Gott kvöld kæru hjólavinir.
Nú er það komið á hreint að næsta landsmót okkar verður í umsjá okkar Grindjánar Bifhjólaklúbbur og ætlum við að gera okkar besta í að tryggja að það verði ekki síðra en síðustu mót.
Síðasta landsmót, sem haldið var á Blönduósi, var frábært í alla staði og ekki von á öðru frá því fólki sem sá um það mót. Staðsetningin. Blönduós, fannst mér, eins og svo mörgum öðrum, frábær, en þar sem við Grindjánar eigum heima í Grindavík, þá verður næsta landsmót haldið þar.
Staðsetning svona samkomu verður alltaf þrætuefni, því verður ekki breytt, en við teljum okkur hafa það sem þarf að gera gott mót.
Gott mót fer hinsvegar alltaf eftir gestum, tel ég. Mín reynsla af bifhjólafólki er sú, að það vantar aldrei uppá gleðina, allir alltaf til staðar fyrir alla, ef á þarf að halda, svo það eruð einmitt þið sem gerið mótin svona skemmtileg
Grindavík hefur fengið gríðarlega neikvæða umfjöllun síðustu ár vegna jarðhræringa og einstaka eldgoss hér og þar.🙂 Ef þetta er að trufla ykkur, hafið þið allan minn skilning, en sem fæddur og uppalinn Grindvíkingur, get ég fullvissað ykkar um, að Grindavík er öruggari en miðbær Reykjavíkur á laugardagskvöldi.
Ég get lofað ykkur því að við munum gera okkar allra besta til að næsta landsmót verði góð skemmtun og gleði frá upphafi til enda.
Kv. Gummi formaður Grindjána.








