Happdrættsmiði fylgir félagsgjaldi í klúbbinn ef greitt er árgjaldið á netinu fyrir 15 febrúar.
Eftir óformlegan stjórnarfund hjá klúbbnum var ákveðið að halda Happdrætti Tíunnar í lok mars og verður dregið þann 20 apríl sem er sumardaginn fyrsti.
Góð byrjun á sumri að fá vinning;)
Einnig ákvað stjórn að fresta útsendingum gíróseðla til 15 febrúar til að gefa ykkur kost á að greiða félagsgjöldin á netinu , jú því,
allir félagsmenn sem borga félagsgjöldin fyrir 15 febrúar á netinu. www.tia.is/verslun fá einnig einn happdrættismiða í vorhappdrættinu okkar.
Þess ber að geta að það er ykkur og okkur til hagsbóta að félagsgjöldin séu greidd á netinu því að bankabáknið tekur alltaf sinn toll.
Mbk.
Stjórn Tíunnar