Einu sinni fyrir mörgum árum,þegar ég var ungur, átti ég skellinöðru, sem ég hafði óskaplega gaman af að þvælast á.
Sama var hvert fara átti, alltaf fór ég á hjólinu. Svo það var eins og að verða 16 ára öðru sinni, þegar ég fékk að prófa Yamaha 50 cc torfæruhjólið hjá Bílaborg.
Eftir að þeir hjá Bílaborg höfðu talað við mig og boðið mér að prófa hjólið, sem ég þáði að sjálfsögðu, talaði ég við Ragga frænda, en hann á torfæruhjól og vissi, hvar bestu sandgryfjurnar væri að finna. Upp í Mosfellssveit, sagði hann, og upp í Mosfellssveit fór ég.
Þegar upp í Mosfellssveit kom var Raggi mættur á Sukkunni sinni, sem er 150 cc. Yamaha hjólið, sem ég var með, var 49 cc. Upprunalega átti hjólið að vera 6 hestöfl, en til að komast á rauð númer og þar með í skellinöðruklassann, var það innsiglað 12,5 hestöfl. Gírkassinn er 5 gíra og frábærlega skemmtilegt hlutfall á milli gíra.
Vélin er tvígengis, en hún blandar oliu og bensíni sjálf saman, venjulegt bensín er sett á tankinn og olian í sér tank undir sætinu, svo er olían, sem snýr vélina sett á mótorinn, eins og á venjulegum fjórgengisvélum. Bensíntankurinn tekur 6 lítra, en olíutankurinn fyrir blöndunina tekur 1 lítra. 180 mm eru undir lægsta púnkt á hjólinu. Þyngdin er 70 kíló, og hjólið kostar um 180 þúsund.
Ástæðan fyrir því, að ég fór í sandgryfjurnar upp í Mosfellssveit, í stað þess að prófa hjólið bara í bænum, er sú, að þetta hjól er sérstaklega gert fyrir torfærur, og því fannst mér liggja beinast við að prófa almennilega í því þolrifin í torfærum.
Þegar upp í sandgryfjurnar kom, bættum við bensíni og olíu á hjólið, síðan var það gangsett, og ég af stað. Heldur voru nú tilburðirnir klaufalegir til að byrja með, en sem betur fer voru ekki aðrir en Jim Ijósmyndari og Raggi frændi vitni að því, þegar ég var að kynnast hjólinu og fá æfingu í að keyra á tveimur hjólum aftur. En það kom strax, svo ég fór að prófa mig og fararskjótann í litlum brekkum, sem ég fór upp eins og ekkert væri. Við þetta jókst mér þor, og ég gaf meira í og fór í hærri og brattari brekkur. Og upp fór ég. Nú var ég búinn að ná nokkuð góðu valdi á hjólinu, sem var létt og þægilegt í meðförum og lét frábærlega vel að stjórn. Þor mitt og sjálftraust jókst jafnt og þétt. Ég endasentist á fleygiferð upp og niður hvern hólinn af öðrum og upp og niður hæðir í loftköstum, og Jim hljóp sem mest hann mátti á eftir í von um að ná einhverri mynd af þessum hamagangi. Nokkuð myndarlegur pollur varð á vegi mínum, og án þess að velta vöngum yfir því hvort hann væri djúpur eða hvort mikil drulla væri í honum, æddi ég útí og yfir sem betur fer, því ég var ekki klæddur til að vaða í pollum. Gusugangurinn í pollinum var þó svo mikill, að ég varð rennandi blautur í tærnar, en hjólið sló ekki feilpúst, þótt gusurnar yrðu miklar. Og áfram hélt ég að þræla hjólinu upp og niður sandbrekkurnar, svo hjólið flaug langar leiðir í lausu lofti eftir að brekkubrúnunum sleppti. Á einu hjóli var keyrt og teknar krappar beygjur í illfærum sandinum, svo hjólið prjónað og jós, eins og það heitir víst á hestamáli, en þrátt fyrir allan þennan hamagang tókst mér aldrei að detta á hausinn. Það var hreint ótrúlegt, hvað var hægt að leggja á þetta litla hjól. Og þótt hestöflin séu ekki nema 2,5 nýtast þau eins og best verður á kosið, en hið góða hlutfall milli gíra á sinn stóra þátt í því hve góðum árangri hjólið nær. Svo skemmtileg þótti mér þessi þeysireið í sandgryfjunum, að Jim þurfti að draga mig hálf nauðugan heim á leið.
Enginn vafi er á því, að ég varð 16 ára aftur þarna í sandgryfjunum, og ef ég í alvöru væri 16 ára, er ekki nokkur vafi á því, hvað ég myndi gera við 180 þús. kr. ef ég ætti þær.
Árni Bjarnason
Vikan 26.8.1976
Yamaha 50cc götuhjól
Eflaust muna einhverjir eftir því, að ég prófaði Yamaha M.R. 50 cc torfæruhjól fyrir skömmu. Nýlega var mér boðið að prófa Yamaha 50 cc götuhjól, og þáði ég það að sjálfsögðu. Þótt þessi tvö hjól séu mjög ólík eiga þau margt sameiginlegt, eins og til dæmis mótorinn, sem er 49 cc. En til þess að komast í
skellinöðruklassann’þarf að innsigla þau í 2,5 hestöfl. 5 gíra gírkassi er líka á þessu hjóli, og vélin sér sjálf um að blanda olíu og bensíni saman.
Það vakti einna mesta athygli mína, að diskabremsa er á framhjólinu og með vökvadælu, sem gerir það að verkum, að frambremsan er alls ekki eins hættuleg fyrir viðvaninga og verkar þar að auki frábærlega vel. Ég prófaði hjólið eingöngu í bænum, því það er gert fyrir venjulega götukeyrslu. Aksturseiginleikar hjólsins eru góðir, og það liggur mjög vel á vegi, jafnt í beygjum sem á beinum vegi. Á malarvegi er hjólið gott í akstri og læturvel að stjórn.
Það á jafnt við um þetta hjól og torfæruhjólið, að gírahlutfallið í gírkassanum er eins og best verður á kosið, svo krafturinn nýtist sem allra best.
Í innanbæjarkeyrslu er hjólið lipurt og auðvelt í meðförum. Bílaborg hefur umboðið, og kostar þetta hjól 178 þúsund. Ég vil svo hvetja alla þá, er aka
skellinöðrum og mótorhjólum, til að nota hjálma, því þeir veita gífurlegt öryggi. Ég varð fyrir skömmu vitni að slysi, þar sem ungur drengur varð fyrir bíl á skellinöðru. Drengurinn brotnaði illa á fæti, en hafði hjálm, sem eflaust hefur bjargað lífi hans. Hjálmurinn brotnaði við ákeyrsluna en hlífði höfði drengsins, svo hann hlaut enga höfuðáverka. Það er ekkert töffað vera hjálmlaus og allra síst að fá varanleg höfuðmeiðsl.
- Glussadælan og bremsudiskurinn á framhjólinu eru til mikilla bóta.
- Hraðamælir og snúningshraðamælir eru á Yamaha 50 cc. Til hægri má sjá áfyllingu og dælu fyrir bremsuna á framhjólinu.
- Yamaha MR50
Árni Bjarnason
Vikan 21.10.1976
















