Við sem höfum langa reynslu af Landsmótum Snigla/síðar Bifhjólafólks muna eftir orginal Landsmótsúpunni.
En það var afar kraftmikil beikonsúpa sem Heiddi heitinn eldaði ár eftir ár á upphafsárum landsmóts.


Súpan var afar orkumikil og má alveg segja að hún hafi knúið helgina.Var hún ætið á boðstólnum á föstudagskvöldinu eins og er enn í dag þó reyndar hafi verið svolítið langt síðan Beikonsúpan var elduð síðast. 

Þessi súpa á sér langa sögu meðal íslenskra bifhjólamanna og var elduð í stórum pottum á
landsmótum. Uppskriftin var um tíma nær glötuð eftir fráfall Heiðars Jóhannssonar, sem sést á
myndunum í þessu skjali.

Sem betur fer hafði Hjörtur (Líklegur) varðveitt uppskriftina og sendi hana áfram. Þannig varðveittist
hin eina sanna Landsmótssúpa bifhjólamanna fyrir komandi kynslóðir.
Uppskriftin hér er hreinsuð og einfölduð úr upprunalegu lýsingunni og miðast við um 100 lítra af
súpu.

Hin_eina_sanna_Landsmotssupa_bifhjólamanna-2

 

(Frá Hyrti #56)
Fyrsta Landsmótssúpan var elduð 1988 á föstudagskvöldinu var súpa það ár, en á laugardagskvöldinu ætlaði Heiddi að elda kássu úr einhverjum 20-30 kg. af nautahakki, búið var að kaupa helling af smjöri, lauk, tómatsósu og niðursoðnu grænmeti í frosnum pokum. Heiddi skipaði fyrir að taka pottinn með smá lögg af súpu í og fara með hann niður í á og þvo pottinn að innan, þetta gerðu nokkrir vaskir menn og komu til baka með pottinn nánast hreinan. Þegar átti að byrja að elda kvöldmatinn, sofnaði Heiddi og ekki nokkur leið að vekja hann, en það endaði á að ég gerði kássuna. Af og til vaknaði Heiddi og gaf fyrirskipanir um hvernig ætti að elda kássuna og úr varð þessi fína kjötkássa sem færri fengu en vildu.

1989 var gerður fullur pottur af súpu og voru landsmótsgestir að fá sér súpu fram eftir laugardeginum, einhverjir sáust skvetta ýmist sterkum mjöð eða bjór til að bragðbæta súpuna við litla hrifningu sumra en kátínu og gleði annara.