Jæja þá eru hjónin lögð af stað í mótorhjólaferð og mér reiknast til að þetta sé sjöunda ferðin síðan við keyptum hjólið 2019! 

Dagbókarfærslur. Hólmars Erlu Svansonar og Eyrúnar Svövu Ingvarsdóttur.

16sept  2026
Eyrún.
Jæja þá eru hjónin lögð af stað í mótorhjólaferð og mér reiknast til að þetta sé 7.unda ferðin síðan við keyptum🏍️ hjólið 2019 Við erum svo heppin að vinir okkar í München, Michel og Regina, geyma hjólið fyrir okkur, án þeirra væri þetta flóknara. Að þessu sinni fór Hólmar á undan mér og ætlaði aðeins að ditta að hjólinu en sendi mér kvöldið áður en ég kom „hjólið er bilað!“ Nú jæja, plan B, ég sagði, leigjum okkur bíl, sem við gerðum, blæjubíl til þess að fá smá meiri mótorhjóla fíling, en ég segi sem betur fer varð það bara í einn dag, því hjólið komst í lag 👏 Vitiði, að vera á hjólinu er bara allt önnur upplifun; frelsið, nálægðin við náttúruna og þurfa bara að taka eftir, hugleiða og njóta, þvílík forréttindi🙏 Hjóluðum fyrsta daginn frá München til Passau, falleg borg þar sem 3 ár koma saman, Dóná, Inn, Ilz svo við skelltum okkur í smá siglingu. Svo var haldið í gegnum Austurríki til Tékklands þar sem fyrsti áningarstaður var Cesky Krumlov, vá ekkert smá falleg lítil borg, mælum með😊Áfram var haldið og erum við núna í Jihlava í rólegheitum í áttina að Búdapest næstu daga. Hólmar velur „avoid highways“ en „curvy sveitavegi,“ svo við tökum öllu rólega að ósk barnanna okkar😍 Líkt og áður, vorum við bara búin að panta fyrstu nóttina, Hólmar gerir akstursplanið og við pöntum gistingu frá degi til dags. Hitastigið er fullkomið til að hjóla, 20-26 gráður☀️Lífið er ljúft🥰

Hólmar.

Nú erum við Eyrún lögð af stað í Evrópuferð um nokkur „sjálfstæð ríki álfunnar“ á mótorhjóli 😉
Þar sem hjólið mitt er alltaf í geymslu og því hefur ekki gefist mikill tími til „skrúfudaga“. Að sinna viðhaldi síns mótorhjóls er bara hluti af verkinu sem verður að sinna. Samanber „Zen and the art of motorcycle maintenance“ 🏍
Svo ég fór að „tune up“ mitt gamla 24 ára BMW R1150RT hjól. Þá setur maður inn nýjan forritaðan örgjörva sem nýtir aflið betur en BMW mönnum hugkvæmdist í byrjun aldarinnar.
Þetta var auðvitað bara verkefni. Ég reif af bensíntankinn og við það brotnaði hraðtengi úr plasti. Það flæddu nokkrir lítrar af bensíni yfir mig, vélina og auðvitað verst af öllu bílskúrsgólf Michel vinar míns. Hann var ekki heima svo ég stóð með puttann í bensínslöngu í líklega 5 mínútur að meta stöðuna. 🫣
Svo var hlaupið af stað og sótt fata og bensínið flæddi ekki lengur út á gólf.

Barist við blæjuna

Þá tók við hlé meðan ég og Chat gpt ræddum stöðuna. Varahlutur frá BMW fengist eftir ca eina viku. Hmmm.
Þetta er laugardagur og allt lokað…

Ég sæki Eyrúnu á flugvöllinn á sunnudaginn og ég verð nú hrósa henni fyrir stillingu og lausnarmiðun þegar við ræddum, hvort við tækjum bíl á leigu, mótorhjól á leigu eða bara að fara fyrr heim.
Við reyndum að gera gott úr þessu og strákurinn sem leigði mér bíl vorkenndi okkur svo að við fengum blæjubil til að upplifa smá vind í „hárið“ þó ekki væri nú meira.
Við auðvitað tökum niður toppinn og keyrum um. Svo var kominn kvöldmatartimi. Nema hvað helvítis toppurinn vildi ekki fara upp. Þetta varð nú að löngu spjalli við Chattið um lausn mála. Nema hvað þá fer að rigna. Ekki bara Reykvískur úði heldur bomburigning. Ég þurfti í hvelli að finna leið til að yfirvinna vökvakerfi sem sagði að toppurinn væri hvorki uppi né niðri og neitaði að hreyfast. Það átti að vera hægt með því að ná niður aftursætum og klifra inn í skottið til að ná að losa handvirkt um blæjuna. Michel vinur minn náði þessari skemmtilegu mynd þegar næstum 2 metra maður var að troða sér í skottið á litlum blæjubil.
Þetta hafðist og ég keyrði reyndar um rassblautur þar til hjólið fór í gang.
Ég held að ég fái mér ekki blæjubil frá VW á næstunni

 

Eyrún nýtur sín í mótorhjólaferð,


20 sept
Eyrún
Sjötti dagurinn í gær á mótorhjólinu og erum við komin í fallegu Búdapest þar sem við verðum í fríi frá hjólinu í 2 daga. Allt hefur gengið vel, búin að hjóla um 1000 km og Hólmar minn sérdeilis ánægður með „flöguna“ sem hann setti í djásnið og er alsæll með bætinguna😁 .
Við hjóluðum frá Check Kumlov til Jihlava þar sem við gistum á svo fallegum Airbnb gististað og áfram til Milolov, allt í Tékklandi. Þar færðum við okkur yfir til Slóvakíu, þar sem mér fannst nú frekar tilbreytingarlaust að hjóla, allt flatt og miklir akrar.
Svo eins og hendi væri veifað breyttist landslagið, við Ungverjaland, fjöll og gróður og stoppuðum við í afar fallegum bæ sem heitir Visegrád.
Nýjar upplifanir á hverjum degi og þessi ferðamáti gefur okkur tækifæri til að skoða staði sem ég veit að við myndum ekki heimsækja á bíl 🤔
Veðrið leikur við okkur og ekki yfir neinu að kvarta


 22 sept
Eyrún
Já Búdapest er alveg dásamlega falleg borg og við nutum þess að skoða okkur um í sól og blíðu☀️.
Á sunnudaginn voru gengin rúmlega 30.000 skref með dansuppbót í lok kvöldsins en þið ykkar sem þekkið mig vel, vitið að ég verð fljót að stökkva á vagninn þegar Hólmar er búinn að finna dansstað🤩💃 – ég svo heppin að hann nennir að dansa við mig ennþá 🥰 .
Frá Búdapest var hjólað til Balatan vatnsins og til Héviz, norðvestur af Búdapest og erum við núna komin í lítinn bæ, Köszeg, við landamæri Ungverjalands og Austurríkis.
Búin að hjóla um 1600 km. og allt gengið að óskum, vart dropi úr lofti

 

24sept
Eyrún

Nú fer að síga á seinni hluta mótorhjólaferðarinnar🏍️ en við erum við búin að hjóla um 2000 km. og allt gengið vel, þakklát fyrir verndina og góða veðrið☀️ Erum komin í austurísku alpana með tilheyrandi schnitzel og radler🍻 Hjólaleiðin í dag var gífurlega falleg, fjöll, beygjur og skógar🌲 Ökumaðurinn er snillingur og farþeginn er pollrólegur. Nægur tími gefst til að íhuga, fá nýjar hugmyndir og huga að framtíðinni. Ég hef talað upphátt inn í hjálminum, grátið smá, sem er hreinsun, og líka hlegið og enginn skiptir sér af

Alsæl saman í Evrópuferð


28.sept
Hólmar

Nokkrir hafa spurt mig gegnum tíðina hvernig ég skipuleggi svona langar mótorhjólaferðir.
Það hefur þróast mikið frá því að ég fór mína fyrstu ferð á eigin vegum til Evrópu 2017. Þá var byrjað með stórt kort og blýant… Eitt hefur þó staðist tímans tönn. Ég nota alltaf Scenic motorcycle navigation appið. Þar er hægt að flytja inn og út úr því á netinu, setja upp leiðir, miðla þeim og tracka alla leiðina. Með þessu móti get ég fundið hverja einustu eknu leið mína frá 2017, á hvaða hraða ég var, hvar og í hvaða hæð. Stundum kemur upp hvort við höfum hjólað í gegnum ákveðinn bæ í Ölpunum áður og þá er auðvelt að fletta því upp.

En nú í ár varð töluverð breyting á verklagi. Ég nýtti mér OpenAI og gerði mér þar aðstoðarmann sem hefur aðstoðað mig við að hafa hóflegar dagleiðir. Í gegnum árin hefur stundum þurft að taka langan dag í gegnum seinfarin svæði til að drífa sig heim. Fyrir þessa ferð gaf ég gervigreindinni bara upp uppgangspunkt, lokapunkt, Búdapest og fjölda daga. Ennfremur sagði ég að hámarksvegalengd svona „mótorhjóla daga dagleiða“ ( til aðgreiningar frá „hraðbrautardögum“ sem eru auðvitað á hjóli líka en ekki tilgangur ferðalagsins), og fjöldi tveggja nátta stoppa. Þetta sagði ég henni að vinna eins og reyndur mótorhjólagæd á þessum slóðum.
Svo höfum við útfært okkar í milli hvenær á að taka hlykkjóttu leiðina, en það er bara þar sem hæðarlínur og landslag krefjast þess.
Svo setti ég þetta allt inn í Scenic og merkti þær tillögur sem gervigreindin lagði til um stop og via punkta.
Við erum nú að ljúka einni okkar bestu motorhjólaferð hvað svona framvindu og framkvæmd varðar. Þetta hefði aldrei verið hægt án aðstoðar gervigreindaraðstoðarmannsins. Valdar voru þekktar leiðir og valin gullfalleg stop með reglubundnu millibili til að hámarka ánægjuna.
Ég mun tvímælalaust gera þetta aftur með þessum hætti. Þetta var frábært. Nú er bara að taka síðustu dagleiðina. Tvískiptur dagur, utsýnisferð og hraðbrautin heim til Utting.

 

 29.sept
Hólmar

Maður rekur sig á ýmislegt áhugavert í útlöndum. Við erum bæði búin að vera með kvef sem gengur illa að losna við. Hóstandi hvert upp í annað hér dögum saman.
íslensktættað kvefðmeðal í Austurríki.

Íslensk ættað kvefmeðal

Við stoppuðum í litlum austurrísku þorpi og fórum í apótek og sögðum farir okkar ekki sléttar.
Starfsstúlkan var ekki í neinum vafa. Besta lausnin væru þessar sugutöflur. Jú við fórum að sjúga þetta eins og upp var lagt með.
Eyrún mín fer að lesa utaná pakkninguna. Virka efnið er nefnilega íslenskur mosi!😅
Getur verið að útlendingar viti eitthvað sem við vitum ekki og læðist úr landi með fulla vasa af mosa til að blanda í lyf í Austurríki?
Pakkningin inniheldur 500mg. Ég veit ekki þurrvikt mosa hvað þetta eru margir vasar? Er mosi skráður útflutningsvara frá Íslandi? Er þetta svona eins og skyrklúðrið þar sem við náðum ekki að halda einkaleyfi á aðferðinni og selja framleiðsluleyfi eða upprunaskyldu eins og ítalskir ostar?
Kannast einhver við þetta? Eða er þetta eitthvað scam um að innihaldið sé íslenskur mosi?




29. Sept
Eyrún

Það telst auðvitað töluverð athyglissýki að setja inn margar myndir og statusa af ferðalagi hjóna um Evrópu😉. En ég veit að margir vina okkar hafa áhuga, líklega af því að ferðamátinn er óvanalegur, 60 ára gömul hjón á mótorhjóli, en örugglega líka áhugi á áhugaverðum stöðum sem gæti verið gaman að heimsækja🤔. Hinir skrolla niður🤪.
Frá síðasta status, hjóluðum við til Graz Austurríki þar sem við gistum í 2 nætur, skoðuðum þessa fallegu borg og keyrðum svo til Mariazell, fallegur lítill bær þar sem við lentum á „balli“ með lúðrasveit bæjarins😁 Dóluðum okkur í áttina að München í gegnum kalk-alpanna og Salzburg, alveg ótrúlega fallegt. Hjóluðum alls um 2750 km. í gegnum Þýskaland, Austurríki, Tékkland, Slóvakíu og Ungverjaland. Skemmtilegustu mótorhjóladagarnir voru tvímælalaust Austurríki og Alparnir en allt fallegt, hreint og þrifalegt alls staðar.
Eflaust velta einhverjir fyrir sér hvað svona gistingar kosta í 2 vikur🤔 ekki að við þurfum að réttlæta það neitt, en við erum að borga frá 65 evrum per nótt en meðaltali um 90-100 evrur, oft með morgunmat. Við erum ekki að ferðast á „high season“ og alltaf „last minute“ þar sem við pöntum yfirleitt bara fyrir næsta dag. Þar sem við sáum fram á að vera í burtu allan september meira og minna þá ákváðum við að bjóða upp á Stekkjarhvamm, sumarbústaðinn okkar, á Airbnb. Það hefur fengið rífandi viðtökur og þær nætur sem við höfum leigt þar eru meira virði en allt það sem við greiddum í gistingar á leiðinni okkar! Þetta er bara „WIN-WIN-WIN“ eins og Trump sagði 😁.

En nú er hjólið okkar komið í góða geymslu hjá vinum okkar og heimferð á morgun. Fyrst og fremst er ég einstaklega þakklát Hólmari mínum fyrir frábæra skipulagningu og öryggan akstur og sjálfri mér fyrir að hafa hugrekki til að ferðast með þessum hætti🏍️ Takk öll sem fylgdust með okkur og senduð okkur hvatningu og hrós🥰.


Miklu meira af myndum er að finna á facebok síðu Hólmars