Harley-Davidson stöðvar tímabundið smíði bensínmótorhjóla

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 
Harley-Davidson Nightster árgerð 2022.
Harley-Davidson Nightster árgerð 2022.

Sögufrægi mótorhjólaframleiðandinn Harley-Davidson mun stöðva framleiðslu bensín mótorhjóla í tvær vikur vegna vandamála með íhluti frá ónefndum þriðja aðila og reglufylgni. Rafmótorhjól framleiðandans, sem framleidd eru undir merkjum LiveWire verða ekki fyrir áhrifum vegna þessa.

Yfirlýsing vegna málsins á vefsíðu Harley-Davidson sem birtist í gær var stutt og einföld. Vandinn virðist ekki tengjast skorti á íhlutum. Heldur virðist frekar um galla í búnaði eða íhlutum sem keyptir eru af þriðja aðila. Yfirlýsing Harley-Davidson í þýðingu blaðamanns:

„Í gær tók Harley-Davidson, Inc. þá ákvörðun að stöðva alla samsetningu farartækja og sendingar (að LiveWire undanskildu) í tvær vikur. Þessi ákvörðun er tekin af ítrustu varkárni, og byggir á upplýsingum sem koma frá þriðja aðila sem er birgi í starfsemi Harley-Davidson seint á þriðjudag og snýr að reglufylgni sem snýr að íhlut sem birginn framleiðir.“

Harley-Davidson LiveWire 2

Tilvísun til vandræða með reglufylgni getur gefið til kynna að um mengunarvarnabúnað sé að ræða, sem af augljósum ástæðum á ekki við um rafmangsmótorhjólum.

Sala mótorhjóla var talsverð í faraldrinum. Sala Harley-Davidson jókst um 30% á milli áranna 2020 og 2021. Þetta kemur illa fyrir Harley-Davidson sem hefur reynt að höfða til ungs fólks. Hlutabréf Harley-Davidson lækkuðum um rúm 9% í kjölfar tilkynningarinnar.

Visir.is