Árleg hópkeyrsla mótorhjólafólks í minningu Heiðars Þórarins Jóhannssonar verður sunnudaginn 17. maí nk.

Heiðar  lést af slysförum árið 2006 og í mörg ár hafa félagar í Tíunni, bifhjólaklúbbi Norðuramts, farið slíkan minningarakstur. 

 Klúbburinn Tían var stofnaður árið sem Heiðar lést í minningu hans, og nafnið er þannig til komið að Heiddi var Snigill númer #10 í Bifhjólasamtökum lýðveldisins, Sniglunum.

Leiðið  I6-64″ í Kirkjugarði Akureyrar

Hittumst í Kirkjugarði Akureyrar við leiðið hans Heidda  kl. 13.00 .

Lagt af stað í keyrsluna kl. 13.30 tekinn hringur um bæinn og endum við Mótorhjólasafni Íslands þar sem Tían býður upp á léttar veitingar.

ATH ALLIR UNNENDUR MÓTORHJÓLA VELKOMNIR

Tengill á viðburðinn á Facebook

Heiddi og hundurinn hans Rögg á Softtail Harley