Bifhjólasamtök Lýðveldisins, Sniglar halda mótorhjólasýningu 28. mars til 1. apríl til að fagna 40 ára afmæli samtakanna.
Við erum að leita að flottum hjólum á sýninguna og biðjum þau ykkar sem hafa áhuga á að sýna dýrgripina að hafa samband, við annað hvort Ólaf Arnar Hjartarson eða Njál Gunnlaugsson. Hjólin þurfa að vera sýningarhæf og sýningarnefnd mun svo velja úr um 100 mótorhjól til sýningar.