Pókerrun Tíunnar var haldið í blíðskaparveðri á Akureyri í dag,

Skráning hófst við Mótorhjólasafnið kl 11:00 og skráðu sig 15 manns á 13 hjólum. Eftir stuttann kaffisopa í boði Önnu formanns Tíunnar brunaði hópurinn af stað og var fyrsti áfangastaðurinn Dalakofinn, og þar sem veðrið var svo gott fóru allir Víkurskarðið og fengu sér flestir ís í Dalakofanum.
Næsti áfangastaður var Húsavík og þar sem allir voru í stuði til að hjóla var farin lengri leiðin þangað gegnum Mývatnsveit og svo ekin Þeystareykjaleiðin til Húsavíkur sem er stórkosleg mótorhjólaleið. Á Húsavík tönkuðu sumir hjólin og nú var áfangastaðurinn Tungulending á Tjörunesi. Þar er nefnilega magnað lítið kaffihús niður í fjöru sem gert hefur verið upp en þetta var áður úthaldstaður bænda á Tjörunesi sem réru til fiskjar mest þó grásleppu, og söltuðu hrognin af henni á staðnum.

Kaffið og kökurnar sviku okkur ekki í Tungulendingu, en við höfðum dregið spil á öllum áfangastöðunum og þá var bara einn eftir og það var Ráðhústorg á Akureyri.



Þegar þangað kom, voru úrslitin þannig að Eyvi sem kom frá Ólafsfirði var með bestu höndina og fékk hann bikar og peningaverlaun. Safnið naut einnig góðs af deginum og fá styrk upp  25000 kr sem gjaldkeri Tíunnar er búinn að leggja inn á safnið.

Eyjó sigraði í pókerrun í ár.