Desember 2018
Það er nú misjafnt hvernig hver og einn vill eyða jólunum. Flestir halda í hefðirnar og eyða jólunum heima hjá fjölskyldu og vinum, aðrir fara til dæmis til Tenereef og eyða jólunum í hitanum jafnvel með öðrum íslenskum fjölskyldum.
Svo eru það þeir sem eyða jólunum á Suðurpólnum eins og barst okkur í fréttunum á jóladag að íslendingar hefðu eytt jólunum þar.
En allavega einn úr Tíunni ( Jói Rækja) eyðir jólafríinu á því að keyra Harley Davidson frá Florida til New Orleans og eyða jólunum þar. og svo áramót einhverstaðar í Florida.
______________________________________________________________________________
Ferðasagan í flórida
14 des
Búin að kaupa flug til Orlando næsta föstudag og ætla að eyða jólum í New orleans og áramótum í Miami eða Key West, í Orlando bíður mín faraskjóti í ferðina, ég nefnilega þekki meistara í öllum heimsálfum sem redda Rækjunni Gudmundur hlakka til að sjá ykkur
23 des
Klukkan er 14:00 og aðeins 300km eftir, búið að ganga mjög vel. Er að steikjast úr hita og bjórinn í töskunum orðin 200 gráður
24 des
Myndbönd frá ferðinni Myndaband1 myndband 2
26 des
Aldrei vanmeta náttúruna, fellibyljasvæði, búin að keyra í klukkutíma í gegnum svona svæði og brotna skóga
28des
29des
Fór í gærkveldi á elsta Kiki bar usa, hitti helling af frábæru fólki, tók plankan á barnum og drakk g&t frítt allt kvöldið, þarna var Steve Patmagrian sem er eftirsóttur leikmyndahönnuður hér, geggjað gaman. Í dag er nánast of heitt til að hjóla þannig að ég fór á ströndina í Venice, spjallaði lengi við einn heimilislausan sem kenndi mér að búa til rósir úr pálmablöðum. Venice beach er fræg fyrir hákarlatennur úr 10 milljón ára Megalon sem skolast á land þarna, leigði skóflu og sigti og fann eina flotta, tók svo Interstate niður til Naples, of heitt til að hjóla ströndina. Á morgun keyri ég svo 41 í gegnum Everglades og set inn nýjan póst ef ég verð ekki étin af krókódíl Laugardagskvöld í Naples, farinn út á lífið
30des
Keyrði gegnum Everglades í dag, klappaði krókódíl, smakkaði krókódíl og fór í airboat ride, knúin áfram af gamalli v8 350. Komin til Miami á hótel á besta stað, Miami beach center, kom beint í garð/sundlaugarpartý, ætla að gista hér í 3 nætur og ákveða hvar ég verð á gamlárskv á morgun. Komin með Mohito og lífið er yndislegt
Þegar ég kem á hótelið í Miami þá lagði ég hjólinu fyrir utan þar sem vegaframkvæmdir voru og skellti mér beint í mohito í sundlaugarpatrý. Tíu um kvöldið sé ég blá ljós þar sem hjólið stóð og stekk af stað, þar var mjög alvarlegur lögreglumaður að skrifa sekt á hjólið. Ég segi honum rólega að ég sé frá Íslandi en hann samþykkti það alls ekki því númmerið var skráð í Orlando. Sýndi honum þá vegabréf og hann róaðist allur og segir að sektin standi og ég verði að færa hjólið því það væri dráttarbíll á leiðinni. Ég minnist á það að ég sé búinn með “nokkra” mohito og hann horfði á mig undrandi á þessum upplýsingum og spyr “ok og getur þú keyrt?” ég hélt það nú og fór á sundskýlu af stað að leita að bílastæðahúsi. Fór vel og fegin að hjólið var ekki tekið.
Jói Rækja