Hin goðsagnakenndu Harley-Davidson-mótorhjól þarf ekki að kynna fyrir neinum, enda muna flestir eftir vígreifum lögreglumönnum á slíkum gæðingum.

Færri vita hins vegar að þetta voru vinsælustu mótorhjólin á fyrri hluta síðustu aldar þegar sannkallaðar hetjur riðu um héruð landsins á vélfákum. Hér er saga Harley-Davidson á Íslandi rifjuð upp í máli og myndum, allt frá því að fyrstu mótorhjólin birtust árið 1917. Eftir gullöld einstaklingshjólanna á þriðja og fjórða áratugnum tók lögreglan þau í þjónustu sína og þá upphófst einn merkilegasti kaflinn í sögu þeirra. Í bókinni er einnig fjallað um nokkrar aðrar gerðir amerískra mótorhjóla sem bárust hingað til lands á liðinni öld. Höfundurinn, Njáll Gunnlaugsson, er landsþekktur áhugamaður um mótorhjól og hefur lengi rannsakað sögu þeirra. Hann skrifar reglulega um bíla og mótorhjól í dagblöð og á samfélagsmiðla, samhliða því að kenna Íslendingum að aka þessum undratækjum.

Tíunni Bifhjólaklúbbi áskotnaðis nokkrar bækur áritaðar af höfundinum Njáli Gunnlaugsyni og eru þær til sölu hér á vefnum ásamt eldri bók sem Njáll gaf út.
(Þá Riðu Hetjur um héruð).
Nýja bókin kostar aðeins 7000kr  og rennur allur arður af sölunni til Mótorhjólasafnsins,
https://tia.is/verslun/

Einnig geta þeir sem ekki vilja nota vefverslun sent okkur tölvupóst tian@tia.is og pantað bók. Við sendum ykkar þá Bankalínu með flutningskostnaði. og sendum þegar það hefur verið greitt.