Þar sem það var nú pínu jólalegt um að litast í dag er rétt að ég upplýsi hver verður jólabókin í ár.
Sovétför Sniglabandsins var að koma úr prentun og verður til sölu í öllum betri bókabúðum og náttúrulega á vef bókaútgáfunnar, ymur.is
Eins og suma grunar eflaust fjallar bókin um ferð hljómsveitarinnar til Sovétríkjanna sálugu rétt áður en þau liðuðust í sundur. Þetta var viðburðaríkt og ævintýralegt ferðalag.
Bókin er ríkulega myndskreytt af Einari Rúnarssyni orgelhesti.
www.ymur.is

Skúli Gautason