11.5.2023

Opnað hefur verið fyrir skráningu á dómnefndarnámskeið AKÍS, en það er með nýju sniði núna.

Námskeiðið er opið fyrir alla sem hafa áhuga á að kynnast og taka þátt í störfum dómnefnda.

Þeir sem skrá sig fá tengil í myndbönd þar sem farið er yfir námsefnið og rætt um það. Þannig getur hver sem er „setið“ námskeiðið hvenær sem er sólarhrings, eftir því hvað hverjum er heppilegt.

Síðan verður sameiginlegur verkefnisfundur þar sem farið verður yfir helstu atriði og dæmi leyst.

Til að skrá sig þarf að fara inná skráningarsíðu dómnefndarnámskeiðsins og fylla út skráningarformið sem þar er að finna.

Komdu og vertu með.

Stjórn Tíunnar hvetur félaga sína til að taka þátt, því það er alltaf gott að eiga meðlimi með réttindi í keppnishaldi.