UM TUTTUGU félagar í Bifhjólasamtökum lýðveldisins, sem eru samtök bifhjólaeigenda hér á landi, söfnuðust saman á útitaflinu á Bernhöftstorfu hinn 1. maí sl.

Tilgangurinn var ekki að mótmæla einu né neinu, heldur einfaldlega að sóla sig í góða veðrinu.

Öðrum þræði vildu Bifhjólasamtökin þó vekja athygli á aðal baráttumáli sínu, að fá fram lækkun tolla á bifhjólum.

Um 170 manns eru í Bifhjólasamtökum lýðveldisins. Tilgangurinn með félagsskapnum er fyrst og fremst að félagar hjóli saman, en auk þess hefur það barist fyrir lækkun tryggingaiðgjalda og lækkun tolla af bifhjólum. Tollar af bifhjólum munu vera um fimmtíu prósent, og þeir lækkuðu ekki þegar tollarlækkuðu afbílum fyrir skömmu.

Lagfæring með Ai

Lagfæring með Ai og lit.

Morgunblaðið 7 maí 1986       (Sem gerir þessa frétt 40 ára gamla)