Það var heldur betur gaman á Haustógleði Tíunnar á laugardagskvöldið er u.þ.b. 70 hjólamenn og konur komu saman og skemmtu sér.
Sleipnismenn héldu tónlistarbingó og það hreinlega rigndi yfir gesti vinningum, því þeir voru mjög veglegir. Kærar þakkir Sleipnismenn.
Tían bauð svo upp á kjúkingasúpu með öllu sem Friðrik og Þóra sáu um að matreiða og kunnum við þeim miklar þakkir fyrir frábæra matarmikla súpu.
Svo opnaði barinn og dúettinn Volta spilaði fyrir okkur fram á nótt.
Takk fyrir okkur þetta var mjög gaman.
- Allir í tónlistarbingó 🙂
- Allir í tónlistarbingó 🙂
- Allir í tónlistarbingó 🙂
- Allir í tónlistarbingó 🙂
- Afmælistertan bragðaðist afar vel













