Já Tíusíðan er án vafa ein vinsælasta mótorhjólasíða landsins.  Hún er mjög virk í að deila því sem um er að vera í mótorhjólaheiminum enda er hún rekin af mótorhjóladellufólki.

Einu sinni á ári óskum við eftir auglýsendum á síðuna hjá okkur.
Fyrir vægt gjald er nefnilega hægt að kaupa sér árs-auglýsingu á Tíuvefnum.

Við hvetjum fyrirtæki til að hafa samband við okkur í tian@tia.is og kanna málið, því ef þú vilt hitta á markhópinn en yfir 60 þúsund manns skoða síðuna árlega.

Við erum þegar búin að endurnýja samninga við nokkra af okkar frábæru auglýsendum.
En viljum nota tækifærið og þakka kærlega þeim sem studdu okkur með auglýsingum á síðasta ári.