...

Síðan 19. maí 2012 hafa 5 mótorhjólafélög verið í uppgræðslu á svæði sem nefnist Mótorhjólaskógurinn,

Á þetta svæði hefur verið dreift tæpum 40 tonnum af áburði og plantað um 24,000 birkitrjám, en fyrir síðustu helgi var hoggið stórt skarð í þetta starf.
Síða mótorhjólaskóga.

Við höfðum reynt að passa okkur á að gera ekki neitt lengra frá veginum en um 300 metra því samkvæmt teikningum af vindmillugarðinum átti ekkert að raska við landinu á fyrstu 300 metrunum frá veginum. Einhverra hluta vegna þurfti samt að keyra með jarðýtur í gegn um þrjá reiti af plöntum þar sem þær voru þéttastar.

Þess má geta að Slóðavinir hafa verið að græða upp land þarna síðan í maí 2009.

Hjörtur Líklegur #56

Nýverið var unnið tjón á svæðinu og lagður jarðstengur yfir skógræktarsvæðið án þess að kanna hvað væri þar fyrir.

 

Í sameiginlega reitnum.

Svona sást og víða og ekkert reynt til að fara framhjá eða planta aftur.

Það nefnilega fréttist að það væru jarðýtur að keyra í reitunum okkar þannig að það var farið í könnunarleiðangur.  Það voru 2 jarðýtur og beltagrafa að plægja niður ljósleiðara í gegn um miðja reitina hjá BMW og Skutlum og svo fara þeir fyrir framan skiltið í sameiginlega reitnum, en svo fyrir norðan reitinn hjá HOG Endurvinnslunni og Göflurum. Það er frekar grátlegt að horfa á þetta því þeir fara nánast beint í gegn þar sem plönturnar eru flestar. Það hefði allveg verið hægt að fara 100 metrum lengra frá veginum, en þar vorum við nánast ekki búin að planta neinu. Væntanlega eru verktakarnir með teikningu sem þeir fara eftir frá óhæfum aðila sem hefur bara sett strik á blað án þess að mæta á svæðið, það er fúlt fyrir okkur sem höfum verið að bera á þarna áburð og planta trjám að sjá þetta. Styrktaraðilarinr okkar sem hafa gefið okkur nærri 40 tonn af áburði verða eflaust ósáttir með að styrkurinn hafi farið svona, en væntanlega er þetta allt út af einum „verkfræðingi“ sem kynnti sér ekki staðinn áður en hann teiknaði línuna fyrir kapalinn (sjá nokkrar myndir sem teknar voru í dag 17. maí 2025).

Ekki laust við að manni sárni við að sjá þetta því það hefði allveg verið hægt að fara 50 til 100 metrum lengra frá veginum þar sem færri plöntur eru.

Í BMW reitnum standa þessar

 

 

 

Seraphinite AcceleratorOptimized by Seraphinite Accelerator
Turns on site high speed to be attractive for people and search engines.