Vorleg þessi myndbönd héðan úr skurðinum fagra! Snjór niður í mið fjöll og jafnvel neðar svo líklega er þetta tekið snemma vors.
Okkur var bent á fleiri video frá árdögum mótorhjóla! Nei kannski ekki, en miðað við gæðin á VHS myndböndunum þá gæti það verið 🙂
Þessi video koma frá Hólmari Kr Þórhallsyni og voru tekin fyrir c.a 35 árum eða svo.
Frábærar heimildir fyrir okkur dellukallana /kellingarnar. Og góð skemmtun að sjá þessa gömlu hauga 🙂 , gera skemmtilega hluti! Þarna má sjá td. RX Kawa, Virago að ég held eða Mögnur, og auðvitað 1100 Súkku ásamt fleiri gæðingum.








