Women Riders World Relay (WRWR) hófst á miðnætti 1. janúar 2026 þegar sendifulltrúi WRWR á Nýja Sjálandi reið á vaðið með fyrstu keflisafhendingunni í alþjóðlegu boðhlaupi mótorhjólakvenna, sem nú er haldið í annað sinn. Síðan þá hafa yfir 60.000 keflisafhendingar átt sér stað í 80 löndum víðsvegar um heiminn. Löndum eins og t.d. Bandaríkjunum, Bretlandi, Ástralíu, Malasíu, Zimbabwe, Mongolíu, Pakistan, Íran, Perú, Sviss, Ekvador, Kosovo og Íslandi svo einhver séu nefnd.
Ekki nóg með það að konur séu á fullu að kynnast hver annarri og mynda sambönd um allan heim – þann 31. maí 2026 munu WRWR konur leiða TT „Legacy Lap“ á Mön (Isle of Man) og er það í fyrsta sinn í sögu keppninnar sem hópur kvenna leiðir keyrsluna. Allavega tvær íslenskar konur verða þar á meðal, undirrituð er önnur þeirra.
HVAÐ ER WRWR?
Árið 2019 náðum við í WRWR árangri sem engum hafði tekist áður. Við tengdum saman rúmlega 20.000 konur frá yfir 102 löndum um allan heim, með þátttöku í stærsta mótorhjólaboðhlaupi heims.
Þetta var ekki bara einstök ferð – þetta gjörbylti mótorhjólaiðnaðinum og myndaði ný tengsl milli mótorhjólakvenna um allan heim.
Nú höfum við þróast og í sönnum WRWR-stíl höldum við áfram boðhlaups-arfleifðinni og ætlum að hrista upp í heiminum árið 2026.
Markmið okkar er að tengja saman ALLAR MÓTORHJÓLAKONUR HEIMSINS og til að gera það mögulegt höfum við hannað app – WRWR appið.
Við stuðlum að auknum tengslum milli kvenna með appinu okkar, skorum á konur að verða betri ökumenn í gegnum áskoranahluta appsins og breytum sýn heimsins á mótorhjólakonur.
WRWR appið er ekki bara app, þetta er lykillinn okkar að því að tengja saman og fagna mótorhjólakonum um allan heim, með einni rafrænni keflis-afhendingu í einu.
Mótorhjólakonur um allan heim hafa brugðist við kalli okkar og deila áhuga okkar á þessari gríðarlegu áskorun.
Vertu með í alheimsrödd mótorhjólakvenna, segðu heiminum að við séum til og vertu hluti af einhverju sem er svo miklu stærra en við öll.
Við erum Women Riders World Relay.
Tengstu. Áskoraðu. Breyttu.
AF HVERJU WRWR?
Women Riders World Relay (WRWR) var fyrst haldið árið 2019 með það í huga að koma á alþjóðlegu systralagi mótorhjólakvenna og auka sjálfstæði og hugrekki þeirra, ævintýraþrá, einingu og ástríðu fyrir mótorhjóla sportinu.
WRWR vildi með þessu einnig vekja athygli iðnaðarins á mótorhjólakonum sem markaðshóp, en oftar en ekki hafa mótorhjólakonur átt í erfiðleikum með að fá fatnað, og annan búnað tengdum mótorhjólum, sem passar og hentar konum. Síðan 2019 hefur margt breyst til hins betra en betur má ef duga skal og við erum komnar af stað aftur.
FYRIR HVERJA ER WRWR?
Allar konur sem keyra mótorhjól, skellinöðrur og vespur – hér skiptir gerð hjóls og mótorstærð ekki máli – en WRWR er líka fyrir þær sem vilja „bara“ vera farþegar. Við gerum ekki upp á milli. Ef þú ert mótorhjólakona og hefur áhuga þá ertu hjartanlega velkomin í hópinn.
HVER ER TILGANGUR WRWR?:
TENGJA:
– að tengja saman mótorhjólakonur, hitta hver aðra augliti til auglitis og til að tengjast með keflisskiptum gegnum app, svo við getum hvatt hverja aðra áfram og stutt hverja aðra í uppbyggjandi umhverfi
– að tengja saman eins mörg lönd og hægt er með milligöngu mótorhjólakvenna og búa þannig til tengslanet fyrir þær
– markmiðið er að sýna heiminum hversu margar mótorhjólakonur eru til, vitandi að við höfum allar tengst í gegnum arfleifð WRWR keflisins, og vera samskiptabrú milli iðnaðarins og kvennanna
ÁSKORUN:
– að hvetja mótorhjólakonur að vera besta útgáfan af sjálfum sér sem ökumenn
– að bæta tengslin milli mótorhjólakvenna annars vegar og hins vegar milli mótorhjólakvenna og iðnaðarins
– að styðja betur við nýliða
– að ögra staðalímyndum
BREYTA :
– skilningi og sýn heimsins á konum í mótorsporti með því að hampa afrekum þeirra um allan heim og hvetja um leið fleiri konur til að taka þátt í samfélagi mótorhjólakvenna
– veita iðnaðinum þau verkfæri og úrræði sem þarf til að hann viðurkenni mótorhjólakonur (sem markhóp)
MARKMIÐ WRWR?
Að tengja saman allar mótorhjólakonur heimsins!
Vertu með!
Sendifulltrúi WRWR á Íslandi er:
Ragnhildur Arna Hjartardóttir (Ragga)
ragnhildur.a.hjartard@gmail.com
Hér er hægt að kynna sér málin betur:
https://www.instagram.com/wrwrapp/
og hér er Facebook hópur fyrir þær konur sem vilja vera með:








