Merki Tíunnar
Í september árið 2006 var Bifhjólaklúbbur Norðuramts Tían stofnuð og er hún hollvinafélag Mótorhjólasafns Íslands á Akureyri.
Tían var stofnuð í lok september 2006 í minningu Heidda Snigils nr#10 sem lést í mótorhjólaslysi í júlí 2006.
Heiddi (Heiðar þórarinn Jóhannsson) var án vafa einn allraþekktasti mótorhjólamaður Íslands og var vinamargur vegna þess að hann var ætíð hjálpsamur mótorhjólafólki hvort sem það var vegna bilana eða ef fólki vantaði gististað.
Hann var mótorhjólamaður í gegn og stundaði hann mótorhjólamennsku í nánast öllum greinum sportsins, Hann safnaði hjólum og átti vel yfir 20 stk þegar hann lést af slysförum.
Draumur Heiðars var að setja á legg Mótorhjólasafn á Akureyri og er nú búið að gera það að veruleika.
Tían hefur í dag um 500 meðlimi en um 240 eru virkir um að leggja fram vinnu, aðstoð og að stuðla að uppbyggingu og hagsmunum safnsins. Margir félagsmenn Tíunnar og aðrir velunnarar safnsins hafa boðist til að lána safninu hjól og aðra gripi til varðveislu eða á einstakar sýningar. Mótorhjólasafn Íslands er sjálfseignarstofnun sem
ætlað er að standa undir rekstri safnsins og annarri starfsemi.
Í kjölfarið á fjármálahruninu haustið 2008 var hafist handa við byggingu Mótorhjólasafns Íslands á Akureyri. Framkvæmdin við nýbygginguna hófst í janúar 2009 og opnaði safnið dyr sínar fyrir gestum þann 15. maí 2011, á afmælisdegi Heiðars Þórarins Jóhannssonar, Heidda.
Bifhjólasamtaka lýðveldisins, Sniglanna, sem er mótorhjólaklúbbur stofnaður 1. apríl 1984. Tilgangur klúbbsins er að koma á samstarfi bifhjólafólks, gæta hagsmuna þeirra og hvetja almennt til ánægjulegrar bifhjólamenningar. Heiddi fékk númerið 10 í félagatali samtakanna og var virkur í klúbbnum allt til dánardags. Fyrir störf sín fékk Heiðar heiðursverðlaun Sniglanna árið 2002. Hollvinasamtök Mótorhjólasafnsins, Tían, fékk heiti sitt af þessu númeri Heidda í Sniglunum, en meðlimir Tíunnar vinna að því að stuðla að uppbyggingu safnsins. Hægt er að ganga í klúbbinn hér á síðunni.