Bifhjól brann til kaldra kola á Hámundarstaðahálsi skammt frá Dalvík í dag.

Engann sakaði en eigandinn Ómar Geirsson  varð var við einhverja bilun í hjólinu og ákvað að stöðva farartækið þegar í stað á veginum og athuga hvað væri að,  skömmu seinna braust út eldur í hjólinu og brann hjólið án þess að neitt hafi hægt verið hægt að gera.
Bifhjólið Honda Goldwing var fornhjól árgerð 1988,   en Ómar var nýlega búinn að fjárfesta í því og var að koma með það úr ástandskoðun áður en óhappið varð.

Slökkvilið Dalvíkur mætti svo á staðinn eftir að hringt var í neyðarlínuna og slökkti eldinn.       
Hjólið er Handónýtt eftir eldinn!

Myndir: Ómar Geirsson

Hér er sagan eins og Ómar segir hana  á facebook.

Erfiður dagur í dag, skrapp með 1500 Goldwing í skoðun á Akureyri og rúntaði eitthvað þar, en á heimleiðinni fór hjólið að verða eitthvað öðruvísi en maður á að venjast og stoppaði ég því þarna á Hámundstaðarhálsi ( fékk að heyra það að ég væri fífl og ansni að stoppa þarna og vera í símanum, geðstyrð kona að garga út um gluggann) ég hringdi í kunningja þar sem ég var ekki með nein verkfæri meðferðis (nýbúinn að kaupa þetta hjól) á meðan ég var í símanum byrjaði að rjúka undan hjólinu að aftan og myndir sýna rest. En það kom líka fólk og athugaði með mig og þakka ég því fyrir. En ást og friður.