Vorfagnaður Snigla og Tíunnar var haldinn á laugardaginn 17 maí  í blíðskaparveðri en ekki sást ský á himni og hitamet féllu örugglega þann daginn.

Vorfagnaðurinn var haldinn á svæði Bílaklúbbs Akureyrar og þökkum við kærlega fyrir afnotin af svæðinu

Hólmgeir Þorsteinsson var með erindi frá Sjóvá þar sem var farið yfir tryggingar á mótorhjólum og fleira áhugavert, þar á eftir kom svo Eydís Sigurgeirsdóttir, bráðatæknir frá Slökkviliði Akureyrar, en hún fór yfir hvernig bregðast skal við aðkomu að mótorhjólaslysum. Einar Magnús Magnússon var svo að lokum með erindi frá Samgöngustofu þar sem m.a. var farið yfir hlífðarbúnað á hjólum.




Kunnum við þeim öllum bestu þakkir fyrir komuna og var mjög fræðandi að hlusta á þau öll.

Öllum var boðið upp á léttar veitingar, og eftir fræðslu var hægt að nýta sér brautina, en Adam Þorvaldsson bauð upp á að hjóla með fólki og leiðbeina ef þyrfti. Sökum mikils hita var fólk ekkert áfjáðt í brautarakstur en nokkrir nýttu þó tækifærið en Valdemar Þór Viðarsson ökukennari setti upp keilur ef fólk vildi æfa sig.

Það var góð þátttaka í dag og vonandi er þessi viðburður kominn til að vera

Sniglar þakka vel fyrir sig, og þá sérstaklega Tíunni fyrir samstarfið
#sniglarnir #littutvisvar #viltupassamig #hjolamenningin

Á  www.sniglar.is  eru fleiri myndir!