Sniglarnir halda upp á 40 ára afmæli sitt með glæsilegri mótorhjólasýningu.

Bifhjólasamtök Lýðveldisins, Sniglar sendu frá sér fréttatilkynningu en þar kemur fram að samtökin fagni 40 ára afmæli sínum um páskahelgina með glæsilegri mótorhjólasýningar í Porche-salnum hjá Bílabúð Benna að Krókhálsi 9.

Að sögn Ólafs Arnar Hjartasonar hjá sýningarnefnd Snigla verða hátt í 140 mótorhjól á staðnum. „Hjólin eru hvert öðru glæsilegra og höfum við lagt áherslu á að hafa sem mesta breidd í hjólaval. Gestir geta búst við að sjá keppnishjól, mikið breytt mótorhjól og eldgömul mótorhjól, en einnig verða á staðnum ný hjól frá umboðum og sögufræg hjólinnan samtakanna. Hjólin koma líka víða að, frá Vestmannaeyjum, Snæfellsnesi, Borgarnesi og svo kemur líka rjóminn af sýningargripum Mótorhjólasafnsins á Akureyri,“ sagði Ólafur.

Sýningin mun standa yfir frá föstudeginum langa fram á annan í Páskum og er opið frá klukkan 10-18 alla dagana.

 

Björgvin Gunnarsson

www.mannlif.is