Fimmtudagur
Landsmót Bifhjólafólks verður sett á fimmtudaginn kl 21:30 í Krúttinu á Blöndósi.
þar verður opinn Mic,  þar sem gestir og gangandi geta komið fram.
Eftir það verður skemmtun þar sem hljómsveitin Hlekkir spila.   En þar leynast  Steini tótu. Axel Cortes  og Eypór osteby

Föstudagur
Leikir hefjast kl 16: þá ættu allir að vera búnir að sinna sundferðurm og oðrum slíkum undirbúningi. og þá er einmitt kjörið að dressa sig fyrir búningakeppnina.
19:30  Býður Tían upp á Landsmótssúpuna. en Tían gefur súpuna í tilefni af 20 ára afmæli Klúbbsins.
kl 22:00  Hljómsveitin Sporlaust í Krúttinu.   Ball fram á nótt.

Laugardagur
kl 12:00 verður AA fundur í safnaðarheimilinu fyrir þá sem vilja.
Aðrir geta hent sér á mótorhjólin og komið í mótorhjólatúr.  Um nágrannasveitarfélögin.    ( það er allavega vitað um eitt hlaðborð sem möguleiki er að heimsækja 🙂
kl 16  Verður Keppnin í Snigli   um titilinn Snigill ársins.      Keppnisreglur í snigli.

kl 19:00 verður Kvöldverður í Krúttinu,   (þetta er innifalið í miðaverðinu)
21:00    Verðlaunaafhending og dregið í Happdrættinu sem selt verðu alla helgina.
og upp úr því BP og þegiðu Ingibjörg á svið og æra liðið.    Hljómsveitin BP og þegiðu Ingibjörg fór mikinn á Gauknum og Amsterdam á síðasta áratug liðinnar aldar og vakti hvarvetna kátinu en sveitin var eins konar angi af Sniglabandinu góðkunna.
Sveitin var stofnuð í lok árs 1991 og voru meðlimir hennar frá upphafi Björgvin Ploder (BP) trommuleikari, Friðþjófur Ísfeld Sigurðsson bassaleikari og Einar Rúnarsson hljómborðsleikari sem allir komu úr Sniglabandinu, og Tómas Tómasson gítarleikari sem m.a. hefur leikið með Rokkabillíbandi Reykjavíkur. Allir sungu þeir félagar og sprelluðu.
Sveitin starfaði með hléum allt til ársins 2001 þegar hún hætti störfum, hún hefur þó komið saman eftir það og spilað á lokuðum samkomum  eins og nú 2026 🙂

Sunnudagur er tiltekt og frágangsdagur á tjaldstæðinu Allir taka til í kringum sig og sína. og svo bara bruna annaðhvort heim eða á næst hátíð 🙂

ATH. Dagskráin er ekki meitluð í stein.   Hún gæti eitthvað riðlast.   Hafið það bara í huga.!!!  Góða skemmtun