Á laugardaginn síðastliðinn var aðalfundur Tíunnar.
Fámennur en góðmennur fundur þar sem aðalfundarstörf voru framkvæmd.
En það helsta var að engin framboð voru í stjórn og enginn í stjórn vildi hætta svo að stjórnin hélt bara áfram!
Ákveðið var að hækka félagsgjöldin í klúbbnum í 6000kr á næsta ári.
Fundi slitið og var boðið uppá veitingar sem gestir nýttu sér.








