Cox Sherco +11:10
9. Luciano Benavides KTM +11:50
10. Preston Campell Honda +17:16
Staðan yfir heildina eftir leið 9
1. Daniel Sanders, KTM 37:09:17
2. Ricky Brabec, Honda, +06:24
3. Luciano Benavides KTM +07:05
4. Tosha Schareina, Honda, +15:28
5. Skyler Howes Honda, +44:15
6. Ignacio Cornejo, Hero, +01:05:10
7. Adrien Van Beveren Honda +01:08:38
8. Ross Branch HERO +02:10:19
9. Preston Campell Honda +02:13:59
10. Toni Mulec KTM +02:31:27
Dakar kveðjur
Dóri Sveins
__________________________________________________________________________________________
Dakar 2026
12 jan – leið 8
Leið dagsins er löng, 721km og lengsta sérleið Dakar 2026 heilir 483km.
Var landslagið sýnishorn af öllu en leiðarbókin frekar einföld en mjög hröð en að auki lentu keppendur í smá sandstormi sem var ekki að hjálpa uppá skyggnið.
Eins og sjá má hér þá eru sandöldur eru eins fjöll https://www.facebook.com/reel/901822949157885
Og smá frá landslagi dagsins https://dai.ly/x9xma98
Þeir vakna snemma keppendur í hjólaflokki og það er ansi kalt þarna í eyðimörkinni svona snemma en líta þeir út eins og vel fóðraður bangsar þegar þeir fara af stað inná ferjuleiðina og svo er alltaf við startið á sérleiðum búið að kveikja nokkra elda svo þeir getið náð sé í smá hita eftir að þeir fara úr dúðaða gallanum og inná leiðina. Luciano Benavides(KTM) fór frá bækistöð kl.05:10 og svo inná sérleið kl.07:00 og í kjölfarið á honum 97 önnur hjól, síðasta hjól átti að fara af stað kl.08:35:30
En það voru sviptingar í dag, Ricky Brabec var á góðum dampi framan af, var lengst af á bestu tímum, t.d með 15sek eftir 45km , komin með 1m23sek forustu við 86km á undan þeim Daniel Sanders(KTM), Skyler Howes(Honda), Tosha SchareinaHonda) og Adrien Van Beveren(Honda), við 180km merkið var hann með 1m37sek á næsta mann en þetta segir ekki allt, þrátt fyrir að vera hraðastur í dag þá eru það bónusstigin sem skilja að.
Við 247km merkið var hann 2m48sek á undan Luciano Benavides en þegar bónusstigin höfðu verið reiknuð það inn var Luciano Benavides í raun 1m27sek á undan.
Ef við skoðum aðeins pælingar fyrir Dakar 2026 þá átti flestir von á að keppnin myndi vera mest á milli Daniel Sanders(KTM) og Tosha Schareina(Honda) en þeir áttu í mikilli barráttu alla heimsmeistarakeppnina en Daniel vann hana að lokum með sigrum í 5 af 6 keppnum.
Luciano Benavides(KTM) var svo nefndur með en ekki endilega sem sigurvegari en hann er aldeilis að sína góða takta núna, sigraði sérleiðina í gær( sem var hans 7 sérleiða sigur og það á leið 7 og hann er númer 77) og í dag hélt hann áfram í fluggírnum, fór hann fyrstur inná leið dagsins og sigraði og náði þannig topp bónustíma 7m28sek sem varð til þess að hann leiðir nú
Dakar 2026, reyndar bara 10sek í Daniel Sanders(KTM) en samt fyrstur.
“á þessum 2 dögum hafa leiðarnar verið mjög hraðar og þessar aðstæður hafa hentað mér mjög vel. Ég náði að fókusa vel á leiðarbókina og halda góðum hraða, tekið réttar ákvarðanir án þess að gera mistök.
Ég er spenntur fyrir morgundeginum en þá förum við inní seinna maraþonið og ég ætla að reyna halda þessu áfram”.
Daniel Sanders(KTM) sem kom annar í mark í dag 4m50sek á eftir liðsfélaga sínum, reyndar um 3m á undan en þessi bónusstig eru að rugla soldið í þessu öllu saman en sama gengur yfir alla svo það sleppur.
Við þetta datt hann í annað sætið yfir heildina en munar bara 10sek sem er augnablik í Dakar.
“síðustu 2 dagar hafa verið rosalega hraðir og leiðarbókin í dag var frekar einföld en um leið þá var erfiðara að vinna upp hraða á Luciano, hann stóð sig frábærlega í dag. Það hefði verið betra að starta annar til að halda sig nær honum og ná í bónusstig en það gekk ekki og á svona hröðum leiðum kosta minnstu mistök mikið. Vonandi verður morgundagurinn ekki svona hraður.
Fyrri vikan var erfið og þessi hefur byrjað með miklum hraða og einfaldari leiðarbók en við sjáum hvað kemur”.
Edgar Canet(KTM) sem vann fyrstu 2 sérleiðar Dakar 2026 hefur ekki átt eins góðu gengi að fagna eftir það, fór illa útúr seinni deginum af fyrra maraþoninu.
Tapaði þar 3 klukkutímum og fékk svo 6 klukkutíma refsingu fyrir að fá afturdekk frá utanaðkomandi aðila áður en hann kláraði ferjuleiðina.
En hann er að safna í reynslubankann og núna horfir hann á einn dag í einu og átti flottan dag í dag, kom 4m47sek á eftir liðsfélaga sínum í mark.
„ég villtist eftir sirka 15-20km og hugsaði með mér, þetta er hræðileg byrjun á seinni vikunni, en svo áttaði ég mig og náði upp góðum takti og gaf allt í þetta. Sigurinn fór til félaga míns, ég er ánægður með það. Ég er dottin útúr baráttunni um sigur en einbeiti mér núna á hverja leið fyrir sig”.
Ricky Brabec(Honda) hélt að hans taktík væri að virka með því að vera 8 af stað í dag og hafa góð hjólför til að elta og þrátt fyrir frábæran hraða og vera hraðastur lengi vel þá dugði það honum ekki, kom hann 3 í mark í dag 5m02sek á eftir fyrsta manni og fellur í 3ja sæti yfir heildina 4m47sek á eftir fyrsta sæti.
“gærdagurinn var ekki góður fyrir okkur og við héldum að við ættum góðan möguleika á að ná okkur vel upp í dag en við lentum í smá veseni í sandstorminum sem bæði hægði á okkur og það fauk soldið í förin sem við ætluðum að elta.
Annars gekk dagurinn ágætlega, ég gerði engin mistök og hélt góðum hraða en það dugði bara ekki. Ég kem mér í góða stöðu en það vantar herslumuninn að nýta mér það betur, vonandi fer það að batna. Mér verður stundum hugsað um munin á hjólunum, öll hjól hafa sína kosti og galla, ég er bara ekki að átta mig á því hvort þeirra hjól er betra eða hvort þeir hafi betri þekkingu á leiðunum framundan. En svona er þetta bara, við gerum okkar besta en það er ekki að duga og ég er frekar pirraður á því. Við verðum að ná okkur í betri gír”.
Eins og margir vita þá átti Bradley Cox(Sherco) ekki góðan dag í gær, eftir bilanir sem kostuðu mikin tíma of svo stoppaði hjólið þegar 27km voru í marklínunni en miskunarsamur keppandi
Tiziano Interno(KTM) sneri við og dró hann í mark. “you are the last Sherco” kallaði hann og sagðist vera með reipi og ætlaði að draga hann í mark.
Alvöru keppnisandi þarna á ferð https://www.facebook.com/reel/1612037959809583
Og smá fróðleikur frá Bradley Cox um lífið í Dakar https://www.facebook.com/reel/2015021419230899
Og hér má sjá smá myndband hvernig dagurinn getur verið, stundum er gaman að hoppa og skoppa allan daginn https://www.facebook.com/reel/1234762038512111
Á morgun hefst svo seinna maraþonið það eru 2 erfiðir dagar framundan.
Hérna er smá frá bækistöðinni í fyrra maraþoninu https://www.facebook.com/reel/1178529630935303
En tímar á leið 8 eru
1. Luciano Benavides KTM 04:26:39
2. Daniel Sanders KTM +04:50
3. Ricky Brabec, Honda, +05:02
4. Tosha Schareina Honda, +09:47
5. Adrien Van Beveren Honda +11:56
6. Skyler Howes Honda, +12:32
7. Edgar Canet KTM +15:06
8. Ignacio Cornejo Hero, +17:13
9. Neels Theric KOVE, +19:05
10. Martin Venture Honda +19:20
Staðan yfir heildina eftir leið 8
1. Luciano Benavides KTM 33:18:50
2. Daniel Sanders, KTM, +00:10
3. Ricky Brabec, Honda, +04:47
4. Tosha Schareina, Honda, +20:13
5. Skyler Howes Honda, +41:06
6. Ignacio Cornejo, Hero, +45:08
7. Adrien Van Beveren Honda +01:03:13
8. Ross Branch HERO +01:55:02
9. Preston Campell Honda +02:01:28
10. Tomni Mulec KTM +02:11:04
Dakar Kveðja
Dóri Sveins
___________________________________________________
Dakar 2026
11 jan – leið 7
Leið dagsins er löng, 876km og þar af 462km á sérleið, dagurinn er hraður en um leið varasamur og mistök geta reynst dýr.
Landslagið var fjölbreytt í dag, sandöldur, grjót, gil og svo hraðir kaflar með þægilegri rötun inná milli.
Klukkan 04:00 fóru fyrstu hjólamenn af stað og Luciano Benavides(KTM) sem fór sjötti af stað í dag kom ansi kröftugir inn eftir hvíldardaginn, var hann langhraðastur og bætti tímann sinn stöðugt yfir daginn, strax á 30km var hann komin í forustu með 14sek á næsta mann, 1m22sek við 107km, 2m24sek eftir 233km og kláraði daginn með 4m47sek forskot á næsta mann.
Vann hann sinn annan sérleiðarsigur í Dakar 2026 og sinn sjöunda í heildina.
Edgar Canet(KTM) sem hefur ekki átt sjö dagana sæla síðustu daga kom öflugir inn í dag, kláraði daginn í öðru sæti en situr í 50 sæti yfir heildina tæpum 40 tímum á eftir fyrsta manni.
Adrien Van Beveren(Honda) er annar keppandi sem átti mjög slæman dag í fyrra maraþoninu en sýndi sitt rétta andlit í dag, þriðji í mark 4m57sek á eftir fyrsta manni en vegna fyrri óhappa þá situr hann í 7 sæti yfir heildina en samt tæpum klukkutíma eftir fyrsta manni.
Forustumaður rallsins Daniel Sanders(KTM) var með 45sek forskot á Ricky Brabec(Honda) fyrir daginn í dag en eftir góða frammistöðu í dag er hann en í forustu og jók bilið milli þeirra í 4m25sek en Ricky kláraði 10 í dag.
Kom hann 4 inn í dag 5m35sek á eftir fyrsta manni og sagði eftir daginn “ég gerði ein mistök í byrjun og tapaði því miður við það 2-3 mín sem gerði það erfiðara að ná fremstu mönnum þar sem fyrri hlutinn var ansi hraður og erfitt að vinna upp mismuninn.
Í seinna eldsneytisstoppinu fórum við aðeins yfir bónusstigin og eftir það þá var ekkert annað en að gefa allt í botn og reyna sjá til þess að þeir fengju ekki meiri bónustíma. Mér leið vel í dag og hlakkar til morgundagsins”.
Það mun einnig klárlega hjálpa Daniel á morgun að starta ekki fyrstur en hann hefur 3 á undan sér til að búa til hjólför svo hann getur haldið meiri hraða til að byrja með minnsta kosti.
Staðan getur breyst hratt en Ricky Brabec sem kom fyrstur í mark á leið 6 og hóf því daginn í dag átti ekki eins góðan dag í dag.
“við fórum 460km í dag á sérleiðinni, það er löng leið en heilt yfir frekar hröð leið. Meirihluta dagsins leiddi ég þar til liðsfélagi minn Tosha Schareina(Honda) náði mér og við hjóluðum saman.
KTM félagarnir hjóluðu hratt í dag svo við töpuðum smá tíma á þá en ég held að við séum í mun betri stöðu en þeir á morgun. Á morgun höfum förin þeirra til að elta og því gefið vel í og vonandi minnkað bilið og það er eitthvað sem við stefnum á næstu daga”.
Tosha Schareina(Honda) sem fór annar af stað í dag og gekk þokkalega, kom 7 í mark í dag 8m45sek eftir fyrsta manni en þrátt fyrir að tapa tíma í dag þá heldur hann ennþá 4 sæti yfir heildina 15m06sek eftir fyrsta manni.
En hann hugsar þetta svipað og liðsfélagi sinn Ricky að næstu dagar séu að halda sig nálægt toppnum og elta förin fram að endaspretti.
“það var ekki auðvelt á ná taktinum eftir hvíldardaginn, sérstaklega að þetta var mjög hraður dagur. Ég var fyrstur af stað við 120km og eftir eldsneytisstopp gerði ég smá mistök og Daniel flaug frammúr en við erum í góðri stöðu fyrir morgundaginn”.
Gengi Bradley Cox(Sherco) hefur verið brösugt í ár, hann fór 8 af stað í dag einum og hálfum tíma á eftir fyrsta manni en það átti eftir að breytast í dag. Gekk honum vel í byrjun en er hann var komin 91km inná sérleiðina fór hjólið fór að hita sig og kom í ljós að vatnsdæla var að gefa sig. Tók það næstum 2 tíma að gera við og komast af stað aftur og náði að vinna aðeins upp tapaðan tíma, kláraði daginn í 68 sæti 1k48m58sek en við þetta féll hann í 13 sæti yfir heildina 3k8m15sek
Hérna má sjá hluta ef grýttari kaflanum https://www.facebook.com/reel/1369555917711411
Að horfa á þessa kalla hjóla á 140-160km hraða og það virðist vera auðvelt eins og Ricky https://www.facebook.com/reel/894726322944535
En hér má sjá frá einum af fyrstu röllunum og margt breyst síðan þá, þarna voru keppendur með farangur með sér, varahluti, tjald ofl.
En tímar eftir leið 7 eru
1. Luciano Benavides KTM 04:00:56
2. Edgar Canet KTM +04:47
3. Adrien Van Beveren Honda +04:57
4. Daniel Sanders KTM, +05:35
5. Skyler Howes Honda, +06:46
6. Michael Docherty KTM +07:38
7. Tosha Schareina Honda, +08:45
8. Ross Branch HERO +08:47
9. Ignacio Cornejo Hero, +09:10
10. Ricky Brabec, Honda, +09:15
Staðan yfir heildina eftir leið 7
1. Daniel Sanders, KTM, 28:47:31
2. Ricky Brabec, Honda, +04:25
3. Luciano Benavides, KTM, +04:40
4. Tosha Schareina, Honda, +15:06
5. Skyler Howes Honda, +33:14
6. Ignacio Cornejo, Hero, +33:25
7. Adrien Van Beveren Honda +55:57
8. Ross Branch HERO +01:32:29
9. Preston Campell Honda +01:43:32
10. Toni Mulec KTM +01:54:39
Dakar Kveðja
Dóri Sveins
_______________________________________________________________________
Dakar 2026
10 jan – hvíldardagur
Í dag er kærkomin hvíldardagur hjá keppendum(og fréttaritaranum) í Dakar 2026 eftir 3.649km og rallið því hálfnað.
En næsta vika verður aðeins lengri, 7 dagar og 4.291km sem bíða keppenda og vikan byrjar með 2 löngum dögum.
Morgundagurinn er 876km og þar af 462km á sérleið og svo yfir í 717km dag, þar af 481km á sérleiðum og svo taka við maraþondagar þannig að það er engin lognmolla framundan.
Það er passað vel uppá öryggi keppanda allt rallið, 6 sjúkraþyrlur fylgja keppendum og er talað um að það taki yfirleitt ekki nema 15mín að fá þyrluna á slysstað sem er betra en í flestum stórborgum.
Einnig eru 11 sjúkrabílar, 1 sjúkraflugvél ásamt sérhæfðum slökkviliðsmönnum.
Á hverri bækistöð er sjúkrahús, í heildina eru um 85 heilbrigðisstarfsmenn í kringum keppnina, þarf af um 35 sérhæfðir skurðlæknar, svæfingarlæknar, hjúkrunarfræðingar, röngentæknar, kírópraktorum ofl.
Hér er smá myndband um öryggismál keppninar https://www.facebook.com/reel/2582762685457973
16 keppendur í hjólaflokkum hafa dottið út það sem komið er, flestir á leið 5 en þá duttu 7 keppendur út sem verður að segjast að sé ekki mikið miðað við alla kílómetrana og þessar hörkuleiðir sem búnar eru.
En samkvæmt sérstökum endurkomu reglum eiga margir af þeim möguleika á að koma aftur inní rallið en auðvitað með mjög miklum tímarefsingu en fá samt að upplifa keppnina áfram.
Það er ótrúlegt að það muni ekki nema 45 sek á 1 og 2 sæti eftir 6 leiðir og svo 10 mín í 3 sætið eftir rúmlega 3600km en þarna spilar auðvitað inní þessi bónustig sem keppendur geta unnið sér inn með allskonar taktík.
Það munar svo einum og hálfum tíma milli 1 og 10 sætis en munum að það þarf ekki stórt fall eða að missa sig útúr leið lengi til að tímarnir breytist hratt.
Einnig er mjög spennandi að sjá að það er ekkert hjólamerki sem er að yfirgnæfa yfir heildina, ja kannski Honda með örlítið fleiri á 10 listanum en það eru 7 dagar eftir og allt getur gerst.
Smá myndbrot frá degi þeirra í Orginal by Motul https://www.facebook.com/reel/1141496827861376
Upprifjun á stöðunni fyrir leið 7.
Heildarstaðan eftir leið 6
1. Daniel Sanders, KTM, 24:41:00
2. Ricky Brabec, Honda, +00:45
3. Luciano Benavides, KTM, +10:15
4. Tosha Schareina, Honda, +11:56
5. Ignacio Cornejo, Hero, +29:50
6. Skyler Howes, Honda, +32:03
7. Adrien Van Beveren, Honda +56:35
8. Bradley Cox, Sherco +01:25:28
9. Preston Campell, Honda +01:31:04
10. Ross Branch, HERO +01:36:10
Látum þetta duga í bili á hvíldardeginum.
Dakar kveðjur
Dóri Sveins
________________________________________________________________________________________
Dakar 2026
9 jan – leið 6
Það misritaðist hjá mér í gær með leið dagsins, þessi lengsti dagur Dakar 2026 var 920km í heildina, 589km ferjuleiðir en sérleiðin var 331 km.
Ansi langur dagur þarna og þessar ferjuleiðar geta verið mjög lýjandi og alveg dæmi um að keppendur “detti út” og gleymi sér í þægilegum vegaakstri og sérstaklega eftir erfiða viku.
Það sást reyndar til eins keppanda(Bradley Cox) á McDonalds
Þessi dagur er nánast endalaus eyðimörk með sínum sandöldum eins langt og augað eygir. Frekar tilbreytingarlaust en erfitt landslag.
Það er erfitt fyrir keppendur að fara inní svona rosalangan dag eftir erfiðan gærdag. En svona mikill sandur er erfiður í akstri en ekki síður á hausinn því það krefst mikillar einbeitingar að halda áttum í endalausum sandöldum með lítil sem engin kennileiti.
Forustumaðurinn Daniel Sanders(KTM) fór 3 af stað í dag en komandi frá eyðimörkunum Ástralíu þá var hann á heimavelli í sandinum og fann hann taktinn sinn fljótt.
Var hann búin að ná Luciano Benavides(KTM) eftir 78km og eftir það var hann eins og eyðimerkurkóngur, það er alltaf erfiðast að vera fremstur, leggja línurnar fyrir næstu menn sem hjálpar þeim að halda meiri hraða en um leið refsar það þér illa ef þú ferð útaf sporinu en hann las sandinn og öldurnar frábærlega, hélt góðum hraða svo það átti engin annar séns í hann og kom hann 4m47sek á undan næsta manni í mark í dag en…….
Stundum er þetta of gott til að vera satt, Dakar er ekki bara keppni við aðra keppendur heldur einnig halda sig við allar reglurnar og því miður fyrir Daniel þá fór hann of hratt inná hraðatakmörkunarsvæði og fékk 6mín refsingu sem setti hann niður í 3ja sæti í dag, mjög svekkjandi en svona eru reglurnar.
Sagði Daniel i lok dags “þetta var erfiður dagur í forustu, sérstaklega með að rata. Ég fékk hraðarefsingu snemma að deginum sem var frekar fúlt en ég hugsaði að ég yrði að reyna vinna það upp. Sem betur fer þá náði ég góðum takti og gaf mig allan í restina af deginum.
Ég er ekki alveg sáttur við fyrri vikuna hjá mér og varð að gera vel í dag”.
Þessi refsing varð til þess að Ricky Brabec(Honda) vann sinn 12 sérleiðasigur í Dakar en markmið hans í þessu Dakar er að vera stöðugur og varfærin og gera engin mistök og það má segja að hann sé að standa vel við það. Hann hefur verið í humátt á eftir toppmönnum og ekki fengið neinar refsingar, einbeittur í rötun, heldur góðum hraða sem er að skila sér vel, situr núna í 2 sæti einungis 45s á eftir Daniel Sanders.
“ég vissi þessi dagur yrði soldið erfiður, en það er ennþá mikið eftir. Ég er á góðum stað, rétt á eftir Daniel og Tosha, ég hef náð að leiða leiðir sem er smá pirrandi en ég leiði næstu leið og næsta markmið er að ná Daniel eftir hvíldardaginn og tína inn bónustíma, það er þannig sem rallið spillast í dag. En á móti kemur að maður þarf eiginlega að opna til að eiga séns á sigri en ég hef ekki náð toppsætinu ennþá en það eru ennþá 7 keppnisdagar eftir svo það getur allt gerst. Ég er ánægður að það skuli vera hvíldardagur á morgun, aðeins að jafna sig. Ég er að gera mitt besta, það vilja allir vinna en þessar sandöldur eru ekki mín sterkasta hlið en ég er mjög sáttur við stöðuna eins og er”.
Luciano Benavides(KTM) sem fór fyrstur af stað í morgun átti ekki góðan dag.
“þetta var ekki auðveld leið fyrir mig, mér gekk vel fyrstu 150km en Daniel var búin að ná mér og hjóluðu við soldin spöl saman en svo hvarf Daniel, stuttu seinna fór þreyta síðustu daga að segja til sín og augnabliks einbeitingarleysi varð til þess að ég datt og lenti illa á hnénu, festist skömmu síðar í sandöldu sem tók mikin kraft úr mér. Ég reyndi að gera mitt besta og er í ágætisstöðu eins og er. Þetta er erfiðasta fyrri vika í Dakar sem ég hef tekið þátt í, það verður gott að fá hvíld á morgun. Líkamanum veitir ekki af hvíld, mig verkjar í hnén og axlir en svo er það seinni vikan á fullum krafti”.
Tosha Schareina(Honda) sem kom 3 í mark í dag eftir að hafa startað 5 af stað vegna 10min refsingar í gær og hafði hann áhyggjur á að dragast meira afturúr í dag.
“Þessir KTM gaurar leiddu í allan dag í sandöldunum og voru mun hraðari en ég átti von á. Ég náði ekki að vinna mér inn neinn bónus. Ég gerði mistök í gær og var frekar súr yfir þessari refsingu en í dag þurfti Daniel að upplifa það sama í dag og það í raun hjálpaði mér í að dragast ekki of langt niður listann. Ég er í 4 sæti yfir heildina og ætla hvíla mig á morgun en svo að einbeita mér vel seinni vikuna”.
Edgar Canet(KTM) sem átti skelfilegan seinni maraþondag sést hér hvernig hann kláraði síðustu 100km https://dai.ly/x9xfpjy
Það verður að segjast að þrautseigja keppenda til að klára er stundum ótrúleg eins og myndbandið sýnir en það eru líka dæmi um að menn haldi áfram handleggsbrotnir eða úlnliðsbrotnir.
En á morgun er hvíldardagur til að safna kröftum, þ.e.a.s fyrir alla keppendur nema þá sem eru í flokknum Orginal by Motul en þeir hafa þó allan daginn til að yfirfara hjólin án tímapressu.
En staðan á leið 6:
1. Ricky Brabec, Honda, 3:41:33
2. Tosha Schareina, Honda, +01:14
3. Daniel Sanders, KTM, +01:17
4. Skyler Howes, Honda, +04:03
5. Adrien Van Beveren, Honda, +05:21
6. Luciano Benavides, KTM, +05:37
7. Michael Docherty KTM +09:33
8. Toni Lubec KTM, +12:06
9. Ignacio Cornejo, Hero, +12:29
10. Ross Branch HERO, +13:34
Heildarstaðan eftir leið 6
1. Daniel Sanders (AUS), KTM, 24:41:00
2. Ricky Brabec (USA), Honda, +00:00:45
3. Luciano Benavides (ARG), KTM, +00:10:15
4. Tosha Schareina (ESP), Honda, +00:11:56
5. Ignacio Cornejo (CHI), Hero, +00:29:50
6. Skyler Howes (USA), Honda, +00:32:03
7. Adrien Van Beveren, Honda +56:35
8. Bradley Cox, Sherco +01:25:28
9. Preston Campell, Honda +01:31:04
10. Ross Branch, HERO +01:36:10
Dakar kveðjur
Dóri Sveins
________________________________________________________________________
Dakar 2026
8 jan – leið 5
Þá er komið að seinni maraþondeginum í fyrri vikunni, 417km í heildina og þar af 356km á sérleiðum.
Áframhald frá gærdeginum, grjót og sandur útum allt en það voru ekki helstu áhyggjur keppanda í dag.
Þetta var dagur afturdekkjana, hver keppandinn á fætur öðrum var í veseni með dekkin eða músina í dekkjunum. Mikið drama í kringum dekkin og breyti það stöðunni hjá mörgum.
Daniel Sanders(KTM) byrjaði með krafti í dag og við km86 komin frammúr Hondamönnunum Tosha Schareina og Ricky Brabec en um miðbik dagsins hægði hann aðeins á sér til að spara dekkin en það var komin stór skemmd í það og kostaði þetta hann tíma og og þeir Hondamenn sigu frammúr og fóru að tikka inn bónustíma en svo byrjaði dekkjavesen.
En þrátt fyrir að Daniel Sander kláraði 3 í dag 5:50 eftir fyrsta manni þá voru sviptingar og vesen hjá öðrum þannig að Daniel situr nú í 1 sæti yfir heildina með 2:02 á næsta mann.
En Tosha Schareina fékk á sig 10mín refsingu fyrir að fara ekki eftir merkjum starfsmanna í startinu og við það féll hann í 4 sæti yfir heildina.
En dagurinn hjá frakkanum Adrien Van Beveren var ekki góður, hann fór af stað í morgun með stórt gat á dekkinu sem hann reyndi að laga í gærkvöld en við km88 varð hann að stoppa því það hafði vafist stálvír utan um afturgjörðina, inní tannhjólið og keðjustýringuna. það gekk illa að klippa hann í burtu þrátt fyrir að vera með Leatherman, það tók langan tíma að losa hann úr og halda áfram. Þurfti hann að stoppa nokkrum sinnum í viðbót til að týna restina úr og tapaði rúmum hálftíma á þessu en er ennþá með.
Mjög skrítið að lenda á vír svona útí eyðimörkinni.
Skyler Howes(Honda) átti einnig í vandamálum með afturdekk eftir gærdaginn, stórt gat á því og reyndi hann að loka því með plastströppum og hosuklemmum, menn verða að bjarga sér. En þetta varð til þess að hann varð að hjóla hægar og tapaði rúmum 20mín en komst í mark.
Ross Bransh(HERO) sem hefur verið á góðri siglingu síðustu dag lenti fljótlega í dag í að músin í dekkinu hjá honum bráðnaði eða molnaði sem gerði það að verkum að hann varð að hægja verulega á sér og kom hann 1klst og 17mín á eftir fyrsta manni í mark.
Neels Theric(KOVE) var á fljúgandi ferð í dag og nánast vandræðalaus og kom fyrstur í mark í Rally2 flokknum og sá sjötti yfir heildina og var hann að vonum mjög ánægður með það.
Edgar Canet KTM átti heldur ekki góðan dekkjadag, um miðjan dag gaf músin sig og er hann kom í seinna eldsneytishlé við 264km þá var hann hreinlega ekki viss um að hann kæmist af stað, dekkið var við að losna af gjörðinni en hann reyndi að strappa það fast með plastströppum of vírum en það dugði ekki lengi.
Varð hann að hjóla um 200km á gjörðinni einni saman og þegar það gerist þá fara teinar að brotna og það getur endað mjög illa en hann komst í mark 4klst og 36mín á eftir fyrsta manni.
Sigurvegari dagsins átti ekki góðan fyrripart, tók byltu á mikilli ferð en slapp með skrekkinn sjálfur og hjólið einnig, hélt hann uppi góðri ferð í allan dag og eins og segir sigraði daginn og er það hans 6 sérleiðasigur í Dakar.
Það er alltaf gaman af þessum myndavélum sem keppendur eru með https://dai.ly/x9xczbu
En það er engin pása strax því á morgun verður lengsti dagur Dakar 2026, 589km en ekki lengsta sérleiðin en er samt 331km.
Liggur hún um að manni finnst endalausar sandöldur en einn og einn dalur þess á milli.
Það verður því kærkomið að klára þennan dag og svo taka hvíldardag.
Það er nokkur ný nöfn á topp 10 á leið dagsins.
Staðan á leið 5
1. Luciano Benavides, KTM, 4:05:16
2. Ignacio Cornejo, Hero, +03:51
3. Daniel Sanders, KTM, +05:50
4. Bradley Cox, Sherco, +07:22
5. Ricky Brabec, Honda, +09:16 (2m24s bónustími)
6. Neels Theric, Kove, +009:17
7. Mason Klein, HOTO +12:55
8. Konrad Dabrowski, KTM +13:57
9. Preston Campell, Honda +14:27
10. Toni Mulec, KTM +16:43
Heildarstaðan eftir leið 5:
1. Daniel Sanders, KTM, 20:58:10
2. Ricky Brabec, Honda, +02:02
3. Luciano Benavides, KTM, +05:55
4. Tosha Schareina, Honda, +11:59 (10m refsing)
5. Ignacio Cornejo, Hero, +18:38
6. Skyler Howes, Honda, +29:17 (2m refsing)
7. Adrien Van Beveren, Honda +52:31
8. Bradley Cox, Sherco +01:01:31
9. Preston Campell, Honda +01:16:03
10. Ross Branch, HERO +01:23:53 (6mín refsing)
Dakar kveðja
Dóri Sveins
__________________________________________________________________________________________________________
Dakar 2026
6 jan – leið 3
Leið dagsins er ekki nema 736km og þar af 422km á sérleið, þetta er svakalegur dagur.
Mikið um sandsteinskletta sem vindurinn er búin að sverfa í aldanarás en um leið eru þeir keimlíkir og getur verið erfitt að rata þarna rétta leið en þegar klettarnir eru búnir opnast svæðið en um leið eru þar slóðar í allar áttir sem munu örugglega villa fyrir mörgum.
Honda sat í fyrsta sæti eftir daginn í dag þegar Tosha Schareina sem kláraði Dakar 2025 í öðru sæti og einnig heimsmeistarakeppnina í öðru sæti kom fyrstur í mark.
Kláraði hann þessa 422km sérleið 2mín17sek á undan öðrum Honda manni Ricky Brabec.
Heilladísirnar eru ekki alveg að halda með hinum efnilega og yngsta sérleiðasigurvegara Dakar Edgar Canet(KTM) en hann náði ekki að hanga vel í toppmönnum dagsins, kom hann 8 í mark í dag tæpum 12mín á eftir fyrsta manni.
Dagurinn var ekki góður hjá mörgum, það var vondur staður á 141km, leiðindar beygja með miklum lausum sandi og mjög ójafnt og fóru margir á hausinn þar.
Stefan Svitko datt og braut líklega viðbein, sorglegt að segja frá því en þetta er hans 7 Dakar og 5 skipti sem hann fellur úr leik vegna meiðsla eða bilana.
Ignacio Nacho Cornejo féll einnig illa en komast af stað aftur og náði í 6 sæti í dag.
Sigurvegari dagsins Tosha Schareina flaug þarna á hausinn en slapp vel.
Hér má sjá þessa ólánsbeygju https://www.facebook.com/share/r/1HybT7KBLd/
En það voru fleiri óhöpp en Tobias Ebster(HERO) sem var í öðru sæti í rally2 flokknum í gær féll illa eftir aðeins 14km inná sérleiðinni og handleggsbrotnaði.
Hérna er skemmtilegt sjónarhorn á fullri ferð. https://www.facebook.com/share/r/14WQfHT3UNu/
Ricky Brabec(Honda) hefur eins og Daniel Sanders verið á palli eftir hverja leið það sem komið er og nær því að tikka inn bónustíma, það er partur af taktíkinni að ná inn sek þar.
“við byrjuðum á góðum stað held ég, við erum passlega nálægt fremstu mönnum til að ýta við þeim og grípa tækifærin ef þeir klikka eitthvað. Markmið mitt í dag var að hanga í Daniel Sanders og ná mér í bónusstig og það gekk eftir. Ég hjólaði hratt, dagurinn gekk bara mjög vel og ég skemmti mér vel.Á morgun byrjar fyrra maraþonið svo ég ætla að ná góðri hvíld í nótt og mæta ferskur á morgun”.
Daníel Sanders(KTM) sem vann í gær og fór því fyrstur inná leiðina í dag tapaði einungis 3mín28sek á Toscha Schareina í dag þökk sé bónustímanum sem var 6mín29sek en sá sem fer fyrstur inná leiðina og nær að leiða í góðan tíma fær góðan bónustíma fyrir það.
“sem betur fer þá er ég ekki fremstur á morgun, hefði í raun ekkert á móti því að starta aðeins aftar. Ég er búin að leiða 2 daga og það eru ansi margir kílómetrar til að leiða. Rötun var erfið í dag, líklega sú erfiðasta sem ég hef lent í en ég er mjög sáttur við hvernig dagurinn gekk“.
Tosha Schareina(Honda) sem vann sinn 3ja sérleiðarsigur í Dakar var að vonum sáttur við daginn.
“það var svo mikið af grjóti í dag, rötun var svo erfið, mjög tæknileg en ég barðist áfram. Taktík dagsins var að vinna og það hafðist en þetta er náttúrulega bara 3 dagurinn. Á morgun byrjar maraþonið og þá verðum við að passa betur uppá hjólin, dekkin og ekki síst okkur sjálfa. Ég starta fyrstur á morgun og vonandi næ ég að leiða sem lengst”.
Á morgun byrjar fyrra maraþonið 495km og þar af 417km á sérleið.
Leiðn liggur um miklar víðáttur en þarna eru hæðir og hólar
Bækistöðvunum er tvískipt, þ.e.a.s mótorhjól á einum stað og bílar á öðrum. Þarna er öll utanaðkomandi aðstoð bönnuð en aðrir keppendur mega aðstoða, sama með verkfæri og varahlutir, þetta verður allt að vera á hjólunum, ekkert utanaðkomandi.
Keppendur verða því að spara hjólin soldið, þarna fá þeir t.d ekki ný dekk eins og venjulega eftir daginn.
Þarna bíða heldur ekki þægilegir húsbílar, þarna verður bara bálköstur, tjöld, dýnur og örugglega góð stemming.
Staðan á leið 3:
1. Tosha Schareina Honda 04:26:39
2. Ricky Brabec Honda +02:17
3. Daniel Sanders KTM +03:28
4. Luciano Benavides KTM +04:30
5. Skyler Howes Honda +06:32(2mín refsing)
6. Ignacio Nacho Cornejo HERO +09:52
7. Ross Branch HERO +10:38
8. Edgar Canet KTM +11:44
9. Adrien Van Beveren Honda +12:45
10. Michael Docherty KTM +12:54
Heildarstaða eftir leið 3:
1. Daniel Sanders KTM 12:12:31
2. Ricky Brabec Honda +01:07
3. Tosha Schareina Honda+01:13
4. Edgar Canet KTM +08:46
5. Luciano Benavides KTM +11:06
6. Ross Branch HERO +14:56(6mín refsing)
7. Skyler Howes Honda +15:41(2mín refsing)
8. Ignacio Nacho Cornejo HERO +20:01
9. Adrien Van Beveren Honda +23:26
10. Michael Docherty KTM +23:26
Dakar kveðja
Dóri Sveins
______________________________________________________________________________________________________________________
Dakar 2026
5 jan – leið 2
Leið dagsins er 504km og þar af 400km á sérleiðum.
Núna stefna keppendur lengra inní landið og nálgast fjallendið og um leið verður leiðin tæknilegri, fyrstu sirka 200km verður engin á blasti því leiðin hlykkjast í gegnum grýtt fjallendið en þegar fjallendinu er sleppt þá gefast tækifæri til að spýta soldið í.
Þessi dagur var erfiður fyrir marga, Sherco knapinn Lorenzo Santolino krassaði eftir 313km og hjólið skemmdist það illa að hann náði ekki að koma því af stað aftur og er því dottin úr Dakar í ár.
Er farið að fækka Sherco hjólum í rallinu því Harith Noah féll út í gær svo það er Bradley Cox sem heldur uppi merkjum Sherco núna. Hann þarf ekki að sækja langt áhuga á Dakar því pabbi hans Alfie Cox sigraði Dakar 3 á sínum ferli.
Eftir að hafa unnið prolocue og leið 1 virtust heilladísirnar líta aðeins undan Edgar Canet(KTM) því eftir að hafa leitt fyrstu 100km í dag þá gerði hann smávægileg mistök sem urðu til þess að Daniel Sanders(KTM) liðsfélagi hann þeyttist framúr
Við lok á þessa 400km sérleiðar og eftir að búið var að reikna saman bónustímana stóð Daniel Sanders(KTM) sem sigurvegari dagsins með 1mín35sek forustu.
En Daniel er verjandi meistari Dakar og með þessir sérleiðasigur í dag er hans 10 á ferlinum.
“eftir gærdaginn þá hristum við soldið upp í taktíkinni, hvíldum okkur svo vel og komum mjög einbeittir til leiks í dag. Leiðin í dag er svipuð og við fórum 2023 og ég þekkti hana ágætlega síðan þá og hún hentaði mér og mínum stíl mjög vel, hún var ansi tæknileg framan af og við gerðum nokkur smávægileg mistök en vorum fljótir að leiðrétta þau svo við misstum lítin tíma og náðum góðum takti í dag. Við vorum ekki að sprengja okkur en klárlega að halda góðum dampi”.
Edgar Canet datt í dag en sem betur fer slapp hann með skrekkinn en tapaði smá tíma á þessu og missti þarmeð Daniel frammúr sér en að öðru leyti átti hann góðan dag.
“Jæja þá er þessari leið lokið, í sannleika sagt þá var þetta mjög löng leið, 400km og ég opnaði inná þessa leið. Ég datt nokkrum sinnum og eitt skiptið þegar ég var að reyna sleppa við að hjóla á Cameldýr en það slapp allt saman, svona gerist bara þegar maður hjólar í svona grýttu og kræklóttur landslagi þegar maður þarf að líta af leiðinni til að skoða leiðarbókina á fullri ferð”.
Ricky Brabec(Honda) kom þriðji í mark í dag, lauk leiðinni 1m46sek á eftir fyrsta manni og er þessi 2faldi sigurvegari Dakar nú 2m18sek á eftir Daniel Sanders.
“staðan eftir leið 1 og 2 er eiginlega sú sama hjá mér, báðar leiðir gengu vel, ég er sáttur við stöðuna mína en var í raun að vonast til að vera aðeins aftar fyrir leið 3 en á morgun munum við reyna spila á þetta og ná okkur í einhvern bónus, ef við náum að ná góðum tíma þar og vinna nokkrar bónus sek þá er maður sáttur. En núna er ég bara nokkuð sáttur, er í góðri stöðu og hef mína helstu keppinauta rétt fyrir framan mig og meðan ég passa að hafa þá í augsýn þá er þetta gott”.
Flestir af topp ökumönnum duttu nokkrum sinnum í dag, ýmist útaf öllu grjótinu, litlu skyggni í rykinu, vegna cameldýra eða eyðimerkurrunnana en þeir eru skeinuhættir, stórar nálar á þeim sem gefa engan grið.
Honda knapinn Adrien Van Beveren sem hefur klárað tvö síðustu Dakar í 3 sæti datt illa í dag og missti mikin tíma og er nú 14mín á eftir fyrsta manni.
“þetta var erfiður dagur, mér gekk vel í byrjun en við fyrsta bensínstopp sá ég að afturdekkið var byrjað að rifna en það slapp til en stuttu eftir að ég komst af stað aftur lenti ég að tré á fullri ferð, hvernig það gerðist veit ég ekki en þetta er jú partur af þessu svo já ekki minn besti dagur en ég er ennþá með í keppninni”.
Það er koma í ljós að menn eru farnir að leika soldið inná þessar bónussek og það voru þær sem lyftu þeim félögum Daniel Sanders og Edgar Canet upp í efstu sæti í dag en það er líka erfitt að fara fyrstur inná leiðina og þetta er vel unnar bónussek.
Þó það séu KTM hjól í fyrstu 2 sætum dagsins þá eru 4 Hondur að naga hælana á þeim og ljóst að baráttan mun verða hörð.
Ross Branch(HERO) sem átti hraðasta tíma í gær kom 6 í mark í dag og með því vann sig uppí 5 sæti yfir heildina.
Eftir 2 leiðir eru 14mín á milli 1 og 10 sætis en það getur breyst á augnabliki svo það er ekkert í hendi ennþá.
Leiðin á morgun er löng, 736km og þar af 422km á sérleiðum og mun reyna mikið á færni manna á leiðarbókinn þar sem klettarnir líta allir eins út og seinni hlutan eru mjög margir slóðar sem liggja í allar áttir, mjög svo villandi.
En staðan í dag er:
1. Daniel Sanders KTM, 04:13:37
2. Edgar Canet KTM, +01:35
3. Ricky Brabec Honda, +046
4. Skyler Howes Honda +03:15
5. Tosha Schareina Honda, +03:34
6. Martin Venture Honda, +03:53
7. Ross Branch HERO +03:56
8.Michael Docherty KTM +05:48
9. Luciano Benavides KTM +07:11
10. Adrien Van Beveren Honda +08:58
Staðan yfir heildina:
1. Daniel Sanders KTM, 07:42:24
2. Edgar Canet KTM, +00:30
3. Ricky Brabec Honda, +02:18
4. Toch Schareina Honda +04:41
5. Ross Branch HERO +07:46
6. Luciano Benavides KTM +10:04
7. Skyler Howes Honda +12:37
8. Jose Ignacio Corneji Florimo HERO +13:37
9. Michael Docherty KTM +14:00
10. Adrien Van Beveren Honda +14:09
Dakarkveðja
Dóri Sveins
_______________________________________________________________________________________________________________________
4 jan – leið 1
Leið dagsins er 518km sem skiptist í 213km á ferjuleiðum og 305km á sérleiðum.
Fyrri hlutinn í dag liggur um frekar grýtta leið, hluta til í gegnum gróf og þröng gil sem eru ekki auðveld yfirferðar.
Svo tekur við meiri sandur en undir honum geta leynst varasamir steinar til að byrja með og svo færist þetta meira í litlar sandöldur sem gefur keppendum möguleika á meiri hraða.
Á þessari leið verður í fyrsta skipti leyfð dekkjaskipti og smá viðgerðir en eingöngu í bílaflokki.
Bónustíma(Time bonus)
Þar sem keppendur voru farnir að vera með allskonar leiki í kringum að klára ekki sérleiðir í fyrsta sæti, t.d að hægja vel á sér rétt fyrir marklínu ofl skrítið voru settar nýjar reglur, þ.e.a.s sá sem opnar leið fær bónustíma eða réttara sagt dragast ákveðin fjöldi sek af heildartímanum.
“til að reikna út tímabónus: vegalengd milli vegpunkta(waypoints) er margfölduð með 1sek, t.d ef það eru 24km á milli 2ja bónus vegpunkta þá fær sá fyrsti sem kemur að þeim vegpunkti 24sek dregnar af heildartímanum sínum”.
En Mohammed Albalooshi(Honda) sem fór fyrstur af stað í dag(kom síðastu í mark í prologue í gær) og þetta er nákvæmlega sama og hann gerði 2025 á lítin séns í þessa toppökumenn en nær að koma nafni sínu á blað með þessu, gaman af því.
Skilaði hans sér 45 í dag rúmum 4 tímum á eftir fyrsta manni.
Edgar Canet(KTM) fór mjög ákveðin af stað í dag og fyrstur til að ná fyrsta vegpunkti við 28km markið en þrátt fyrir það þá var Ross Branch(HERO) fyrstur í fyrsta eldneytisstoppi við 215km markið 54 sek á undan Daniel Sanders(KTM), 1m11sek á undan Edgar Canet(KTM) og 1m36sek á undan Ricky Brabec(Honda).
Ross Branch(HERO) var hraðastur að klára þessa 305km á sérleiðinni en fékk 6mín refsingu vegna of mikils hraða á hægu svæði, eitt af því sem keppendur gleyma oft en refsing er hörð við svoleiðis brotum, er þetta helst í kringum þorp eða þar sem eru miklar hættur.
Varð þetta til þess að hann féll í 7 sæti í dag.
Það fór því þannig að Edgar Canet(KTM) stóð uppi sem sigurvegari dagsins með rétt rúma mín á liðsfélaga sinn Daniel Sanders(KTM).
“að vinna í gær gaf mér gott sjálftraust inní þennan dag og það kom sér vel þar sem leið dagsins var nokkuð tæknileg, ýmist mjög hratt eða hægt, sandur og grjót en ég náði að halda góðum takti fyrir utan örlítil mistök í byrjun sem trufluðu ekki mikið”.
Í öðru sæti í dag var Daniel Sander(KTM), sýndi hann mjög yfirvegaðan akstur í dag. Það blés á köflum vel um þá með tilheyrandi ryki. Reynslan skilaði sér og hélt hann fókus í allan dag.
“ástandið í dag var soldið erfitt útaf stífum vindi á köflum sem þyrlaði upp miklu ryki sem truflaði mikið, á köflum nánast ekkert skyggni. En það var líka gott fyrir sálina að komast í gegnum þann kafla óskaddaður.
Ég er spenntur fyrir komandi dögum sem eru grýttir og henta mér vel”.
Adrien Van Beveren(Honda) var í smá brasi í dag með frambremsuna hjá sér sem truflaði hann í allan dag, sérstaklega í grýta kaflanum en með þrautseigju kom hann sér í gegnum daginn í 8 sæti og situr 9 sæti yfir heildina.
Liðsfélagi hans Skyler Howes(Honda) átti heldur ekki góðan dag, lenti hann í miklu ryki fljótlega inn á leiðinni og keyrði á grjót og féll við það og beygði stýrið, það er ekkert grín að hjóla þannig fleiri hundruð kílómetra í sandi og grjóti.
Hann barðist samt áfram og skilaði sér í 9 sæti í dag og er 9 í heildina.
Ricky Brabec(Honda) átti góðan dag, startaði á góðum stað og sýndi góða takta í grjótinu sem skilaði honum í 3 sæti í dag og situr hann einnig í 3ja sæti í heildina.
“ég held að þetta hafi ekki verið nein sérstök herkænska hjá mér, ég ákvað bara að halda góðum fókus og hraða, ekki sprengja mig á fyrsta degi sem heppnaðist bara vel”.
Leið morgundagsins er 504km og þar af 400km á sérleiðum sem eru grýttar og munu taka vel á.
En staðan eftir leið 1 er:
Niðurstöður á leið 1
1. Edgar Canet KTM, 3:16:11
2. Daniel Sanders KTM, +00:01:02
3. Ricky Brabec Honda, +00:01:32
4. Tosha Schareina Honda, +00:01:49
5. Luciano Benavides KTM +00:03:47
6. Ignacio Cornejo HERO +00:03:48
7. Ross Branch HERO +00:04:39
8. Adrien Van Beveren Honda +00:05:52
9. Skyler Howes Honda +00:09:55
10. Stefan Svitko KTM +00:12:26
Heildarstaða eftir leið 1
1. Edgar Canet KTM, 3:27:42
2. Daniel Sanders KTM, +01:05
3. Ricky Brabec Honda, +01:37
4. Tosha Schareina Honda, +02:12
5. Luciano Benavides KTM, +03:58
6. Ignacio Cornejo Hero, +04:53
7. Ross Branch HERO +04:55
8. Ardian Van Beveren Honda +06:16
9. Skyler Howes Honda 10:27
10. Stefan Svitko KTM +13:18
Dakarkveðja
Dóri Sveins
__________________________________________________________________________________________________________
3 jan
Dakar 2026
Opnunarhátið og prologue
Prologue er stuttur dagur, 98km í heildina og þar af 23km sem sérleið.
Þetta er hugsað til að hrista keppendur aðeins í gang fyrir stóru dagana og síðasti séns fyrir alla að stilla keppnistækin fyrir komandi átök.
Sá sem klárar prologue fyrstur velur sér fyrst rásstað fyrir morgundaginn, það vill engin af toppökumönnum t.d fara fyrstur af stað.
Það er erfiðasta staðan því þú ferð hægar yfir því þú ert að leggja leiðina og þeir sem á eftir koma hafa þá för til að fylgja og geta því farið hraðar yfir.
Í gegnum tíðina hafa verið allskonar leikir í kringum að koma ekki fyrstur í mark á leið dagsins til þess að starta ekki næsta dag, var þetta best að segja orðin pínu hallærislegt á köflum að horfa á þessa leiki.
Fór svo að reglum var breytt og fá keppendur sem starta deginum smá bónustíma í staðinn fyrir að leiða og eru margir keppendur farnir að spila inná það í dag.
Það var Edgar Canet(KTM) sem kom fyrstur í mark í dag, 3 sek á undan liðsfélaga sínum Daniel Sander(KTM) sem sigraði Dakar 2025 og 5 sek á undan Ricky Brabec(Honda).
Hann Edgar Canet er gaur sem maður mun fylgjast með, hann er að keppa í sínu öðru Dakar og með því að sigra prologue í dag er sá yngsti til að vinna sérleið í Dakar bara 20 ára, það er ekki slæmt í ferilskránna en hann byrjaði í keppnisliði KTM í fyrra 19 ára og kom inn með látum.
Var í 3 sæti í prologue, lauk 7 leiðum á topp 10, var í 2 sæti á leið 7 og sigraði Rally2 flokkinn og 8 sæti yfir heildina, frábær árangur á 1 ári í Dakar.
En þrátt fyrir að vera stuttur dagur þá er þetta ekki auðvelt, það fékk Neels Theric(KOVE) að upplifa en hjólið stoppaði hjá honum eftir 6km, eitthvað rafmagnsvesen en það tók hann tæpa 2 tíma að komast hann aftur af stað en það dugði stutt því þegar hann átti 3km eftir þá dó það aftur og varð hann að ýta hjólinu restina og það í 35 gráðu hita, þvílík harka!
Hann tók þessu nokkuð létt og sagði þegar hann var búin að ná andanum eftir að komast yfir marklínuna “ef ég hefði vitað að þetta yrði svona erfiður dagur þá hefði ég borðað meira í morgunmat”
Vonandi er máltækið “fall er faraheill” í gildi og honum gangi betur með restina.
Þegar niðurstaða dagsins var ljós sagði Edgar Canet(KTM) “ég er í skýjunum yfir þessu, náði góðum takti og 100% fókus á leiðarbókinni, bremsa vel fyrir hættulega staði og taka enga sénsa. Ég náði góðum takti og náði að halda góðum hraða svo þetta er gott nesti inní keppnina”.
Daniel Sander(KTM) hafði þetta að segja “ég er ánægður að vera hérna og búin með prologue. Það var mun hraðara en ég átti von á en ekki svo tæknilegt svo það var ekki mikil möguleiki á að vinna upp tíma í því. Þetta var eiginlega bara full ferð allan tímann en gott að þetta er búið og svo byrjar alvaran á morgun”.
Fyrsta alvöru leiðin er á morgun og er 518km í heildina og af því eru 305km á sérleiðum.
Þeir fyrstu af stað á morgun eru:
1. Mohammed Albalooshi(Honda)
2. Lorenzo Santolino(Sherco)
3. Ignacio “Nacho” Cornejo(HERO)
4. Mason Klein(HOTO)
5. Bradley Cox(Sherco)
6. Stefan Svitko(KTM)
7. Martin Michek(HOTO)
8. Skyler Howes(Honda)
9. Adrien Van Bevern(Honda)
10. Tosha Schareina(Honda)
11. Michael Docherty(KTM)
12. Ross Branch(HERO)
13. Luciano Benavides(KTM)
14. Ricky Brabec(Honda)
15. Edgar Canet(KTM)
16. Daniel Sanders(KTM)
Þarna sést að toppökumenn eru að raða sér í sæti 12-16 í startinu, þá hafa þeir góð hjólför á undan sér til að fylgja og þurfa því ekki að hanga eins mikið í leiðarbókinni og komast því hraðar.
Dakarkveðja
Dóri Sveins
_______________________________________________________________________________________________________
3. jan
Nú er Dakar rallið að fara byrja, þetta er líklega erfiðasta aksturiþróttakeppni ársins.
Stendur yfir í 14 daga og er mikil veisla fyrir mig og fleiri.
Oft hef ég skrifað um þetta rall, fer soldið eftir nennu og tíma en ég tók smá saman um þetta rall fyrir þá sem hafa áhuga.
Dakar 2026
Ýmsar upplýsingar um rallið.
Þetta er 48 Dakar rallið og það sjötta sem er haldið í Saudi Arabíu.
Rallið er um 8000km í heildina og þar af um 5000km í keppni(hitt eru ferjuleiðir).
Það eru maraþondagar í báðum vikum og verður það með svipuðu sniði og í fyrra, samanstendur af 48 tíma tímabili með nokkrum bæki-/náttstöðum en eftir vissan tíma þurfa keppendur að koma sé í þá bækistöð sem er næst þeim og verða að ná því á tíma.
Þar er öll utanaðkomandi aðstoð bönnum, keppendur verða að notast við það sem þeir hafa á faratækjum sínum og eingöngu þiggja aðstoð annara keppenda.
Einnig er ný regla þar sem verða leyfðar þjónustustöðvar inná nokkrum leiðum þar sem má skipta um dekk og gera minniháttar viðgerðir.
Aðskilnaður milli hjóla og bíla sem var fyrst reynt í fyrra er aukið í ár í 4 daga sem eykur öryggi keppenda, sérstaklega þeirra sem eru á mótorhjólum og gerir um leið daga erfiðara fyrir bílana því þeir hafa þá ekki hjólförin eftir hjólin til að elta, sáum við marga hreinlega snúast um sjálfan sig í fyrra þegar þeir þurftu að rata sjálfir.
Skoðunardagar eru 1 og 2 janúar en 3ja janúar er opnunarhátíðin og einnig keyrðir 23km á sérleið, niðurstaða frá því gefur keppendum séns á að velja sér rástað og það vill engin opna 1 daginn og vera fremstur.
- Leið 1 til 3 munu einkennast af sandi og svörtu grjóti, grófar leiðir sem munu taka vel á fjöðrunarkerfum og keppendum.
- Leiðir 4 og 5 eru fyrri maraþondagarnir þar sem keppendur verða að spara keppnistækin en samt ekki gefa mikið eftir. Þarna koma reynsluboltarnir sterkir inn.
- Leið 6 er svo lengsti dagur Dakar 2026, heilir 920km takk fyrir og liggur leiðin um sandöldur og gljúpan sand.
- Dagur 7 er svo kærkomin hvíldardagur, þ.e.a.s fyrir keppendur ekki viðgerðarliðið.Reyna keppendur að hvílast eftir fyrstu vikuna og undirbúa sig fyrir seinni vikuna meðan viðgerðaliðin keppast við að græja tækin fyrir næstu átök en það fá ekki allir hvíld. Hetjurnar í Orginal by Motul fá litla hvíld þar sem þeir þurfa sjálfir að yfirfara sín hjól á sama tíma og þeir reyna að jafna sig eftir fyrstu vikuna.
- Leið 7 og 8 eru mjög erfiðar enda miklar sandöldu og svo kallað “fuss fuss” sem einskonar púðursandur með nánast engu gripi og svakalegu ryki.
- Leið 8 er næstum 500km á sérleið svo það mun taka vel á.
- Leiðir 9 og 10 eru svo seinni maraþondagarnir skilja leiðir á milli mótorhjóla og bíla, þarna er þreytta of farin að þjaka keppendur og keppnistækin farin að gefa sig, seinni maraþondagurinn er strembin í gegnum eyðimörkina og sandöldum.
- Leið 11 er kölluð úrslitaleiðin þar sem hún er bæði löng og erfið, liggur um gróf og grýtt gil og svo sandur þess á milli.
- Leiðir 12 og 13 einkennast af miklum hraða en einnig mjög tæknilega þar sem rötun skiptir miklu máli.
Orginal by Motul eða það sem var kallað Malle Moto áður er flokkur fyrir þessa hörðustu.
Þeir verða að sjá um sig sjálfir að öllu leyti, þ.e.a.s keppa og sjá um allt viðhald á hjólunum, þetta er gríðarlega erfitt.
Hjóla allan daginn og svo þegar komið er á áfangastað þá að byrja gera við og græja fyrir næsta dag, þetta þýðir oft á tíðum lítin svefn og mikla þreytu, miklar hetjur þar á ferð.
Þess má einnig geta að þetta er 6 Dakar þar sem “Dakar Classic” en það eru keppnistæki sem eru árgerðir 1980 til 2000, þessi flokkur ferð stækkandi og eru um 100 keppendur þar þetta árið.
Þessi flokkur mun keyra 7280km og þar af eru 4126km á tímaleiðum en þeir eru því ekki að fara allar sömu leiðir og aðrir keppendur.
Nokkra tölur um Dakar 2026:
Fjöldi keppenda er 812
Fjöldi keppnistækja er 433
118 mótorhjól, þar af 27 í Orginal by Motul flokknum
73 rallybílar
38 buggy bílar
43 SSV
46 vörubílar
8 orginal, lítið breyttir bílar(bílaframleiðendur að prófa sína bíla)
75 classic bílar
24 classic trukkar
7 vistvæn/rafdrifin mótorhjól
1 rafdrifin vörubíll
39 konur, þar af 19 í Dakar classic
144 nýliðar
107 Legends
Keppendur eru af 69 þjóðernum
Og fyrir okkur mótorhjólafólkið þá skiptast hjólategundir svona:
59 KTM
22 Honda
14 Husqvarna
9 Kove
3 HERO
3 HOTO
3 SHERCO
2 GasGas
1 Yamaha
3 Segway
3 Artic Leopard
1 Stark








