Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglar, hyggjast mótmæla frumvarpi um kílómetragjald. Sniglarnir segja frumvarpið óréttlátt og hafa lagt fram tillögu að nýju „sanngjörnu“ kílómetragjaldi.
Þetta kemur fram í tilkynningu.
Þá segja samtökin bifhjól í eðli sínu margfalt léttari en bílar og kílómetragjöld eigi að endurspegla það
Í rökstuðningi fjármálaráðherra um gjaldtökuna er vísað í umfangsmikla vetrarþjónustu. Þjónustu sem að sögn Sniglanna er lítið sem ekkert notuð af bifhjólaeigendum þar sem bifhjól eru ekki í notkun yfir vetrartímann.
Tillaga að nýju kílómetragjaldi Bifhjólamenn ósáttir við gjaldið frétt á mbl 10.6.2025
Sniglar hafa stungið upp á nýrri gjaldtöku, sem er „sanngjörn“ og „raunhæf.“
Fyrirætluð kílómetragjöld frumvarpsins nema 6,7 krónum á hvern kílómetra fyrir bifhjól, sem vega 400 kíló eða meira. Þá eru 4 krónur lagðar á fyrir hvern kílómetra fyrir léttari bifhjól og skellinöðrur.
Tillaga Snigla er töluvert kostnaðarminni fyrir bifhjólaeigendur. Þá leggja þeir til 1,7 krónur á kílómetra fyrir bifhjól og 0,6 krónur á kílómetra fyrir léttari bifhjól og skellinöðrur.
Sniglarnir halda samstöðufund á Smiðjuvegi 1 í kvöld.
mbl.is/Eggert Jóhannesson
MBL.is 19.6.2025
.